Landsfundur SHA í Friðarhúsi
Friðarhús er í útlani frá 14-20
Samtök herstöðvaandstæðinga hafa sent frá sér eftirfarandi fréttatilkynningu:
.
Klukkan 14 í dag, föstudag, munu fulltrúar Samtaka herstöðvaandstæðinga mæta á fund Sýslumannsins í Reykjavík, Skógarhlíð 6, til að fara fram á lögbann á för íslenskra ráðherra á fund Atlantshafsbandalagsins sem haldinn verður í Riga í næstu viku.
Ætla má að á ráðherrafundi þessum verði rætt um skipulag hernaðaraðgerða NATO í Afghanistan, en það er rökstutt mat SHA að hernaðurinn þar í landi stangist á við alþjóðlega sáttmála sem Ísland hefur undirgengist og undirstöðu almennra mannréttinda, réttinn til lífs, sem tryggður er í íslensku stjórnarskránni.
Lögbannsbeiðnin er rökstudd með vísunum í alþjóðlega mannréttindasáttmála, íslensk lög, dómafordæmi frá hinum Norðurlöndunum og álitsgerð virtra mannréttindasamtaka. Það er von SHA að orðið verði greiðlega við þessari beiðni og þannig komið í veg fyrir þátttöku íslenskra ráðamanna í fundi þar sem ætla má að lagt verði á ráðin um lögbrot
Lögbannsbeiðni (pdf skjal)
Fjáröflunarmálsverðir Friðarhúss hafa verið síðasta eða næstsíðasta föstudag í mánuði, en vakin er athygli á að svo er ekki að þessu sinni. Vegna landsfundar SHA n.k. sunnudag, hefur málsverðurinn verið færður til og verður haldinn að kvöldi fullveldisdagsins, 1. desember.
Um verður að ræða glæsilegt jólahlaðborð, en matseðillinn er á þessa leið:
Heimalöguð sænsk jólaskinka með karöflusalti, gulrótar-appelsínusalati og sinnepssósu
Heimagerð lifrakæfa (verður borin fram heit)
og heimagert rúgbrauð að hætti Systu
Karrýsíld
Bananasíld
Listakonan Alexandra Kjuregej mun koma fram á skemmtuninni. Merkið því við 1. desember á dagatalinu.
Recent Comments