Skip to main content

Friður í okkar nafni

By Uncategorized

kertafleyting3 Ávarp Gunnars Hersveins við kertafleytingu 9. ágúst 2007 í Reykjavík

Enn fellur sprengja til jarðar, hátt af himni: flugvélin hefur þegar sleppt sprengjunni og hún fellur og við stöndum undir henni. Hvaða afl ræður stefnu sprengjunnar? Hvernig getum við stöðvað hana?

Við fylgjumst með sigurvegurum. Skilaboðin eru sungin: The winner takes it all. Sjaldan er skrifað um hvað gæti gerst ef valdinu yrði ekki beitt – hæst heyrast rök og réttlæting fyrir nauðsyn þess að beita ofbeldi nákvæmlega á þessari stundu ár hvert á hverri öld – sama gamla tuggan. Jafnvel í okkar nafni. Hvernig getum við snúið við?

Valdamesta fólkið í heiminum bregst oftast á örlagastundu og margar stofnanir og fyrirtæki falla í sömu gryfju: Nefna má kunnugleg nöfn sem valda ógleði og nefna má ríkisstjórnir þeirra og helstu fjölmiðla. En jafnvel þótt einstaklingarnir beri fulla ábyrgð þá er eitthvað meira á seiði: Tíðarandi, hefðir, venjur siðir, aðferðir … ósýnileg umgjörð, ósýnilegt vald nánast eins og ósýnilegur andi. Í dag er það Bush, á morgun einhver annar. Bindum ekki vonir okkar við einstakar persónur í valdastólum.

Atómsprengjan féll á japönsku borgina Hiroshima og önnur á Nagasaki á þessum degi fyrir 62 árum. Atburðir af mannavöldum líkt og gerðust í Japan 1945 geta því miður gerst aftur því í raun ríkir sama hefð og þá og sömu viðbrögð eru iðkuð. Undirstraumurinn er ennþá hart gegn hörðu og illt er rekið út með illu. Ósiður sem hefur ekki enn liðið undir lok þrátt fyrir allt.

Sprengja fellur og eyðir lífi. Flugmaðurinn, verkfærið, er harla ánægður með skotið. En það er saman hvaða eða hvers konar sprengja, það er sama hvort það eru 200 þúsund sem deyja eða tveir, glíman stendur um aflið og við valdið sem býr yfir innbyggðri fyrirskipun um að sleppa sprengjunni lausri.

Það er einnig sama hvaða trúarbrögð eru nefnd í stríði, Islam eða kristni, þau eru oftast yfirvarp. Hlustum ekki á raddir sem benda á trúarbrögð eða hugmyndafræði og nota orðin frelsi og réttlæti til að hefja stríð, því hverjir græða á stríðum? Stríð eru oftast háð vegna ágreinings um auðlindir jarðar, vegna ofstækis og hagsmuna, til dæmis hagsmuna vopnaframleiðenda. En jafnvel þótt einhverjir vakni og mótmæli þúsundum saman á götum úti og hrópi „Ekki í okkar nafni” hlustar valdið ekki – þó getum við ekki annað er hrópað.

„Not in our name“ er heiti á mótmælum sem hófust í Bandaríkjunum og síðar Bretlandi, hér og víða um lönd gegn stríðsrekstri stjórnamálamanna, vopnaframleiðenda og annarra hagsmunahópa gegn Afganistan og Írak. Sprengjum verður eflaust varpað á fleiri lönd í stríðinu gegn hriðjuverkum: War against Terror. Stríð gegn hryðjuverkum er aðeins enn eitt dulaklæðið til að hylja vanmetakenndina.

Búast mætti við að fyrirferðamestu þjóðirnar og áköfustu leiðtogarnir ættu við ofmat að stríða en þegar grafið er í sögu mannshugans kemur annað í ljós. Metnaðurinn nærist á vanmetakennd. Veikleikinn leynist í styrkleikanum. Hroki er yfirhylming: þegar honum er svipt í burtu afhjúpast húkandi minnimáttarkenndin.

Á Íslandi var einnig safnast saman og hrópað: „Ekki í okkar nafni“ . Fólk sem vildi draga lærdóma af sögunni varaði við stríði í Írak frá fyrsta degi. Aldrei höfðu jafnmargir í jafnmörgum löndum mótmælt stríðsrekstri. Stuðningsmenn stríðsins hafa hins vegar sagt eftir á – eitthvað á þessa leið: „Ég vissi það ekki þá, mig grunaði ekki að svona myndi fara. Miðað við það sem við vissum þá, virtist þetta vera það rétt.“ Fleyg eru orðin: „Það verður að játast að við höfðum ekki réttar upplýsingar um gereyðingarvopnin í Írak. Ég tel ekki ólíklegt að afstaða okkar hefði orðið önnur ef við hefðum vitað hið rétta.“ Samt vissum við það rétta, við sem drógum lærdóma af sögunni.

Kjarnorkusprengjan var sögð vísindaafrek, tækniafrek, hernaðarafrek og pólitískt afrek og þeir sem sendu þær af stað sögðust síðar ekki hafa gert sér grein fyrir hvaða afleiðingar þær gætu haft. Hversu oft og hversu lengi getum við hlustað á þessar afsakanir, þetta vanmat?

Stríð er vanabindandi aðferð líkt og heróín er vanabindandi efni. Menn, ríki, þjóðir hervæðast, kveða upp heróp og senda herskip og herþotur af stað til að sleppa sprengjum …

Hertæknin og allt sem henni fyglir er háþróuð tæknivædd birtingarmynd rótgróins valdakerfis. En gallinn er að hertæknin hefur aðeins eitt ráð: vopnuð vörn og vopnuð sókn, ógn og innrás.

En hvað viljum við í okkar nafni?

Iðka aðra aðferð – því til er önnur tækni sem sjaldan fær fé til þróunarverkefna því hún er neðst í virðingarröðinni. Það er friðartækni. Samt er knýjandi þörf á því að þróa þessa tækni og að ungt fólk nemi friðarlist.
Konur eru helstu fórnarlömbin í stríðum – en þegar svokallað „friðarferli“ hefst í löndum þeirra er þeim ýtt til hliðar og þær fá ekki að taka þátt í ákvörðunum um uppbyggingu. Þær vilja nota reynsluna úr stríðunum til að vinna bug á afleiðingum ófriðarins – en ekki til að hefna sín eins og innbyggt er í hertæknina. Ef konum yrði hleypt að myndu þær í samráði við karla geta rofið vítahring stríðsins. Friður er mennska sem flestallir óbreyttir borgarar vilja rækta með sér.
Ég óska þess að í okkar nafni leysi friðartæknin hertæknina af hólmi og verði svo þróuð að umfangsmikil friðaráætlun geti hafist á örskotsstundu. Hvarvetna um heiminn verða þá óvopnaðar friðarbækistöðvar og umhverfis jörðina myndu sveima athugul augu friðartungla – og engu verður til sparað.

Svo háþróuð verður friðvæðing heimsins í okkar nafni að þegar friðarkallið kemur bregðast leiðtogar framtíðarinnar umhugsunarlaust við og sameinast í friðarbandalagi gegn ofríkinu. Svo öflugt verður þetta friðarkerfi að allar efasemdaraddir kafna. Friðartæknin verður efst í virðingarröðinni.

Friðarlist, friðartækni, friðarbandalag, friðarfræði, friðaróp … Friður verður vanabindandi aðferð. Menn, ríki og þjóðir friðvæðast.

Það verður í okkar nafni. Friður í okkar nafni.

Kertafleyting 9.ágúst í Reykjavík og á Akureyri

By Uncategorized

kertafleyting1

Kertafleyting verður við Tjörnina í Reykjavík og við Minjasafnstjörnina á Akureyri fimmtudaginn 9.ágúst næstkomandi kl. 22:30.

Athöfnin er í minningu fórnarlamba kjarnorkuárásanna á japönsku borgirnar Hírósíma og Nagasakí og lögð er áhersla á kröfuna um friðsaman og kjarnorkuvopnalausan heim.

Nú eru liðin sextíu og tvö ár frá kjarnorkuárásunum á Hírósíma og Nagasakí en þær voru 6. og 9.ágúst 1945. Þetta er í tuttugasta og þriðja skiptið sem kertum er fleytt á Tjörninni í Reykjavík af þessu tilefni.

Í Reykjavík verður safnast við Suðvesturbakka Tjarnarinnar (við Skothúsveg) klukkan 22:30 en þar mun Gunnar Hersveinn heimspekingur flytja stutt ávarp áður en kertunum verður fleytt. Fundarstjóri verður Heiða Eiríksdóttir tónlistarmaður.

Á Akureyri verður safnast saman við Minjasafnstjörnina kl 22:30. Ávarp flytur Inga Þöll Þórgnýsdóttir, bæjarlögmaður.

Að venju verða flotkerti og friðarmerki seld á staðnum.

Samstarfshópur friðarhreyfinga skipuleggur kertafleytinguna í Reykjavík. Að honum standa:

Félag leikskólakennara.
Friðar og mannréttindahópur BSRB
Friðar og mannréttindanefnd Æskulýðssambands þjóðkirkjunnar
Menningar og friðarsamtök íslenskra kvenna
Samtök hernaðarandstæðinga
SGI á Íslandi (Friðarhópur búddista)

Ísland úr NATÓ strax!

By Uncategorized

eftir Rúnar Sveinbjörnsson

Samkvæmt mínum upplýsingum eru 13 Íslendingar nú að störfum hjá Nató í Afganistan. Landinn er að sjálfsögðu undir vopnum eins og komið hefur fram. En skyldu menn hafa hugsað út í afleiðingar þátttöku í stríði? Getur verið að Íslendingar hugsi sem svo, að við séum svo smá og svo notaleg og góð að það taki því ekki að hugsa illa til okkar? Ekki einu sinni af hálfu Afgana; fólks sem lítur á Nató sem innrásarher í land sitt.

Hvað skyldi það nú annars þýða í alþjóðlegu samhengi að senda 13 hermenn inn í Afganistan? Bandaríkjamenn eru eitt þúsund sinnum fjölmennari en við. Ef við yfirfærðum okkar framlag í mannafla– drengina okkar 13 – yfir á bandarískar stærðargráður næmi herafli Íslands í Afganstan hvorki meira né minna en 13.000 soldátum!

Stríðið í Afganistan er eitt viðbjóðslegasta stríð sem um getur og er af nógu að taka. Inn í þetta stríð erum við óumdeilanlega komin; stríð sem hvorki getur sigrast né tapast. Nýjustu fréttir herma að Talibanar, sem studdir voru hér á árum áður af bandamönnum ,,okkar”, séu um þessar mundir að murka lífið úr einum og einum gísl – þeir munu vera frá Kóreu að því er ég best veit. Og ástæðan? Nató-leppstjórnin í Afganistan getur ekki hugsað sér að sleppa nokkrum skæruliðum Talibana úr fangelsi í skiptum fyrir gíslana. Heldur skulu saklausir gíslar drepnir en að nokkrum föngum sé sleppt! Hervaldið má ekki sýna veikleika!

Nú kemur spurningin: Hvað ef þetta væru Íslendingar? Hver yrði afstaða ríkisstjórnar Samfylkingar og Íhaldsins? Myndi hún láta drepa Íslendingana? Myndum við hverfa á brott frá Afagnistan með landana okkar 13 ef það yrði til þess að frelsa gísla í haldi Talibana?

Þetta er raunveruleg spurning. Hvert yrði svarið? Þarf ekki ríki sem vill komast í Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna að geta svarað einfaldri spurningu eins og þessari?
Væri ekki við hæfi að flokkur utanríkisráherrans, Samfylkingin, byrjaði á því að svara þessari spurningu? Hvers vegna spyr enginn fjölmiðill? Hvað finnst íslenskum utanríkisráðherra um nýjustu gíslatöku og kröfu um að Kóreumenn dragi sig frá Afganistan? Taka íslensk stjórnvöld afstöðu með Bush og Suður-Kóreustjórn eða með gíslunum?

Hvar eru annars gömlu samherjarnir mínir sem kusu að fara í Samfylkinguna; þeir sem gengu með mér frá Keflavík, stóðu fyrir framan bandaríska sendiráðið og börðust fyrir friði? Hvaða fána halda þeir nú á lofti? Fána baráttu fyrir réttlæti – ekki trúi ég öðru en þeir vilji hafa þann fána í hönd. En er sá fáni nú uppi í okkar nafni í Írak og í Afganistan? Getur verið að nokkur maður trúi því að sá fáni hafi verið dreginn að húni þar sem innrásarherir Nató hafa farið um? Því trúir enginn maður – allra síst held ég að gamlir baráttufélagar mínir sem gengu til liðs við Samfylkinguna séu á þessari skoðun – alla vega ekki innst inni. Ég ætla að leyfa mér að hvetja allt baráttufólk hvar í flokki sem það stendur að taka höndum saman og andæfa glórulausri árásarstefnu Bnadaríkjanna og hernaðarbandalagsins Nató, sem Bush virðist hafa í bandi og leiða að eigin vild.

Krafa okkar á að vera afdráttarlaus: Ísland úr Nató strax!

Rúnar Sveinbjörnsson

P.s. Ef Gömlu félagar mínir hafa gefist upp er það minnsta sem þeir geta gert, að gefa gömlu Keflavíkurskóna sína til Afganistan, þeir þurfa ekki að vera par, stakir duga, þökk sé Nató.
RS