Þegar Bandaríkjamenn réðust á Afghanistan í október 2001 höfðu þeir lítið lögmæti til þess. Eftir hryðjuverkaárásirnar mánuði fyrr var auðvitað ljóst að bregðast þurfti við og draga hryðjuverkamennina til saka. Þann 13. september, tveimur dögum eftir hryðjuverkin, barst boð frá Talibönunum um að Bin Laden yrði framseldur gegn framvísun sönnungargaga um sekt hans. Því var ekki tekið.
Stofnsáttmáli Sameinuðu þjóðanna mælir fyrir um að aðildarríki skuli leysa í ágreiningi sín á milli með friðsamlegum hætti. Herum má aðeins beita í sjálfsvörn. Undantekningin á þessu getur aðeins orðið ef Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna samþykkir slíka hernaðaraðgerð. Read More
Föstudagskvöldið 28. febrúar n.k. verður annar fjáröflunarkvöldverður ársins haldinn í Friðarhúsi.
Kokkur kvöldsins verður Geir Guðjónsson, en matseðillinn er sem hér segir:
- Afrískur brúnhænupottréttur
- Naan-brauð
- Hrísgrjón
- Afrísk grænmetiskássa
Að borðhaldi loknu mun trúbadorinn Jakob Viðar Guðmundsson taka lagið.
Allir velkomnir. Borðhald hefst kl. 19:00. Verð kr. 2.000.
Eins og rækilega hefur komið fram, standa nú hér á landi yfir umfangsmiklar heræfingar með þáttöku Nató-herja og flugsveita frá Svíþjóð og Finnlandi. Æfingar þessar eru haldnar til hliðar við hinar reglubundnu þotuflugsæfingar sem ganga undir heitinu „loftrýmisgæsla“, þótt enginn sé óvinurinn.
Loftrýmisgæslan er haldin í samræmi við tímabundinn samning sem gerður var í kjölfar brottfarar bandaríska hersins frá Keflavíkurflugvelli og var hugsaður til að létta lund þeirra sem ekki gátu hugsað sér tilveruna án þess að heyra öðru hverju þotudrunur. Tímabil samningsins er senn á enda, en illu heilli virðist vilji íslenskra stjórnvalda standa til þess að endurnýja hann. Read More
Fyrst: um Bosníu og Kosovo
Í fyrri grein var minnst á nokkur þau voðaverk á undanförnum áratugum sem eru notuð til réttlætingar hinnar vestrænu íhlutana- og hernaðarstefnu, sem „múrbrjótar“ gegn fullveldismúrnum. Það er rík ástæða til að skoða þau dæmi vel. Read More
Spegillinn á Þrettándanum
Þrettándadag jóla, 6. janúar, hafði Spegillinn í Ríkisútvarpinu (Pálmi Jónasson) innslag um friðar- og ófriðarhorfur í byrjun árs 2014. Farið var helstu ófriðarsvæði á hnettinum nú um stundir. Innslagið var byggt á bandaríska tímaritinu „Foreign Policy“. Það gaf glögga mynd af helstu átakasvæðum í dag, og horfurnar framundan sýndust vissulega ekki bjartar. Hins vegar: Eins og títt er á þessum miðli, og ÖLLUM íslenskum féttastofum, var sjónarhornið amerískt, myndin var FRÉTTAFRÆÐANDI en SKILNINGSHAMLANDI OG FÖLSK. Read More
Fyrsti fjáröflunarmálsverður haustsins verður haldinn í Friðarhúsi föstudagskvöldið 31. janúar n.k. Kokkar kvöldsins verður þríeykið Lára Jóna Þorsteinsdóttir, Þorvaldur Þorvaldsson og Alvin Níelsson.
Að borðhaldi loknu mun Ingunn Ásdísardóttir lesa úr nýlegri þýðingu sinni á færeysku sögunni „Ó – sögur um djöfulskap“ eftir Car Jóhan Jensen.
Borðhald hefst kl. 19. Verð kr. 2.000
Matseðill:
- Matarmikil sjávarfangssúpa
- Grænmetissúpa
- Hjónabandssæla í eftirrétt
Recent Comments