Skip to main content

Össur ginnkeyptur

By Uncategorized

finnurgudmundarsonolgusoneftir Finn Guðmundarson Olguson

Birtist í Fréttablaðinu 1. des. 2010

Össur Skarphéðinsson, utanríkisráðherra, ritaði bréf í Fréttablaðið sem birtist þann 23. nóvember síðastliðinn. Titill bréfsins var „Heimssögulegur fundur í Lissabon” og fjallaði um leiðtogafund Atlantshafsbandalagsins (NATO) í Portúgal. Össur lætur í veðri vaka að það sé ákvörðun rússneskra stjórnvalda að taka höndum saman við NATO í ýmsum verkefnum sem séu „söguleg” og er á honum að skilja að þetta sé af einhverjum ástæðum jákvætt skref í átt til friðsælli heims. Röksemdir sem styðja viðhorf ráðherra eru samt sem áður víðsfjarri og þær sem hann þó býður upp á afskaplega veikar.

Svo virðist vera að Össur hafi reynst ginnkeyptur gagnvart linnulausum áróðri NATO fyrir því að samtökin séu þrátt fyrir allt friðarsamtök; þau stefni að friðsömum heimi með því að skapa valdajafnvægi milli sterkustu herja heims og með því að bregðast við ógnum við evrópskan og norður-amerískan frið. Þessi söngur getur þó á engan hátt talist „heimssöguleg” nýjung heldur hefur bandalagið hamrað á þessum áróðri síðan á tíunda áratug síðustu aldar þegar það virðist hafa séð sér hag í því að taka upp mildari ímynd opinberlega en hafði mátt skilja á fyrri stefnu.

Þessu var aðallega hrint í framkvæmd árið 1991 með nýrri grunnstefnu (Strategic Concept) sem var í fyrsta sinn í sögu bandalagsins gerð opinber og þar sem orðum á borð við „friður”, „mannréttindi” og „samvinna” var stráð um allt. Óopinberum skjölum um hvernig í raun skal framfylgja þessari stefnu með hernaðarmætti var þó að venju haldið frá augum almennings og er enn. Ný grunnstefna, sem hafði mörg sömu „friðsömu” markmið, var samþykkt í apríl 1999, á sama tíma og NATO stóð að loftárásum á Kosovo sem leiddu til mikils mannfalls almennra borgara. Getur hver dæmt fyrir sig hversu friðsamlega var að málum staðið þar.

Nú hefur Össur Skarphéðinsson gleypt hina nýju, „nýju grunnstefnu” að því er virðist gagnrýnislaust; skjal sem er ætlað að réttlæta á enn frumlegri hátt en áður stefnu máttugasta hernaðarbandalags veraldar. Ráðherra sér ástæðu til að gleðjast yfir að nú hafi Rússar verið fengnir með í leikinn, en samstaða NATO og rússneskra stjórnvalda virðist kristallast í sameiginlegum ótta þeirra við hryðjuverkamenn. Nicolas Sarkozy, forseti Frakklands, „kvað skýrt að orði” samkvæmt Össuri og „sagði að mesta sameiginlega ógnin við Rússland og þjóðir Atlantshafsbandalagsins stafaði af framferði ofbeldisfullra múslímskra öfgasamtaka”.

Finnst Össuri Skarphéðinssyni það í raun og veru vænlegt að forseti Frakklands, sem hefur nýlega staðið fyrir rasískum aðgerðum gegn sígaunum í sínu eigin landi, og rússnesk stjórnvöld, sem hafa drepið og ógnað hverjum þeim sem þorir að tjá sig gegn þeim, hafi nú tekið höndum saman gegn „óvini” sem er svo vítt skilgreindur að undir hugtakið getur fallið allt frá umhverfisverndarsinna til sjálfsmorðsárásarmanneskju?

Er ráðherra ekki að fallast nokkuð auðveldlega á röksemdir stjórnvalda sem hafa sannað trekk í trekk að mesta ógnin við öryggi þegna þeirra eru ekki hryðjuverk heldur þau sjálf? Er líklegt að manneskjum sem ofsækja minnihlutahópa í sínu eigin landi farist það vel úr hendi að tryggja öryggi og frið í víðara samhengi? Ég spyr í von um svar.

Atlantshafsbandalagið er og verður alltaf hernaðarbandalag sem byggist á ofbeldi og valdbeitingu. Æðstu ráðamönnum innan þess er ekki treystandi til annars en að tryggja eigið öryggi og hagsmunaaðila tengdum þeim með því að bæla niður gagnrýni með skerðingu á tjáningarfrelsi almennra borgara, beinu ofbeldi gagnvart mótmælendum og hótunum gegn pólitískum andstæðingum sínum. Síðast en ekki síst er það alltaf vítavert ofbeldi og kúgun þegar manneskjur telja sig geta talað fyrir munn annarra og Össur Skarphéðinsson ætti að hafa það í huga næst þegar hann sýpur á kampavíni með hinum fáu útvöldu að þær ákvarðanir og skoðanir sem þar koma fram eru ekki að neinu leyti skoðanir „hinnar frönsku þjóðar” né „hinnar bandarísku þjóðar” né „hinnar íslensku þjóðar”.

Þær eru ákvarðanir og skoðanir forréttindapakks sem telur sig svo vel af guði gert að það geti með pennastriki ráðið úrslitum um líf eða dauða heilu þjóðanna.

Utanríkisstefna óskhyggjunnar

By Uncategorized

sverrirjakobssoneftir Sverri Jakobsson

Birtist í Fréttablaðinu 30. nóv. 2010

Núverandi ríkisstjórn hefur að ýmsu leyti sérstöðu á sviði utanríkismála enda stjórnarflokkarnir með mjög ólíka stefnu í þeim málaflokki. Þetta hefur verið áberandi í tengslum við Evrópusambandið og aðildar­umsókn Íslands að því. Þetta á ekki síður við varðandi afstöðuna til NATO.

Samfylkingin styður aðild að þessu hernaðarbandalagi og reiðir sig þar á stuðning stjórnarandstöðuflokkanna, einkum Sjálfstæðisflokks og Framsóknar­flokks.

Þessi stefna er afleiðing seinustu kosningaúrslita og það er ekkert óeðlilegt að flokkar sem eru ósammála í þessu máli komi sér saman um að mynda ríkisstjórn til að koma fram öðrum málum. Finna má dæmi um þetta frá ýmsum öðrum ríkjum, t.d. Danmörku, þar sem utanríkispólitíski meirihlutinn var annar en ríkisstjórnarmeirihlutinn á níunda áratugnum. Á hinn bóginn er engin ástæða til að breiða yfir þennan ágreining eða láta eins og hann sé ekki til. Viðleitni til þess má finna í skrifum forsætis­ráðherra og utanríkisráðherra að undanförnu. Þar reyna þau að gera NATO aðlaðandi í augum friðarsinna með því að gefa til kynna að bandalagið hafi breyst. Nánari athugun á málavöxtum styður hins vegar ekki þá skoðun.

Það er rétt að eftir að hann var kjörinn Bandaríkjaforseti gaf Barack Obama til kynna að hann hygðist breyta verulega um stefnu varðandi vígbúnað og afvopnun. Stærsta breytingin var sú að Bandaríkin hafa nú gert kjarnorkuafvopnun að lokamarkmiði sínu. Fyrir yfirlýsingar sínar í þessum málum fékk Obama friðarverðlaun Nóbels 2009. Sú viðurkenning var þó of snemmbær. NATO-fundurinn á dögunum samþykkti stefnu sem er í meginatriðum sú sama og var ákvörðuð á svipuðum fundi 2008, þegar George W. Bush var Bandaríkjaforseti. Sérstaklega er eftirtektarvert að ekki skuli hróflað við kjarnorkustefnu bandalagsins.

Ef mark væri takandi á yfirlýsingum Obamas um kjarnorku­afvopnun hefði NATO getað stigið ýmis skref í átt að kjarnorkuafvopnun. Í fyrsta lagi með því að falla frá núverandi stefnu sem felur í sér að bandalagið áskilur sér rétt til að beita kjarnorkuvopnum að fyrra bragði. Það gerðist ekki heldur rígheldur NATO í þá stefnu. Þetta gerir það að verkum að eldflaugavarnakerfi sem bandalagið kemur sér upp verður ekki skilgreint öðruvísi heldur en sem árásarkerfi.

Með þessu kerfi kemur bandalagið sér upp aðstöðu til að gera kjarnorkuárásir á önnur lönd án þess að þurfa að óttast gagnárás. Slíkt er ögrun við öll kjarnorkuveldi sem standa utan þessa samkomulags, þ.á m. Kína, Indland og Pakistan. Það felur einnig í sér aukna hótun um árás á hvert það ríki sem Bandaríkin ákveða að skilgreina sem óvinaríki hverju sinni, óháð því hvort það hafi yfir kjarnorkuvopnum að ráða eða ekki. Eina breytingin á fyrri samþykktum um eldflaugavarnir er aukið samráð við Rússland. Í því felst þó afar lítið framfaraspor því að eftir sem áður mynda slíkar eldflaugavarnir ógn við öll ríki þriðja heimsins og þar af leiðandi mikinn meirihluta jarðarbúa.

Í öðru lagi hefði bandalagið lagt eitthvað að mörkum til að draga úr útbreiðslu kjarnorkuvopna, með því að flytja bandarísk kjarnorkuvopn frá Þýskalandi, Ítalíu, Hollandi, Belgíu og Tyrklandi. Engin slík ákvörðun var þó tekin. Í því ljósi eru yfirlýsingar um andstöðu við útbreiðslu kjarnorkuvopna markleysa. Í þeim felst ekki annað en að Bandaríkin vilja taka sér einokunarrétt á því að breiða út kjarnorkuvopn.

Í þriðja lagi gætu NATO-ríkin hafa tekið ákvörðun um að styðja framvegis við bakið á einni af þeim tillögum sem reglulega koma fyrir allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna, um að ríkjum heimsins beri að ná samkomulagi um að banna hvers konar framleiðslu og meðferð kjarnorkuvopna, ekki síst beitingu kjarnorkuvopna eða hótun um að beita þeim. Jafnframt beri að útrýma slíkum vopnum hið bráðasta. Hingað til hafa NATO-ríkin, ásamt Rússlandi, tilheyrt fámennum minnihlutahópi ríkja sem standa gegn slíkum tillögum.

Ástæða væri til þess að fagna ef NATO-ríki tækju skref til þess að vinna að friði í heiminum í stað þess að vera ein helsta ógnin við hann. En það er ekki nóg að tala um að þjóðir vilji frið og afvopnun þegar þær eru ekki reiðubúnar að stíga örsmá skref í þá átt. Hvað varðar „friðarbandalagið” NATO þá hefur bilið á milli orða og athafna aldrei verið breiðara.

19 stjórnlagaþingmenn hlynntir ákvæði um kjarnorkuvopnalaust Ísland

By Uncategorized

kjarnneiEitt þeirra atriða sem frambjóðendur til stjórnlagaþings gátu tekið afstöðu til í spurningalista DV, sem þeim stóð til boða fyrir kosningarnar, fólst í þessari spurningu: „Ertu hlynnt(ur) eða andvíg(ur) því að stjórnarskrá kveði á um að Ísland verði ávallt kjarnorkuvopnalaust land?“

Það er áhugavert fyrir okkur, sem lengi höfum barist fyrir kjarnorkuvopnalausu Íslandi, að skoða svör þeirra frambjóðenda, sem náðu kjöri:

Mjög hlynnt(ur) (14):

    Andrés Magnússon
    Arnfríður Guðmundsdóttir
    Ástrós Gunnlaugsdóttir
    Eiríkur Bergmann Einarsson
    Erlingur Sigurðarson
    Freyja Haraldsdóttir
    Illugi Jökulsson
    Katrín Fjeldsted
    Katrín Oddsdóttir
    Lýður Árnason
    Ómar Þorfinnur Ragnarsson
    Silja Bára Ómarsdóttir
    Þórhildur Þorleifsdóttir
    Örn Bárður Jónsson

Frekar hlynnt(ur) (5):

    Dögg Harðardóttir
    Gísli Tryggvason
    Salvör Nordal
    Vilhjálmur Þorsteinsson
    Þorkell Helgason

Mjög andvíg(ur) (1):

    Pawel Bartoszek

Vil ekki svara (3):

    Ari Teitsson
    Inga Lind Karlsdóttir
    Þorvaldur Gylfason

Svaraði ekki DV (2)

    Guðmundur Gunnarsson
    Pétur Gunnlaugsson

Þess má geta að af öllum þeim frambjóðendum sem svöruðu spurningum DV voru 11% frekar hlynntir og 71% mjög hlynntir því að slíkt ákvæði yrði sett í stjórnarskrá, samtals 82%. 3% voru frekar andvígir, 2% mjög, samtals 5%. Aðrir ýmist svöruðu ekki spurningunni eða voru hlutlausir. Hlutföll meðal almennings sem svaraði spurningum DV voru svipuð.

Sjá nánar: http://www.dv.is/stjornlagathing/nidurstodur/

Höfnum hernaðarstarfsemi og heræfingum á Íslandi

By Uncategorized

Landsráðstefna Samtaka hernaðarandstæðinga, haldin 24. nóvember 2010, krefst þess að herstöðvasamningi Íslands við Bandaríkin verði formlega sagt upp. Fundurinn fagnar því að ákvörðun hafi verið tekin um að leggja niður Varnarmálastofnun. SHA mótmæltu því harðlega á sínum tíma að stofnunin væri sett á legg.

Ekki er þó mikið unnið með lokun stofnunarinnar ef verkefni hennar öðlast framhaldslíf á öðrum stöðum innan stjórnkerfisins. Þannig er fráleitt að Íslendingar komi að rekstri radarkerfa í hernaðartilgangi og veiti hér Nató-flugherjum æfingaraðstöðu í nafni loftrýmiseftirlits. Þá mótmæla SHA því harðlega að til standi að halda Nató-heræfinguna Norðurvíking hér á landi á árinu 2011.

SHA hvetja ríkisstjórn Íslands til að sýna þann metnað að úthýsa með öllu heræfingum og annarri hernaðarstarfsemi. Þar með talið eru vitaskuld hinar fráleitu hugmyndir um að heimila hollensku málaliðafyrirtæki að koma sveit einkaorrustuþota fyrir á Keflavíkurlugvelli. Mál E.C.A. hefur velkst nógu lengi í stjórnkerfinu. Löngu er komin tími til að málið verði endanlega slegið út af borðinu.