Breytt tímasetning málsverðar

By 24/11/2006 Uncategorized

Fjáröflunarmálsverðir Friðarhúss hafa verið síðasta eða næstsíðasta föstudag í mánuði, en vakin er athygli á að svo er ekki að þessu sinni. Vegna landsfundar SHA n.k. sunnudag, hefur málsverðurinn verið færður til og verður haldinn að kvöldi fullveldisdagsins, 1. desember.

Um verður að ræða glæsilegt jólahlaðborð, en matseðillinn er á þessa leið:

Heimalöguð sænsk jólaskinka með karöflusalti, gulrótar-appelsínusalati og sinnepssósu
Heimagerð lifrakæfa (verður borin fram heit)
og heimagert rúgbrauð að hætti Systu
Karrýsíld
Bananasíld

Listakonan Alexandra Kjuregej mun koma fram á skemmtuninni. Merkið því við 1. desember á dagatalinu.