Aldrei aftur Hiroshima og Nagasaki

By 01/08/2012 August 8th, 2012 Uncategorized

Kertafleyting á Reykjavíkurtjörn ÁG/HS

Hin árlega kertafleyting til minningar fórnarlamba kjarnorkusprengjanna í Hiroshima og Nagasaki í ágúst 1945 verður haldin við Tjörnina í Reykjavík fimmtudaginn 9. ágúst kl. 22.30.  Kerti verða seld á staðnum og kosta kr. 500 stykkið eða 3 á kr. 1.200.

Nánari upplýsingar um dagskrá verða birtar síðar.

Frá árinu 1985 hafa íslenskir friðarsinnar fleytt kertum í minningu fórnarlamba kjarnorkuárásanna á Hírósíma og Nagasakí 6. og 9.ágúst 1945 og til að leggja áherslu á kröfu sína um friðsaman heim án kjarnorkuvopna. Um er að ræða hefð sem upprunin er í Japan, en kertafleytingar af þessu tagi fara fram víða um lönd í ágúst ár hvert.

* * *

Á Akureyri verður kertafleyting til að minnast sprenginganna á Hiroshima og Nagasaki verður við Minjasafnsstjörnina fimmtudaginn 9. ágúst kl 22.00. Ræðumaður er Þórarinn Hjartarsson formaður Samtaka hernaðarandstæðinga á Norðurlandi. Í ár beinist athyglin að Sýrlandi og Mið-Austurlöndum.