19 stjórnlagaþingmenn hlynntir ákvæði um kjarnorkuvopnalaust Ísland

By 01/12/2010 Uncategorized

kjarnneiEitt þeirra atriða sem frambjóðendur til stjórnlagaþings gátu tekið afstöðu til í spurningalista DV, sem þeim stóð til boða fyrir kosningarnar, fólst í þessari spurningu: „Ertu hlynnt(ur) eða andvíg(ur) því að stjórnarskrá kveði á um að Ísland verði ávallt kjarnorkuvopnalaust land?“

Það er áhugavert fyrir okkur, sem lengi höfum barist fyrir kjarnorkuvopnalausu Íslandi, að skoða svör þeirra frambjóðenda, sem náðu kjöri:

Mjög hlynnt(ur) (14):

    Andrés Magnússon
    Arnfríður Guðmundsdóttir
    Ástrós Gunnlaugsdóttir
    Eiríkur Bergmann Einarsson
    Erlingur Sigurðarson
    Freyja Haraldsdóttir
    Illugi Jökulsson
    Katrín Fjeldsted
    Katrín Oddsdóttir
    Lýður Árnason
    Ómar Þorfinnur Ragnarsson
    Silja Bára Ómarsdóttir
    Þórhildur Þorleifsdóttir
    Örn Bárður Jónsson

Frekar hlynnt(ur) (5):

    Dögg Harðardóttir
    Gísli Tryggvason
    Salvör Nordal
    Vilhjálmur Þorsteinsson
    Þorkell Helgason

Mjög andvíg(ur) (1):

    Pawel Bartoszek

Vil ekki svara (3):

    Ari Teitsson
    Inga Lind Karlsdóttir
    Þorvaldur Gylfason

Svaraði ekki DV (2)

    Guðmundur Gunnarsson
    Pétur Gunnlaugsson

Þess má geta að af öllum þeim frambjóðendum sem svöruðu spurningum DV voru 11% frekar hlynntir og 71% mjög hlynntir því að slíkt ákvæði yrði sett í stjórnarskrá, samtals 82%. 3% voru frekar andvígir, 2% mjög, samtals 5%. Aðrir ýmist svöruðu ekki spurningunni eða voru hlutlausir. Hlutföll meðal almennings sem svaraði spurningum DV voru svipuð.

Sjá nánar: http://www.dv.is/stjornlagathing/nidurstodur/