Skip to main content

30. mars 1949

By Uncategorized

Eftirfarandi grein Jóns Böðvarssonar og Þorvarðar Helgasonar birtist í Morgunblaðinu 26. júní 2008. Við leyfum okkur að endurbirta þessa grein hér á Friðarvefnum, sem og athugasemd Sveins Snorrasonar sem birtist einnig í Morgunbalðinu 1. júlí.

Fáeinir menn sem tilheyrðu ekki mótmælendahópnum 30. mars 1949 gerðu sér það til gamans að kasta eggjum og moldarkögglum að unga fólkinu á gangstéttinni, en ekki að Alþingishúsinu, og því miður fylgdu nokkrir smásteinar sem engum skaða ollu, en líklega er rétt að einn þeirra hafi brotið rúðu í húsinu.
Þessi nánast kyrri hópur var til lítilla vandræða – og hefði áreiðanlega leyst upp ef lögregla hefði tilkynnt niðurstöðu atkvæðagreiðslunnar og þar með gerðan hlut sem ekki þýddi lengur að mótmæla á þessum vettvangi. Að vísu voru sögð einhver orð í hátalara en þau voru óskýr, heyrðust illa og höfðu engin áhrif.

Næst gerðist að dyr Alþingishússins opnuðust og út braust „hvítliðið“, öskrandi og veifandi kylfum. Grunlaust fólkið var fyrst felmtri slegið en snerist svo til varnar sem best það gat, bæði mótmælendur og stuðningsmenn samþykktarinnar, sem fjölmennir voru í hópnum, því þetta var aðför, fólki fannst sér misboðið.

Eftir útrásina, árásina úr Alþingishúsinu, kom svo táragassprengja lögreglu, þá sveið í augu undan gasinu og smám saman leystist allt upp og Austurvöllur varð nær mannlaus eftir að flestir forðuðu sér.

Þegar horft var til baka yfir atburðarásina kom í ljós mynstur, kerfi.

Augsýnilega var stefnt að árekstri, óeirðum. Við fréttum seinna að forystumaður sósíalistaflokksins hefði kvöldið áður sett af stað upphringingar til flokksfólks og beðið það að hafa hægt um sig á morgun því í uppsiglingu væri ögrun (provocation). Hann þekkti slíkt frá námsárunum í Þýskalandi eftir fyrra stríð. Það var augljóslega „system i galskabet“ – sem til allrar hamingju virkaði illa.

Á næsta ári verða 60 ár liðin frá þessum atburði. Hvernig væri ef ungir sagnfræðingar legðu nú saman og greindu ástæður, atburðarás og ekki síst dómana. Fyrir hvað voru menn dæmdir o.s.frv. Einhverjir „hvítliðanna“ lifa enn, við munum eftir tveimur skólabræðrum okkar úr MR. En áreiðanlega eru þeir fleiri sem enn anda – og gætu leyst gátuna um þjálfun „hvítliðanna“ eins og við kölluðum þá.

JÓN BÖÐVARSSON,
Lundarbrekku 8, Kópavogi.

ÞORVARÐUR HELGASON,
Safamýri 67, Reykjavík.

30. mars 1949

Blessaðir friðarboðarnir, Jón Böðvarsson og Þorvarður Helgason, rita í Morgunblaðinu í gær (26. júní sl. með samnefndri fyrirsögn) saman hrifnæma hugvekju um saklausan leik, fáeinna manna, „sem ekki tilheyrðu mótmælendahópnum 30. mars 1949, er þeir gerðu sér það til gamans að kasta eggjum og moldarkögglum að unga fólkinu á gangstéttinni, en ekki að Alþingishúsinu, og því miður fylgdu nokkrir smásteinar, sem engum skaða ollu, en líklega er rétt, að einn þeirra hafi brotið rúðu í húsinu.

Þessi nánast kyrri hópur var til lítilla vandræða- og hefði áreiðanlega leyst upp ef lögregla hefði kynnt niðurstöðu atkvæða-greiðslunnar og þar með gerðan hlut, sem ekki þýddi lengur að mótmæla á þessum vettvangi.“

Getur það verið að þeir félagar fari hér með rétt mál, að lýsingar þeirra á atburðarás standist, að þeir hafi verið í aðstöðu til að greina að þá fáeinu gamansömu eggjamenn frá hinum raunverulega mótmælendahópi 30. mars 1949, og hafi þess vegna getað dregið þá ályktun að þessi raunverulegi mótmælendahópur hefði bara farið heim, ef hann hefði fengið fréttir af atkvæðagreiðslunni!? Hvorum hópnum skyldu þeir Jón Bö og Holli, eins og þeir voru þá kallaðir, hafa tilheyrt, gamansömu eggjakösturunum eða þeim raunverulegu mótmælendum? Spyr sá, er ekki veit. Ég hlýt að setja stórt spurningarmerki við atvikalýsingu þeirra.

Veit ekki vegna þess, að einmitt á þeim tíma, sem þeir félagar, Jón og Þorvarður, lýsa gamansama eggja- moldarköggla- og grjótkastinu að unga fólkinu á gangstéttinni sem líklega leiddi til rúðubrots í húsinu, var ég sem þingritari ásamt Ólafi Jónssyni, frá Austvaðsholti, að rita fundargerð um eina dagskrármálið, atkvæðagreiðsluna. Skrifborð okkar þingritaranna var þá staðsett beint framan við forsetastól og þingskrifara, þar sem ræðupúlt þingmanna er staðsett í dag.

Hitt veit ég, að áður en atkvæðagreiðslu og þingfundi var lokið, barst stærðar hraunhnullungur með miklu brothljóði gegnum rúðu að baki forsetastóls, flaug yfir stól forseta, en Guðs mildi að hann hæfði ekki forseta í höfuðið, en lenti síðan með miklu brauki á borðinu milli okkar Ólafs og þaðan út á gólf. Ég er ansi hræddur um að sá okkar sem fengið hefði hraunhnullunginn í hausinn hefði ekki þurft að kemba hærurnar.

Hraunhnullungurinn var ekki ætlaður ungu fólki á gangstétt. Skeytinu var beint að Alþingi og bersýnilega ætlað að trufla störf þingsins með svipuðum hætti og reynt hafði verð kvöldið og nóttina áður.

Sjálfsagt eiga sagnfræðingar framtíðarinnar eftir að fjalla heilmikið um 30. mars 1949. Þá verður þess þó að vænta að vandað verði til öflunar heimilda um þá atburði sem þar urðu, aðdraganda og ástæður þeirra, svo að afkomendur okkar fái sem skýrasta og raunsannasta mynd af því, sem þá gerðist, orsakir þess og afleiðingar.

SVEINN SNORRASON,

Faxatún 1 Garðabæ.

Af vörnum landsins

By Uncategorized

Eftirfarandi grein Rúnars Sveinbjörnssonar birtist í vefritinu Ögmundur.is 16. júní 2008

Nú er búið að stofna varnarmálaráðuneyti. Hver óvinurinn er gegnir öðru máli. Nefndir hafa verið til sögunar Rússar, Talibanar, hryðjuverkamenn og ef til vill fleiri.

Í dag er Ísland þátttakandi í árásarstríði í Afganistan og í hópi hinna viljugu í hernámi Íraks. Með vitlausri utanríkisstefnu er vissulega hægt að eignast óvini en þó er ég nokkuð viss að það muni þá helst bitna á fyrirtækjum, sendiráðum og Íslendingum erlendis. Ekki hef ég heyrt að milljarðarnir eigi að fara í annað en eltingarleik við fornar rússneskar flugvélar og er þetta brölt kallað loftrýmisgæsla eða einhvað enn vitlausara.

Í sömu viku og varnarmálaráðuneytið er opnað ríður jarðskjálfti yfir Suðurland. Í viðtali við Ragnar Stefánsson jarðskjálftafræðing kemur fram að hugsanlega hefði verið hægt að sjá fyrir um jarðskjálftann nokkrum stundum fyrr ef veðurstofan hefði fengið fé til að klára uppbyggingu hugbúnaðar sem les fljótt og rétt úr þeim upplýsingum sem fram komu í aðdraganda skjálftans, út frá þeim rannsóknum og gagnasöfnum sem til eru.

Í mínum huga er það óvéfengjanlegt að helsti óvinur Íslendinga eru náttúruöflin: jarðskjálftar, eldgos, snjóflóð, sjávarflóð, ofsaveður og fleira. Varnir Íslands eru fólgnar í að verja okkur fyrir náttúruöflunum, að svo miklu leyti sem það er hægt. Hver mínúta getur verið dýrmæt og bjargað mannslífum.

Það er dapurlegt að heyra af óánægju og uppsögnum hjá stofnun eins og Veðurstofunni, vegna sparnaðar og rangra stjórnunarhátta, þegar hægt er að eyða óendanlega miklu í hégóma og hernaðarbrölt. Ísland á að vera í forystu í náttúruvísindum og væri það veglegt framlag til friðar og mannúðarmála. Þar eiga milljarðarnir heima.

Ísland úr Nató.
Leggjum varnarmálaráðuneytið niður þegar í stað og verjum sameiginlegum fjármunum okkar í þágu friðar og framfara.

Samstaða gegn gagnflaugakerfi í Tékklandi

By Uncategorized

Næstkomandi sunnudag, 22. júní, verður alþjóðlegt átak til stuðnings baráttunni gegn fyrirhugaðri uppsetningu gagneldflauga í Tékklandi, en um 70% Tékka eru andvígir þessum áformum. Tilefnið nú er hungurverkfall baráttumanna í Tékklandi. Nánari upplýsingar er að finna á www.dagurfostu.net.

Í Reykjavík verður sett upp tjald á Lækjartorgi milli klukkan 12 og 6 á sunnudaginn til að minna á þessa baráttu. Þar verður hægt að nálgast upplýsngar og skrá sig á stuðningslista. Ennfremur er undirskriftalisti á netinu: http://petice.nenasili.cz/?lang=en.

Samtök hernaðarandstæðinga hvetja félaga sína og allan almenning til að sýna þessari baráttu stuðning, láta sjá sig á Lækjartorgi og setja nafn sitt á undirskriftalistann á netinu.

Umfjöllun á Friðavefnum um þetta mál:

Rússar og NATO í nýtt kalt stríð?
Alþjóðleg ráðstefna í Prag gegn hervæðingu Evrópu
Evrópa án kjarnavopna
Mikil andstaða í Tékklandi gegn fyrirhugaðri gagnflaugastöð
Undirskriftasöfnun gegn bandarískum herstöðvum í Tékklandi

poster sciopero 22 ISL

Bandaríkin hafa líka í hyggju að setja upp stöð í Póllandi í tengslum við gagnflaugaáætlun sína. Þar hefur einnig verið mikið andóf gegn þessum áætlunum og nýjustu fregnir herma að viðræður séu milli Bandaríkjanna og Litháen um að setja upp stöð þar ef Pólland bregst.

RÚST – Skapandi Andspyrna – Nauðsynleg Skemmilegging

By Uncategorized

Pólitísk listahátíð 19.-22. júní

Í dag, 19. júní, hefst pólitísk listahátíð í Reykjavík, þar sem meðal annars verður lögð áhersla á andóf gegn kapítalískri hnattvæðingu. Sjá www.rustrust.org.

rustposterenglish web

Dagskrá:

Fimmtudagur 19. júní.
18:00 – Opnunarpartí í gamla Sirkus-portinu – Hljómsveitin Swords of Chaos, Plötusnúðar,
gjörningar, matur í boði offramleiðslunnar og önnur vitleysa

Föstudagur 20. júní.
19:00 – Larry Bogad, prófessor við Californíu-Háskólann, sem stundar róttækt skæruliðaleikhús,
stendur fyrir umræðu og vinnustofu um róttækt götuleikhús og gjörninga á Kaffi Hljómalind,
Laugarvegi 23
21:00 – Pólítískur prakkaraskapur; fyrirlestur og vinnustofa á Hljómalind

Laugardagur 21. júní.
14:00 – Dagskrá á Lækjartorgi, m.a.:
Food Not Bombs – Ókeypis matur í boðið offramleiðslunnar
Ímyndin Ísland – Passíusálmalupplestur skálda á skýrslu forsætisráðuneytisins; Ímynd Íslands
Beehive Collective – Sögur og risastórir fánar með and-hnattvæðingar myndskreytingum.
15:00 – Leiðsöguleiðangur valdníðinganna… Hverjir eru að rústa samfélaginu og græða á því?
Gangan byrjar á Lækjartorgi
17:00 – Larry Bogad – Theatre of the Oppressed, fyrirlestur á Kaffi Hljómalind.

Sunnudagur 22. júní.
Dagskrá á Kaffi Hljómalind:
16:00 – Larry Bogad vinnustofa – Uppreisnar-Trúðar (Rebel Clowns)
18:00 – Róttækar kvikmyndir
21:00 Niðurrif einsleitninnar – Sögur af maurum og Amerískri menningu; myndafyrirlestur frá
Beehive Collective, frá Maine, USA

Allir atburðir sem fara fram á RÚST eru fríir!