Skip to main content

Landsfundur SHA 2011

By Uncategorized

Kertafleyting á Reykjavíkurtjörn ÁG/HS

Landsfundur SHA 2011 verður haldinn 25.-26. nóvember í Friðarhúsi

Dagskrá:

Föstudagur 25. nóv.

20:00 –
SHA og samskiptavefirnir: Hvernig geta róttæk samtök nýtt sér möguleika internetsins?
Spjallfundur með sérfræðingum.

Laugardagur 26. nóv.

11:00 –
Almenn aðalfundarstörf
(Einfaldur hádegisverður í matarhléi)
14:00 –
Málþing um Nató. Þingkonurnar Birgitta Jónsdóttir úr hreyfingunni og Guðfríður Lilja Grétarsdóttir úr VG ræða um Ísland og Nató.
Að málþingi loknu verður afgreiðla ályktana og þinglok ekki síðar en kl. 17.

Félagsfundur MFÍK, mánudagskvöld

By Uncategorized

Opinn félagsfundur MFÍK verður mánudaginn 14. nóvember kl. 19 í Friðarhúsi.

Ingibjörg Broddadóttir, deildarstjóri í Velferðarráðuneytinu, fjallar um ákvörðun um móttöku flóttafólks.

Léttur kvöldverður seldur á kr. 1.000 í upphafi fundar. Húsið opnar kl. 18.30. Takið endilega með ykkur gesti. Allir velkomnir.

Menning á málsverði

By Uncategorized

Fjáröflunarmálsverður Friðarhúss verður haldinn á föstudagskvöldið kl. 19. Auk lasagne-veislu þeirra Þorvalds Þorvaldssonar og Elíasar Jóns Guðjónssonar, verður vitaskuld boðið upp á menningardagskrá.

Skáldin Kári Tulinus og knarrarskáldið Elías Portela munu lesa úr verkum sínum. Elías er Galisíumaður, sem tekið hefur ástfóstri við Ísland og yrkir jafnt á galisísku og íslensku. Þeir Kári og Elías lásu báðir á ljóðadagskrá SHA á Menningarnótt við frábærar undirtektir.

Lasagne-veisla í Friðarhúsi

By Uncategorized

Föstudagskvöldið 4. nóvember nk. verður fjáröflunarmálsverður Friðarhúss haldinn. Að þessu sinni munu miðnefndarfulltúarnir Elías Jón Guðjónsson og Þorvaldur Þorvaldsson sjá um að töfra fram Lasagne, annars vegar fyrir kjöt- og hins vegar grænmetisætur. Sest verður að borðum kl. 19, en húsið verður opnað hálftíma fyrr. Verð kr. 1.500. Nánari dagskrá kynnt síðar.

Málsverður 4. nóv.

By Uncategorized

Fjáröflunarmálsverður Friðarhúss verður ekki í kvöld, 28. okt., heldur að viku liðinni fös. 4. nóv. Þá verða yfirkokkar félagarnir Elías Jón Guðjónsson og Þorvaldur Þorvaldsson.