Friðargöngur í Reykjavík, Ísafirði og Akureyri

By 21/12/2012 Uncategorized
Íslenskir friðarsinnar hafa efnt til friðargöngu niður Laugaveginn á Þorláksmessu í rúmlega þrjá áratugi. Óhætt er að segja að gangan sé orðin ómissandi þáttur í jólaundirbúningnum og tekur fjöldi fólks sér hlé frá tiltektum og innkaupum rétt fyrir jólin til að leggja sitt af mörkum og styðja kröfuna um frið og afvopnun í heiminum. Undanfarin ár hafa slíkar göngur einnig verið á Akureyri og á Ísafirði og verður svo einnig nú.
Sem fyrr stendur Samstarfshópur friðarhreyfinga fyrir göngunni í Reykjavík þann 23.desember. Safnast verður saman á Hlemmi frá klukkan 17:45 og leggur gangan af stað klukkan 18:00. Fólk er hvatt til að mæta tímanlega.
Að venju munu friðarhreyfingarnar selja kerti fyrir göngufólk á Hlemmi. Í lok göngu verður fundur við hótel Vík (v. Ingólfstorg) þar sem Jón Gnarr borgarstjóri í Reykjavík  flytur ávarp en fundarstjóri er Drífa Snædal.
Söngfólk úr Hamrahlíðarkórnum og Kór Menntaskólans við Hamrahlíð syngur í göngunni og við lok fundar undir stjórn Þorgerðar Ingólfsdóttur.
Samstarfshópurinn minnir á að málstaður og rök friðarsinna skipta jafn miklu máli nú og fyrir þrjátíu árum. Stöðugt berast fregnir af ofbeldisverkum þjóða á milli og innan samfélaga. Óheyrilegum fjárhæðum er enn sóað í vígvæðingu og ekkert lát virðist á hernaðarátökum í heiminum.
Samstarfshópur friðarhreyfinga:
* Félag leikskólakennara.
* Friðar- og mannréttindahópur BSRB
* Friðar- og mannréttindanefnd Æskulýðssambands Þjóðkirkjunnar
* Menningar og friðarsamtökin MFÍK
* Samhljómur menningarheima
* Samtök hernaðarandstæðinga
* SGI á Íslandi mannúðar og friðarsamtök búddista
* * *
Ísafirði verður einnig friðarganga klukkan 18 á Þorláksmessu. Gengið verður frá Ísafjarðarkirkju að Silfurtorgi þar sem Lúðrasveit tónlistarskóla Ísafjarðar mun spila, ræðumaður dagsins verður Dagur Hákon Rafnsson.
* * *
Friðarframtak – sem stendur að árlegri Blysför í þágu friðar á Þorláksmessu á Akureyri – sendir frá sér fréttatilkynningu:
Stríðin eru heimshörmung. Nýju stríðin tengjast efnahagslegum hagsmunum og ójöfnuði. Í Bosníu, Kosovo, Afganistan, Írak, Palestínu, Líbíu, Sýrlandi. Þessi stríð tengjast lika endalausum vestrænum íhlutunum undir merkjum mannréttinda og mannúðar en snúast í raun um olíu, vopnaframleiðslu, auðlindir og átök stórvelda um áhrifasvæði. Ísland ber líka sína ábyrgð. Krafan er um frið og að Ísland eigi enga aðild að stríði né hernámi.
Gengið er frá Samkomuhúsinu kl. 20.
Ávarp flytur Ragnar Elías Ólafsson Þveræingagoði.