Skip to main content

Ályktanir um friðargæslu & vopnaflutninga

By Uncategorized

Miðnefnd SHA hefur sent frá sér eftirfarandi ályktanir:

Samtök hernaðarandstæðinga fagna yfirlýsingu utanríkisráðherra þess efnis að íslenskir friðargæsluliðar muni eftirleiðis ekki bera vopn við störf sín. Ákvörðun þessi er mikið heillaspor og getur stuðlað að því að Íslendingar muni í framtíðinni koma að meira gagni á stríðshrjáðum svæðum jarðar en nú er.
Samtök hernaðarandstæðinga hafa um langt árabil gagnrýnt þá hervæðingu sem átt hefur sér stað á vettvangi íslensku friðargæslunnar í utanríkisráðherratíð þeirra Halldórs Ásgrímssonar, Davíðs Oddssonar og Geirs H. Haarde. Byrjað var að sveigja frá þessari stefnu í tíð Valgerðar Sverrisdóttur og nú hefur utanríkisráðherra stigið mikilvægt skref.
Betur má þó ef duga skal. Brýnt er að stefna Íslands í málefnum friðargæslu verði tekin til gagngerrar endurskoðunar, með það að markmiði að framlag Íslendinga verði til að stuðla að friðsælli og öruggari veröld. Þannig eiga Íslendingar fremur að starfa á vettvangi friðargæslusveita Sameinuðu þjóðanna en að taka þátt í verkefnum hernaðarbandalagsins Nató.

* * *

Samtök hernaðarandstæðinga lýsa vonbrigðum sínum vegna fregna af vopnaflutningum íslenska flugfélagsins Icelandair til Georgíu. Samtökin hvetja Icelandair og önnur íslensk fyrirtæki til að setja sér siðareglur, þar sem allri aðild að hernaði, þar með talið flutningum og meðferð vopna og vígtóla, er hafnað. Málatilbúnaður talsmanns flugfélagsins þess efnis að einhverju máli skipti í þessu samhengi að byssurnar og skotfærin hafi ekki verið um borð í sömu flugvél dæmir sig sjálfur.

Sjálfstæði Suður-Ossetíu, hagsmunir heimsveldanna og hlutverk NATO

By Uncategorized

Samræmi og samfella í stefnu stórveldanna markast einungis af hagsmunum þeirra. Þessa vegna hafna Bandaríkin sjálfstæði Suður-Ossetíu en tryggja sjálfstæði Kósovo, og þess vegna hafnar Rússland sjálfstæði Tsjetsjeníu og Kósovo en viðurkennir sjálfstæði Suður-Ossetíu og Abkasíu. Heimsvaldastefna Rússlands er hvorki betri né verri en heimsvaldastefna Bandaríkjanna eða Vesturveldanna. Rússland er bara veikara. En það eru Bandaríkin og NATO sem bera meginábyrgðina á þeirri spennu, sem hefur farið vaxandi að undanförnu, með því að þrengja stöðugt að Rússlandi með útvíkkun NATO, bandarískum herstöðvum og hernaðarsamstarfi Bandaríkjanna við nágrannaríki Rússlands, með uppsögn ABM-sáttmálans um takmörkun gagnflaugakerfa og í kjölfar þess uppsetningu gagnflaugakerfis með stöðvum í Tékklandi og Póllandi.

Með hruni Sovétríkjanna og hins kommúníska skipulags austantjaldsríkjanna kringum 1990 vonuðust margir til að þar með losnaði um spennu kalda stríðsins. En gróðahagsmunir auðvaldsins og heimsveldahagsmunir stórveldanna taka ekki tillit til hagsmuna eða friðarvona alþýðu. Í stað þess að leggja NATO niður var það nú eflt og beitt markvisst við að festa í sessi hina nýju heimsskipun sem Bandaríkin boðuðu. Gamla stórveldið Rússland reyndi að halda sjálfstæði sínu og áhrifum en Bandaríkin og NATO flýttu sér að tryggja áhrif sín til austurs og á olíuauðugum svæðum Mið- og Suðvestur-Asíu meðan Rússland var enn veikt eftir umskiptin. Serbía óhlýðnaðist Vesturveldunum eftir upplausn Júgóslavíu og ofbeldi Serba í Kósovo var ýkt hæfilega og notað sem átylla til loftárása. Kósovo var sett undir stjórn NATO og Bandaríkin settu þar upp stóra herstöð, Camp Bondsteel. Síðan var sjálfstæði héraðsins viðurkennt gegn vilja Serbíu og Rússlands. Þegar á allt er litið eru jafnsterk rök fyrir að viðurkenna sjálfstæði Suður-Ossetíu og Kósovo – eða hvort tveggja jafnvafasamt eins og að því er staðið. En meginreglan á að vera að sjálfsákvörðunarrétt þjóða ber að virða eftir því sem hægt er í flókinni veröld.

Athafnir stórveldanna helgast ekki af hagsmunum alþýðunnar. Þeir eru einungis notaðir sem átylla þegar hentar. Átökin í Georgíu nú í ágúst verða ekki slitin úr samhengi við þá spennu sem vaxandi áhrif Bandaríkjanna og NATO í Úkraínu og Georgíu hafa valdið. Í þessum átökum voru íbúar Georgíu og Suður-Ossetíu einungis fórnarlömb. Stjórn Georgíu beitti bandarískum og ísraelskum vopnum til að ráðast inn í Suður-Ossetíu með tilheyrandi eyðileggingu og limlestingum og dauða óbreyttra borgara. Og Rússar spöruðu ekki heldur líf óbreyttra borgara í viðleitni sinni við að verja stórveldishagsmuni sína með innrás í Georgíu. Það er ekki heldur auðvelt að styðja stjórn Suður-Ossetíu, sem að sögn hefur stutt sig við glæpagengi rétt eins og núverandi forseti hins nýfrjálsa Kósovo. Stórveldin eru ekki vönd að vinum.

Í þessu valdatafli stórveldanna, þar sem alþýðan er alltaf fórnarlambið, skipar NATO mikilvægt hlutverk. Í apríl á næsta ári fyllir það sjötta áratuginn. Þessi sextíu ár eru nóg. Nú er kominn tími til að leysa upp öll hernaðarbandalög. Hernaðarbandalög eru ekki til annars en viðhalda köldu stríði – og kalt stríð getur alltaf tekið upp á því að hitna.

Einar Ólafsson

Misminni utanríkisráðherra

By Uncategorized

Í Kastljósi Sjónvarps, mánudagskvöldið 25. ágúst, sat Ingibjörg Sólrún Gísladóttir utanríkisráðherra fyrir svörum. Meðal þess sem hún var spurð um, var gagneldflaugakerfi það sem Bandaríkjastjórn vinnur nú að uppsetningu á í Póllandi og Tékklandi.

Á ráðherra mátti skilja að um væri að ræða einkamál stjórnvalda í Bandaríkjunum annars vegar en Póllands og Tékklands hins vegar. Aðspurð um það hvort málið hefði ekki verið rætt á vettvangi Nató, sagði ráðherra svo ekki vera – og lét í það skína að ef til slíkra umræðna kæmi, myndu Íslendingar lýsa efasemdum.

Í sjálfu sér er ástæða til að fagna þeim sinnaskiptum stjórnvalda, en gögn málsins sýna þó að hér fer utanríkisráðherra með rangt mál.

Ályktun ráðherrafundar Nató í Búkarest má lesa hér. Þar segir: “Ballistic missile proliferation poses an increasing threat to Allies’ forces, territory and populations.  Missile defence forms part of a broader response to counter this threat.  We therefore recognise the substantial contribution to the protection of Allies from long-range ballistic missiles to be provided by the planned deployment of European-based United States missile defence assets.”

Þessi klausa ályktunarinnar vakti á sínum tíma mikla athygli og var m.a. gagnrýnd á þessum vettvangi. Því miður virðast íslenskir ráðamenn hins vegar hafa verið steinsofandi á fundinum í Búkarest og verða nú að horfast í augu við sínar eigin samþykktir.

Bandaríkin hafa komið sér fyrir

By Uncategorized

eftir Peter M. Johansen

Þessi grein birtist 18. ágúst í vefritinu Eggin, sem full ástæða er til að benda lesendum Friðavefjarins á.

Herflugvélar frá Bandaríkjunum færa Georgíu hjálpargögn. Eru vopn með í farteskinu?

Hálfum sólarhring eftir að fyrsta bandaríska herflugvélin lenti í Tbilisi með hjálpargögn hóf rússneski herinn brottför sína frá Gori að Suður-Ossetíu. Í dag (15. ágúst) lendir utanríkisráðherra Bandaríkjanna, Condoleezza Rice með töskuna fulla af aðvörunum til Moskvu um að Rússland verði einangrað á alþjóðavísu ef Kreml „uppfyllir ekki allar skuldbindingar sínar og hættir öllum hernaðaraðgerðum í Georgíu.”

– Þetta er ekki 1968, sagði hún og vísaði þar til innrásar Sovétríkjanna í Tékkoslóvakíu fyrir 40 árum síðan.

Aðstoðarforsætisráðherra (og fyrrum varnarmálaráðherra) Sergej Ivanov lagði í viðtali við BBC alla ábyrgð á hendur forseta Georgíu, Mikhail Saakasjvili. Samkvæmt Reuters heldur utanríkisráðherrann, Sergej Lavrov, því fram að Bandaríkin verði að velja á milli samstarfs við Moskvu eða stjórn Georgíu.

Í Moskvu spyrja menn sig hvað Bandaríkin hafa eiginlega með í sendingunum til Tbilisi.

Sambandið við Nató

Sendiherra Rússlands við Nató, Dmitrij Rogozin, telur að viðbrögðin við einhliða fordæmingu Nató af „yfirdrifinni valdsbeitingu” Rússlands muni breyta sambandi Moskvu við Nató.

– Samband okkar við bandalagið getur ekki annað en breyst eftir að Jaap de Hoop Scheffer [aðalritari Nató] sagði ekki eitt orð um fórnarlömb árásarinnar sem Georgía hóf, sagði Rogozin í rússnesku sjónvarpsstöðinni NTV.

Herflugvélasveitir Rússa, Ivanovo og Pskov, hafa átt í beinum hernaði við georgískar sveitir en þær hafa fengið þjálfun frá Bandaríkjunum, Nató og Ísrael. Rogozin fór nærri því að saka „framfærsluaðilana“, Bandaríkin og Nató, um að hafa gefið Saakasjvili samþykki fyrir hernaðaraðgerðum gegn Suður-Ossetíu, „þá sem hann átti í samningsviðræðum við til að komast í Nató“ á meðan kastljós fjölmiðla beindist að opnunarathöfn á ólympíuleikanna í Peking [en innrás Georgíu í Suður Ossetíu átti sér stað þá] samkvæmt fréttastofunni RIA Novosti.

Heræfingin „Immediate Response“ á milli 800 georgískra og 1200 Bandarískra hermanna á fyrrum sovéska herflugvélastöðinni Vaziani fyrir utan Tbilisi um miðjan júlí gæti hafa verið síðasta endurtekningin á æfingu fyrir þær hernaðaraðgerðir. Saakasjvili hvatti til æfingarinnar. Um leið hélt Rússland ævingu í Norður-Ossetíu, sem gefur vísbendingar um að yfirvöld í Kreml hafi fundið að eitthvað væri í aðsigi, enda hefðu þau vitað um vopnaflutningana til Georgíu.

7. ágúst greindi fréttastofan Interfax frá því að Georgía hafi meðal annars fengið í hendur „206 stríðsökutæki, þar af 175 frá Nató-ríkjum, 186 brynvarða bíla (126 frá Nató), 79 þungavopn (67 frá Nató), 25 þyrlur (tólf frá Nató) (…) tvö loftvarnarkerfi“. Varnarmálaráðuneytið í Moskvu vísaði til samninga um sendingar af 25 þyrlum (þar af 15 Black Hawk), sex loftvarnarkerfi og 145 brynvarða herbíla. Georgía hefur fengið fjarstýrð hertæki.

Á laugardaginn hélt talsmaður varnarmálaráðuneytis Bandaríkjanna, Bryan Whitman, því fram að Bandaríkin hefðu ekki „áform um að færa til þá 130 hermenn og borgaralegu verktaka [málaliðar í einkareknum hersveitum] sem hann sagði að væru staðsettir á svæðunum í kringum Tbilisi“, samkvæmt AFP. Herstöðvarnar í Senakskaja og Gori hafa verið endurbættar að „Nató staðlinum“ samvkæmt RIA Novosti (maí 2006). Þetta er árangur samstarfsverkefnisins GUUAM sem Georgía gekk í með Nató í apríl 1999 ásamt Úkraínu, Úsbekistan, Aserbajdsjan og Moldóvu.

Rússland yfirgaf sínar síðustu herstöðvar í Batumi og Akhalkalaki eftir samning við Georgíu sem var undirritaður 31. maí 2006. Afturhvarfið frá Batumi var fært til fullnustu í júlí, einni viku áður en heræfingar Bandaríkjanna hófust.

Vopn frá Ísrael

Ísrael hefur selt Georgíu vopn og herþjálfun fyrir hundruðir milljóna dala síðan 2000. Þetta var í samstarfi við og viðbót við Bandaríkin/Nató í líkingu við þau sem Ísrael hefur náð í Mið-Ameríku og Kólumbíu og einnig með stuðningi við Suður Afríku í stríðunum gegn Namibíu og Angóla. Tvíhliða hernaðarsamningur var undirritaður 1999 milli þáverandi forseta Georgíu, Eduard Sjevardnadse og þáverandi forsætisráðherra Ísraels, Binyamin Netanyahu.

Viðskiptin voru meðal annars í höndum vopnafyrirtækjanna Elbit og Rafael. Eftirlitsþjónustufyrirtækið Shin Bet á þátt í þjálfuninni, sem meðal annars tekur til hús-til-húss aðgerða eins og þeirra sem voru háar í Tskhinvali – sú reynsla var meðal annars fengin úr Jenín flóttamannabúðunum á Vesturbakkanum.

Varnarmálaráðherra Georgíu, Davit Kezerasjvili, sem áður var ísraelskur ríkisborgari, hefur góð tengsl við vopnasölumanninn Roni Milo (borgarstjóri í Tel Aviv 1993-98) og fleiri hershöfðingja sem hafa snúið sér að vopnaviðskiptum. Milligöngumaður er aðstoðarhershöfðinginn Gal Hirsch sem lét flytja hersveitir á meðan stríðinu við Líbanon stóð 2006, samvkæmt ísraelska dagblaðinu Ha’aretz.

Georgía hefur fengið „nokkurt magn öflugra vopna efir uppfærsluna af Su-25 árásarflugvéla- og stórskotakerfisins frá Ísrael“, tjáði georgíska fréttaþjónustan Rezonansi s.l. miðvikudag. Rússneskar flugvélar gerðu árás á árásarflugvélaverskmiðjuna sem uppfærði Sukhoi-flugvélarnar, við útjaðar Tbilisi, tjáði CTV á sunnudag.

Leiguherforingjar

Strax eftir árás Georgíu höfðu ísraelsku ráðgjafarnir samband við georgíska herforingja til að fá upplýsingar um það hvort þeir hefðu “tekið ísraelsku hertæknina í notkun og hovrt hinar sérþjálfuðu hersveitir gætu sagt hvernig gengi“, stóð skrifað í Ha’aretz á mánudag þar sem fram kom að „eftirlaunaherforingjunum sem þjálfuðu hersveitir Georgíu komu stríðið við Rússland ekki á óvart“.

Georgísk stjórnvöld hafa ekki dregið dul á stuðning Ísraels. Endurbyggingarráðherrann Temur Iakobasjvili, sem samkvæmt Ha’aretz er gyðingur, sagði í útvarpi ísraelska hersins á mánudag að „Ísrael getur verið stolt af her sínum sem hefur þjálfað georgíska hermenn.“ Sama dag beindu ísraelsk stjórnvöld sendiherra Georgíu í Tel Aviv til Wasington eftir að hann kvatti Ísrael til að leggja diplómatískan þrýsting á Moskvu, eins og fram kom í Jerusalem Post á mánudag.

Olía og vopn

Eftir 11. september 2001 hefur ísraelskur vopnaiðnaður, þar með talið sá sem tekur til eftirlitskerfa sem þróuð voru á landsvæðum Palestínumanna, tekið stórt stökk í tekjuöflun. Sambandið við Georgíu og Kákasussvæðiðtengist um leið fleiri hagsmunum sem eru í samhengi við samninga við Bandaríkin og Nató og einnig við hernaðarsamningana við Bandaríkin og Tyrkland.

Ísrael hefur hagsmuni í BTC-leiðslunni (Baku-Tbilisi-Ceyhan olíuleiðslunni), sem er í eigu BP, en Statoil á 8,1 prósent hlut í þeirri samsteypu.

– Samkvæmt Moskvu-blaðinu Karezat (14. júlí 2006) hefur Washington í rauninni myndað nýja tengslablokk við Aserbajdsjan, Georgíu, Tyrkland og Ísrael með því að hafa fært olíuleiðsluna til Miðjarðarhafsins. Meira en 20 prósent af olíuinnflutningi Ísraels kemur þegar frá Aserbajdsjan. Til eru áætlanir um að lengja leiðsluna frá Ceyhan til ísraelsku hafnborgarinnar Ashkelon, en í henni er stærsta olíuhreinsunarstöð ríkisins, annað hvort með tankaflutningum eða olíuleiðslu (meira en 400 kílómetra langa) yfir Miðjarðarhafið svo hægt sé að flytja það áfram á Asíumarkaðinn í gengum olíuleiðslur sem þegar eru til frá Eiliat í Rauðahafinu (Tipline). Þetta kom fram í Jerusalem Post. Mögulegur kaupandi er Indland, sem kaupir í dag mikið magn vopna frá Ísrael.

(Grein þessi birtist föstudaginn 15. ágúst í dagblaðinu Klassekampen í Noregi. Þýð: JKS).