Spennandi uppákomur Róttæka sumarháskólans

By 12/08/2014 Uncategorized

Róttæki sumarháskólinn hefur rækilega fest sig í sessi. Nokkur undanfarin ár hefur hann staðið fyrir metnaðarfullum málstefnum, fyrirlestrum og myndasýningum um hvers kyns róttæk pólitísk málefni. Atburðir eru haldnir í húsnæði Reykjavíkurakademíunnar í JL-húsinu Hringbraut 121.

Lesa má námsskrá skólans með öllum helstu viðburðum hér.

Sérstök ástæða er til að sýningu kvikmyndarinnar Dirty Wars n.k. sunnudag kl. 17:30 til 20:45. (Boðið er upp á ókeypis mat í hléi.)

Um Dirty Wars-myndina segir í kynningu sumarháskólans: Árið 2013 komu út bókin Dirty Wars og heimildamynd með sama nafni eftir bandaríska blaðamanninn Jeremy Scahill. Scahill hafði áður gefið út bókina Blackwater: The Rise of the World’s Most Powerful Mercenary Army, en hún var mikilvægt innlegg í umræðuna um hið svokallaða stríð gegn hryðjuverkum og einkavæðingu hernaðar. Dirty Wars hefur hlotið mikla athygli og var myndin m.a. tilnefnd til Óskarsverðlauna í flokki heimildamynda. Dirty Wars segir frá leynilegum hernaðaraðgerðum bandaríska hersins í Afganistan, Sómalíu og Jemen sem sérstök deild innan hersins, Joint Special Opperations Command eða JSOC, stendur fyrir. JSOC sér meðal annars um að drepa fólk sem sett hefur verið á vígalista bandarískra stjórnvalda. Listinn er leynilegur, og dæmi eru um að jafnvel bandarískir ríkisborgarar hafi lent á honum, en hann á að innihalda hættulega óvini ríkisins og er samþykktur af forseta Bandaríkjanna.

Allir eru velkomnir á sýninguna. Aðgengi fyrir fólk með hreyfihömlun er ágætt en þó eru tveir þröskuldar á leiðinni frá bílaplani og upp á 4. hæð. Aðgengileg salerni eru á 3. hæð.