Orustuþotur NATO-ríkja koma hér með fárra vikna millibili og stunda æfingar sínar yfir Akureyri með djöfullegum gný. „Loftrýmiseftirliti“ er ætlað að vekja okkur öryggiskennd en vekur í staðinn óhug, ótta, skömm og reiði.
Síðasti fjáröflunarmálsverður Friðarhúss fyrir sumarfrí verður haldinn föstudagskvöldið 25. maí. Guðrún Bóasdóttir (Systa) eldar.
Matseðill:
* Nautakjöt í hnetusósu borið fram með hrísgrjónum og tælensku rauðkálssalati
* Saltfisksalat
* Rabarbaraþeytingur (rabarbari bakaður í ofni með vanillu og borinn fram með rjóma)
Vilborg Dagbjartsdóttir sér um menningardagskrá.
Borðhald hefst kl. 19. Verð kr 1500. Allir velkomnir.
Dagskrá afmælishátíðar SHA í Iðnó miðvikudagskvöldið 16. maí er óðum að taka á sig mynd.
Samkoman hefst stundvíslega kl. 20, en húsið verður opnað hálftíma fyrr. Ókeypis aðgangur meðan húsrúm leyfir.
Árni Björnsson segir frá aðdragandanum að stofnun SHA 1972
Fjöldi tónlistaratriða:
- Heiða Eiríksdóttir
- Svavar Knútur
- Jara
- Þorvaldur Þorvaldsson
- Einar Már & Blágresi
- Bjartmar Guðlaugsson
- Þokkabót
Allir velkomnir.
Samtök hernaðarandstæðinga rekja sögu sína aftur til Glæsibæjarfundarins sem haldinn var 16. maí árið 1972. Samtökin fagna því 40 ára afmæli og munu að því tilefni standa fyrir samkomu í Iðnó að kvöldi miðvikudagsins 16. maí (kvöldið fyrir uppstigningardag).
Fjöldi tónlistarmanna og annars listafólks mun koma fram á dagskránni, þar sem lög sem tengjast sögu friðarbaráttunnar verða í aðalhlutverki. Meðal flytjenda má nefna: Bjartmar Guðlaugsson, félaga úr Þokkabót, Heiðu trúbador og Einar Má & Blágresi. Árni Björnsson mun rifja upp aðdragandan að stofnun SHA.
Dagskráin hefst stundvíslega kl. 20, en húsið verður opnað 19:30. Allir velkomnir meðan húsrúm leyfir. Aðgangur ókeypis, en söfnunarföturnar verða vitaskuld á sínum stað.
Opinn félagsfundur MFÍK verður miðvikudaginn 9. Maí kl. 19 í Friðarhúsi. Þær Harpa Stefánsdóttir, formaður, og Sigurlaug Gunnlaugsdóttir, varaformaður MFÍK, segja frá heimsþingi WIDF (Alþjóðasamtök lýðræðissinnaðra kvenna) sem haldið var í Brasilíu í apríl.
Léttur kvöldverður seldur á 1500 kr. í upphafi fundar. Húsið opnar kl. 18.30.
Takið endilega með ykkur gesti. Allir velkomnir.
Fjáröflunarmálsverður Friðarhúss, sá fyrsti eftir stórtækar framkvæmdir á ytra byrði hússins, verður haldinn föstudagskvöldið 27. apríl n.k. og hefst borðhald að venju kl. 19.
Matseldin verður að þessu sinni sameiginlegt verkefni Láru Jónu Þorsteinsdóttur, Þorvaldar Þorlvaldssonar og Alvins Níelssonar, félaga í SHA.
Matseðill:
* Víðfræg fiskisúpa
* Grænmetissúpa
Nánari upplýsingar um dagskrá verða birtar síðar. Verð kr. 1.500.
Recent Comments