Skip to main content

Félagsfundur SHA: Afvopnun eða vígvæðing – hvað er á seyði í öryggismálum Íslendinga?

By Uncategorized

afvopnun
Samtök hernaðarandstæðinga efna til opins félagsfundar mánudagskvöldið 23. febrúar kl. 20 í Friðarhúsi, Njálsgötu 89.

Gestur fundarins verður Árni Þór Sigurðsson, formaður utanríkismálanefndar Alþingis.

Það er margt að gerast á sviði hernaðar- og afvopnunarmála sem Íslendingar ættu að láta sig varða. Á dögunum var kynnt skýrsla Thorvalds Stoltenbergs með tillögum um norrænt hernaðarsamstarf. Tillögur liggja fyrir Nató um stofnun fastahers. Árekstur kjarnorkukafbáta í Atlantshafi hefur rifjað upp gamlar kröfur um kjarnorkufriðlýsingu. Og deilt er um stöðu og framtíðarhlutverk Varnarmálastofnunar.

Rætt verður um þessi mál og fleiri á fundinum. Allir velkomnir.

Ályktun SHA vegna kjarnorkukafbáta

By Uncategorized

subSamtök hernaðarandstæðinga vekja athygli á fregnum sem borist hafa af árekstri tveggja kjarnorkukafbáta á Atlantshafi. Betur fór þar en á horfðist, en öllum má vera ljóst hversu skaðlegt kjarnorkuslys á höfunum gæti reynst okkur Íslendingum. Auk beinna umhverfisáhrifa sem slíkt slys hefði í för með sér, mætti búast við því að sala og neysla á sjávarafurðum myndi hrynja með hörmulegum afleiðingum fyrir þjóðarhag.

Samtök hernaðarandstæðinga hafa lengi bent á hættuna sem stafar af umferð kjarnorkuknúinna farartækja, sem og skipa og kafbáta sem bera kjarnorkuvopn um íslenska lögsögu. Það er eitt brýnasta öryggis- og hagsmunamál íslensku þjóðarinnar að forða slíkum ógnum. Samtök hernaðarandstæðinga minna á það gamla baráttumál sitt að Ísland og íslensk lögsaga verði friðlýst fyrir ferðum slíkra tækja. Frumvarp um þetta mál hefur ítrekað verið flutt á Alþingi Íslendinga og er ástæða til að ætla að þingmeirihluti sé fyrir því nú.