Skiltasmiðja á menningarnótt

By 16/08/2014 Uncategorized

Samtök hernaðarandstæðinga láta til sín taka á menningarnótt, laugardaginn 23. ágúst og bjóða upp á skiltasmiðju fjölskyldunnar. Þar geta gestir og gangandi mætt og útbúið skilti eftir eigin höfði og fengið leiðsögn sérfræðinga. Jafnframt verður lappað upp á mótmælaspjöld SHA og ný búin til.

 

Kaffihús verður starfrækt í tilefni dagsins með sérstakri Friðarhússblöndu. Allir velkomnir. Dagskráin stendur frá kl. 13-17.