Rósa Eyvindardóttir og Vésteinn Valgarðsson segja frá ferð sinni á alþjóðlega friðarráðstefnu í Kaíró á opnum félagsfundi SHA. Spurningar og umræður verða að erindi loknu.
Danski tónlistar- og fræðimaðurinn Per Warming fjallar um tónlist og stjórnmál í Friðarhúsi
Nýverið kom út vegleg söngbók með norrænum baráttuljóðum, en undirbúningur útgáfunnar hefur staðið í mörg ár. Söngbók þessi var kynnt með glæsilegri dagskrá í Norræna húsinu og víðar.
Danski tónlistarmaðurinn Per Warming var meðal þátttakenda í kynningunni, en auk þess að vera kunnur fyrir tónsmíðar sínar er hann vinsæll fyrirlesari um sögu og þróun róttækra baráttusöngva.
Samið hefur verið um að Per Warming muni koma fram í Friðarhúsi n.k. þriðjudagskvöld, 22. apríl kl. 20 í boði SHA. Þar mun hann falla um baráttusöngva í máli og tónum. Þessu má enginn áhugamaður um tónlist og pólitík missa af!
* * *
Miðvikudagskvöldið 23. apríl kl. 20 munu Rósa Eyvindardóttir og Vésteinn Valgarðsson segja frá ferð sinni á alþjóðlega friðarráðstefnu í Kaíró á opnum félagsfundi SHA. Spurningar og umræður verða að erindi loknu.
Um Kaíró-ráðstefnurnar, sjá: https://fridur.is/antiwar/kairo
5. ráðstefnan 29. mars – 1. apríl 2007
Yfirlýsing 5. ráðstefnunnar
Hinn mánaðarlegi fjáröflunarmálsverður Friðarhúss verður haldinn föstudagskvöldið 25. apríl. Matseldin verður að þessu sinni í höndum Systu og er matseðillinn sem hér segir:
* spönsk paella
* tortilla (spönsk karöflueggjakaka)
* brauð með hinu víðfræga gríska taramossalati
Borðhald hefst kl. 19 en húsið verður opnað hálftíma fyrr. Verð kr. 1.500.
Recent Comments