Skip to main content

Friðlýsingu, tafarlaust!

By Uncategorized

Landsráðstefna Samtaka hernaðarandstæðinga, haldin 24. nóvember 2010, hvetur ríkisstjórn Samfylkingar og Vinstri grænna til að standa við gefin loforð í stjórnarsáttmála um að friðlýsa beri Ísland og íslenska lögsögu fyrir umferð og geymslu kjarnorkuvopna.

Langt er síðan SHA hófu baráttu fyrir þessu máli, sem flutt hefur verið oftar á þingi en flest önnur þingmál. Til að styrkja kröfuna, beitu samtökin sér fyrir átaki þar sem íslensk sveitarfélög voru hvött til að friðlýsa yfirráðasvæði sín með þessum hætti. Allur þorri bæja og hreppa á landinu hefur nú orðið við þeirri kröfu.

Hagsmunir Íslands af því að komið verði í veg fyrir ferðir kjarnorkuvæddra farartækja í íslenskri lögsögu eru augljósir og er í því sambandi skemmst að minnast óhapps sem átti sér stað í hafinu fyrir sunnan okkur fyrir tveimur árum þegar tveir kjarnorkukafbátar rákust á.

Þjóðaratkvæði um aðildina að Nató!

By Uncategorized

Landsráðstefna Samtaka hernaðarandstæðinga, haldin 24. nóvember 2010, minnir á þá gömlu kröfu sína að íslensku þjóðinni verði loksins gefinn kostur á að kjósa um aðildina að Nató. Allt frá inngöngunni í bandalagið árið 1949 hafa friðar- og afvopnunarsinnar gert kröfu um að gengið yrði til þjóðaratkvæðagreiðslu um þetta mál, en stuðningsmenn bandalagsins hafa aldrei þorað að ljá máls á slíku.

Margt hefur gerst á liðnum misserum sem áréttar mikilvægi þess að Ísland segi sig úr hernaðarbandalaginu. Siðlaus hernaður Nató í Afganistan hefur staðið í meira en níu ár, en ekki orðið til annars en að auka á hörmungar íbúanna. Upplýsingar sem dregnar hafa verið í dagsljósið sýna ennfremur að Nató-herliðið lætur sig alþjóðalög og mannréttindi engu varða í stríðsrekstri sínum.

Á leiðtogafundum sínum upp á síðkastið hefur Nató sömuleiðis lagt blessun sína yfir áform Bandaríkjastjórnar um uppsetningu gagneldflaugakerfis, sem er skilgetið afkvæmi gamalla áforma Reagan-stjórnarinnar á níunda áratugnum um svokallaða stjörnustríðsáætlun. Með því er stefnt að stórfelldustu vígvæðingaráformum frá lokum kalda stríðsins.

Það er skýlaus krafa SHA að þjóðin fái að kjósa um aðildina að Nató við fyrsta tækifæri.

Ný miðnefnd SHA

By Uncategorized

Ný miðnefnd Samtaka hernaðarandstæðinga fyrir starfsárið 2010-2011 var kjörin á landsráðstefnu hinn 24. nóvember 2010. Hana skipa (aðal- og varamenn):

Auður Lilja Erlingsdóttir
Bergljót Njóla Jakobsdóttir
Elías Jón Guðjónsson

Harpa Stefánsdóttir
Hildur Lilliendahl

Kolbein Óttarsson Proppé
Kolbeinn Hólmar Stefánsson

Sigurður Flosason

Snæbjörn Guðmundsson
Stefán Pálsson (formaður)
Þorvaldur Þorvaldsson

Þórir Hrafn Gunnarsson


Á fundinum voru einnig samþykktar nokkrar ályktanir um friðar- og afvopnunarmál sem betur verða kynntar á næstunni.

Landsfundur SHA – miðvikudag

By Uncategorized

Landsfundur Samtaka hernaðarandstæðinga verður haldinn í Friðarhúsi miðvikudaginn 24. nóvember. Útbýting fundargagna hefst kl. 17:30 og gengið til dagskrár skömmu síðar.

Boðið verður upp á rómaða grænmetissúpu meðan á fundi stendur, svo hungur ætti ekki að standa fundarmönnum fyrir þrifum.

Auk venjulegra aðalfundarstarfa (lagabreytinga, samþykktar reikninga, ályktanna og kjörs stjórnar), verður rætt um friðarmálin og stjórnarskránna. Félagsmenn eru hvattir til að mæta.

Stjórnarskrártillögur SHA og hernaðarandstæðingar meðal frambjóðenda

By Uncategorized

Í ársbyrjun 2005 skipaði forsætisráðherra níu manna nefnd til að endurskoða Stjórnarskrá lýðveldisins Íslands ásamt fjögurra manna sérfræðinganefnd. Samkvæmt vinnuáætlun nefndarinnar var stefnt að því að frumvarp til breytinga á stjórnarskránni lægi fyrir ekki síðar en í árslok 2006. Ekki tókst það þó en í febrúar 2007 skilaði hún áfangaskýrslu þar sem kom meðal annars fram að hún þyrfti lengri tíma til að ljúka þeirri heildarendurskoðun sem að var stefnt.

Nefndin hvatti til víðtækrar umræðu í þjóðfélaginu um stjórnarskrána og breytingar á henni og kallaði eftir erindum frá félagasamtökum og stofnunum. Hún boðaði til ráðstefnu 11. júní 2005 og var félagasamtökum boðið að taka þátt í henni.

Samtök hernaðarandstæðinga (þá herstöðvaandstæðinga) sendu nefndinni tillögur sínar og tóku þátt í ráðstefnunni. Tillögur SHA voru þessar:

    Samtök herstöðvaandstæðinga leggja til að eftirfarandi verði bundið í stjórnarskrá:

    1. að á Íslandi verði aldrei stofnaður her né herskylda leidd í lög.
    2. að Ísland fari aldrei með ófriði á hendur öðrum þjóðum né styðji á nokkurn hátt slíkar aðgerðir annarra ríkja.
    3. að Ísland og íslensk lögsaga verði friðlýst fyrir kjarnorku-, efna- og sýklavopnum eða öðrum þeim vopnum sem flokka má sem gereyðingarvopn.

Í erindi sem fulltrúi SHA hélt á ráðstefnunni var gerð nánari grein fyrir þessum tillögum.

Ritstjórn Friðarvefsins hefur tekið saman lista yfir þá frambjóðendur, sem af einhverjum ástæðum má ætla að séu þessu málefni hliðhollir. Þessir frambjóðendur hafa tilgreint það á einhvern hátt í kynningu sinni eða á öðrum vettvangi, eru félagar í SHA eða eru af öðrum ástæðum líklegir til að leggja þessu máli lið. Hugsanlega ættu fleiri í hópi hinna 522 frambjóðenda að vera á þessum lista og þeir geta, ef þeir vilja sjá nafn sitt á þessum lista, haft samband við ritstjóra Friðarvefsins gegnum netfangið einarol@centrum.is.

Andrés Magnússon 6747
Anna Kristín Kristjánsdóttir 9068
Ágúst Már Garðarson 7275
Árni Björnsson 6736
Ásgeir Beinteinsson 2897
Benedikt Þorri Sigurjónsson 2248
Birna Þórðardóttir 4921
Björgvin Rúnar Leifsson 4943
Borgþór S. Kærnested 3062
Bragi Skaftason 6923
Bryan Allen Smith III 8936
Brynjar Gunnarsson 9519
Einar Magnús Einarsson 3161
Elías Halldór Ágústsson 9904
Elín Hilmarsdóttir 9849
Erlingur Sigurðarson 9431
Eva Sigurbjörnsdóttir 2754
Friðrik Þór Guðmundsson 7814
Geir Matti Järvelä 6912
Gísli Már Gíslason 4327
Gísli Tryggvason 3249
Gísli Þór Sigurdórsson 6142
Greta Ósk Óskarsdóttir 3018
Guðni Karl Harðarson 7396
Gunnar Grímsson 5878
Halldóra K. Thoroddsen 9673
Haukur Már Haraldsson 7902
Hjalti Hugason 7132
Hjálmtýr V. Heiðdal 9376
Hjörtur Smárason 9618
Hlín Agnarsdóttir 6109
Iðunn Guðjónsdóttir 9794
Illugi Jökulsson 9948
Íris Arnlaugsdóttir 8859
Jakobína Ingunn Ólafsdóttir 7319
Jan Eric Jessen 7165
Jóhann Hjalti Þorsteinsson 2149
Jónas Kristjánsson 9915
Katrín Fjeldsted 7715
Kjartan Ragnarsson 3667
Kristbjörn Helgi Björnsson 4536
Lárus Jón Guðmundsson 8672
Magnea J. Matthíasdóttir 7682
Marín Rós Tumadóttir 3931
Máni Arnarson 5834
Ólafur Hannibalsson 2259
Óli Gneisti Sóleyjarson 4283
Ragnhildur Sigurðardóttir 6692
Ragnhildur Vigfúsdóttir 8089
Rakel Sigurgeirsdóttir 3865
Róbert Hlynur Baldursson 7627
Rósa Guðrún Erlingsdóttir 8485
Sigríður Ólafsdóttir 3139
Sigurður Grétar Guðmundsson 4976
Sigurður Guðmundur Tómasson 6205
Sigurður Hólm Gunnarsson 3436
Sigvarður Ari Huldarsson 9189
Silja Bára Ómarsdóttir 4987
Silja Ingólfsdóttir 2963
Smári McCarthy 3568
Soffía Sigurðardóttir 9178
Stefán Gíslason 2072
Stefán Pálsson 4954
Svavar Kjarrval Lúthersson 5086
Tryggvi Gíslason 6428
Vigfús Andrésson 5471
Þórir Steingrímsson 3469

Hátíðarmatseðillinn

By Uncategorized

Hið víðfræga jólahlaðborð Friðarhúss verður haldið föstududagskvöldið 26. nóvember n.k. Húsið verður opnað kl. 18:30 en borðhald hefst kl. 19. Matseðillinn er glæsilegur að vanda, en Guðrún Bóasdóttir (Systa) sér um matseldina:

* Heimalöguð sænsk jólaskinka með kartöflusalti, gulrótar appelsínusalati og sinnepssósu
* Heimagerð lifrakæfa (verður borin fram heit) og heimagert rúgbrauð
* Reykt nautatunga með piparrótarrjóma
* Karrýsíld
* Tómatsalsasíld.
* Fyrir þá sem ekki borða kjöt verður hnetusteik.
* Kaffi og smákökur

Verð kr 2000.-