Fjáröflunarmálsverður Friðarhúss verður haldinn n.k. föstudagskvöld, 30. október. Matseldin verður að þessu sinni í höndum tveggja vaskra félaga, þeirra Hörpu Stefánsdóttur og Ármanns Gunnarssonar. Þau hafa verið langdvölum á Indlandi og munu því bjóða upp á:
* indverskan kjúklingarétt
og
* indverskan grænmetisrétt
Rithöfundurinn og ljóðskáldið Sindri Freysson les úr tveimur nýútkomnum bókum sínum: Ljóðveldinu Íslandi og Dóttur mæðra minna og gerir grein fyrir tilurð þeirra. Síðari bókin er söguleg skáldsaga sem fjallar um atburði í sögu landsins sem lítt hefur verið sinnt, þegar breska hernámsliðið á stríðsárunum eltist við hóp þýskættaðs fólks á Vestfjörðum og þá sem voguðu sér að leggja þeim lið.
Húsið verður að venju opnað kl. 18:30, en borðhald hefst kl. 19. Verð kr. 1.500.
Aðalfundur Norðurlandsdeildar Samtaka hernaðarandstæðinga var haldinn sl. fimmtudagskvöld. Góð stemning var á fundinum, þar sem meðal annars var fluttur fyrirlestur um vaxandi vægi einkaaðila í nútíma hermennsku og stríðsrekstri.
Ný stjórn var kjörin á fundinum. Hana skipa:
Formaður:
Kolbeinn Stefánsson
Stjórn:
Andrea Hjálmsdóttir
Bjarni Þóroddsson
Jósep Helgason
Sveinn Arnarsson
Þórarinn Hjartarson
Varamenn:
Kristín Sigfúsdóttir
Rachel Johnstone
Jafnframt semdi fundurinn frá sér eftirfarandi ályktun:
Aðalfundur Samtaka hernaðarandstæðinga á Norðurlandi skorar á íslensk stjórnvöld að beita sér fyrir breyttum áherslum í endurreisn alþjóðahagkerfisins. Áherslur undanfarinna ára hafa leitt af sér aukna misskiptingu og óréttlæti, bæði innan þjóðfélaga og á milli heimshluta.
Þessar sömu áherslur hafa leitt til ágangs á auðlindir náttúrunnar, mengun og náttúruspjöll, hróplegu misrétti, eymd og fátækt. Verði ekki lát á þessari þróun mun það leiða til tíðari og harðari átaka í heiminum. Þverrandi auðlindir leiða til harðnandi samkeppni um yfirráð og vaxandi misskiptingu verður aðeins viðhaldið með ofbeldi og kúgun. Kerfið er úr sér gengið og verður að víkja fyrir nýjum áherslum á mannúð, frelsi, velferð og réttlæti.
Opinn félagsfundur MFÍK um Friðaruppeldi.
Recent Comments