Ályktun um Nató og alþjóðamál

By 05/12/2012 Uncategorized

Eftirfarandi ályktun var samþykkt á landsfundi SHA sl. sunnudag:

Tólf ár eru liðin frá innrás Bandaríkjanna og bandalagsþjóða þeirra inn í Afganistan. Stríðið, sem nú er að mestu í höndum Nató, hefur í vaxandi mæli breiðst til nágrannalandsins Pakistan og bendir ekkert til að því ljúki í bráð. Eitt af megineinkennum hernaðarins er notkun fjarstýrðra morðvéla, sem drepið hafa fjölda almennra borgara.

Samtök hernaðarandstæðinga gagnrýna þá þögn sem ríkir um stríðið í Afganistan og Pakistan. Ábyrgð Íslendinga sem Nató-þjóðar á hernaðinum er skýr, en virðist þó ekki megna að vekja umræður í fjölmiðlum eða meðal stjórnmálamanna. Í hverri viku berast fregnir af drápum Nató-herja á saklausu fólki, án þess að það hreyfi við samvisku okkar.

Hernaðarbandalagið Nató hefur á liðnum árum gerst sífellt árásargjarnara, eins og nýlegt stríð í Líbýu leiddi glögglega í ljós. Sú staðreynd ætti að vera gömlum stuðningsmönnum Nató-aðildarinnar tilefni til alvarlegrar umhugsunar. Samtök hernaðarandstæðinga minna á kröfu sína um úrsögn Íslands úr Nató.