Friðarhús er í útleigu þetta kvöld.
Það er talsvert um að börn friðarsinna mæti á fundi og samkomur í Friðarhús ásamt foreldrum sínum. Til að koma til móts við þessa yngstu gesti, hefur verið komið upp litlu barnahorni með litum, leikföngum o.þ.h.
Það væri þó synd að segja að leikfangaúrvalið í krakkahorninu sé glæsilegt. Raunar er það óttalegur samtíningur og úr sér gengið.
Líklegt má telja að allmargir hernaðarandstæðingar lumi á notuðum leikföngum, barnabókum og öðru sem komið gæti að góðu gagni og gert stundirnar í Friðarhúsi ánægjulegar fyrir smáfólkið. Endilega hafið samband með því að senda tölvupóst á sha@fridur.is
Fyrirætlun NATO að staðsetja herstöðvar í Saragossa (á Spáni) og á Kanaríeyjunum og leiðtogafundur varnarmálaráðherra NATO sem var haldinn í Sevillu 8.-9. febrúar s.l. endurlífguðu andstöðuna við NATO á Spáni. Spánverjar vilja ekki vera samábyrgir stríðunum sem NATO undirbýr.
Í áskorun sem 15 stjórnmálaflokkar og samtök á Spáni hafa birt segir m.a.: „Spænska ríkið sem hefur hermenn í Bosníu, í Kosovo, í Afganistan, í Kirgistan og í baltneskum ríkjunum, tekur virkan þátt í hernaðarstofnunum NATO. Ríkið eyðir gífurlegum fjármunum af almannafé til að ráða menn, þjálfa þá, vopna þá og viðhalda hernaðarmaskínunni í þágu NATO. Tölur eru gefnar upp. Ríkið eyðir í hernað 7 sinnum meira en til að styðja við iðnaðinn, 10 sinnum meira en í þágu umhverfismála, 32 sinnum meira en í þágu menningar. Á hverjum degi eyðir ríkið 63 milljónum evra í þágu hernaðar.“
Í Saragossa hafa 12-25 þúsund manns tekið þátt í mótmælum gegn herstöðvum NATO á Spáni. Meðal mótmælenda má nefna íbúasamtök, hreyfinguna gegn NATO, þinghópa og verklýðssamtök. Mótmæli eru einnig haldin á Kanaríeyjunum gegn NATO.
Elías Davíðsson tók saman úr Horizons et Débats, 7e année no 10
Sjá líka: Indymedia
Staðfest hefur verið að hljómsveitin Palindrome mun spila fyrir gesti að kvöldi 30. mars að loknu borðhaldi og ljóðadagskrá. Hljómsveitina skipa þeir Guðjón Heiðar Valgarðsson og Dagbjartur Elís Ingvarsson, en ekki er loku fyrir það skotið að þriðji tónlistarmaðurinn sláist í hópinn um kvöldið.
Tónlist Palindrome er ljúf og áheyrileg. Hægt er að kynna sér verk hennar á MySpace-síðu sveitarinnar.
Missið ekki af ljúffengum veitingum og góðri dagskrá í Friðarhúsi á föstudagskvöld!
Recent Comments