Einkasamkvæmi í Friðarhúsi.
Starfsemi Samtaka hernaðarandstæðinga er kynnt fyrir nýjum og ungum félagsmönnum.
Tónlistarmaðurinn Toggi treður upp á skemmti- og fræðslufundi SHA fimmtudagskvöldið 1. feb. og flytur nokkur lög. Toggi er fæddur árið 1979, en sendi frá sér sína fyrstu breiðskífu – Puppy – á síðasta ári. Fékk hún afar góðar viðtökur og nokkur laga hennar talsverða spilun í útvarpi. Var hún meðal annars valin 6. besta plata ársins á Rás 2.
Áhugasömum er bent á heimasíðu tónlistarmannsins.
Dagskráin á fimmtudagskvölið hefst kl. 20.
MFÍK hefur forgöngu um samkomu á alþjóðlegum baráttudegi kvenna 8. mars. Undirbúningsfundur í Friðarhúsi.
Recent Comments