Stjórn Friðarhúss fundar.
Ræða Harolds Pinters við móttöku Bókmenntaverðlauna Nóbels 2005 í Tímariti Máls og menningar
Jóhann Ludwig Torfason myndlistarmaður vann kápumyndina sérstaklega í tilefni af Nóbelsræðu Pinters. Glöggir menn munu kannast við hermanninn unga á myndinni.
Þegar Harold Pinter tók við Bókmenntaverðlaunum Nóbels 7. desember sl. flutti hann ræðu sem vakti mikla athygli, ekki síst fyrir beinskeytta gagnrýni á utanríkisstefnu Bandaríkjanna. Við sögðum lítillega frá henni hér á Friðarvefnum 14. desember og vísuðum þar á hvernig hægt er að nálgast hana á ensku og sænsku á internetinu. Það er ástæða til að vekja athygli á því að nú hefur þessi ræða birst í íslenskri þýðingu Silju Aðalsteinsdóttur í Tímariti Máls og menningar, þannig að þeir sem kjósa að lesa hana á íslensku geta nálgast hana þar, og hvetjum við fólk til að nálgast tímaritið annað hvort með því að kaupa það eða drífa sig á næsta bókasafn, enda er ýmislegt fleira áhugavert í því.
Í leiðinni minnum við á átakið og undirskriftasöfnunina gegn hugsanlegri árás Bandaríkjanna á Íran, sem Harold Pinter hefur ásamt öðrum haft frumkvæði að og við greindum frá um daginn. Nánari upplýsingar um það má nálgast með því að klikka á fyrirsögnina Gegn innrás í Íran – stöðvum stríðið áður en það byrjar! hér til hliðar.
Föstudaginn 24. febrúar verður Safnanótt haldin í miðborg Reykjavíkur í tengslum við Vetrarhátíð borgarinnar. Boðið verður upp á fjölbreytta menningardagskrá um alla borg langt fram yfir miðnætti.
Tilvalið er að hefja kvöldið á fjáröflunarmálsverði í Friðarhúsi. Húsið verður opnað kl. 18:30 og hefst borðhald kl. 19.
Guðrún Bóasdóttir (Systa) stýrir matseldinni að þessu sinni og er matseðillinn svo sannarlega glæsilegur:
* Svínakjötspottréttur í hnetusmjörssósu (satay)
* Chili sin carne, grænmetisréttur með sætum kartöflum og nýrnabaunum
* Couscous-salat
* Hrísgrjón og heimabakað brauð
Allt þetta fæst fyrir litlar 1.000 krónur.
Skáldið Andri Snær Magnason flytur hugvekju og opnar fyrir umræður.
Sláið tvær flugur í einu höggi og mætið södd og sæl á safnanótt. Allir hjartanlega velkomnir!
Fjáröflunarmálsverður í Friðarhúsi. Húsið verður opnað kl. 18:30 en borðhald hefst kl. 19.
Systa eldar
Matseðill
Svínakjötspottréttur í hnetusmjörssósu (satay)
Chili sin carne, grænmetisréttur með sætum kartöflum og nýrnabaunum
Couscous salat
Hrísgrjón og heimabakað brauð
Recent Comments