Skip to main content

Tafarlausa kjarnorkufriðlýsingu

By Uncategorized

Landsráðstefna SHA, haldin 27.-28. nóvember 2009 sendi frá sér eftirfarandi ályktun um kjarnorkuafvopnun:

Samtök hernaðarandstæðinga fagna nýlegum fregnum af því að skriður sé kominn á viðræður Bandaríkjamanna og Rússa um umtalsverða fækkun kjarnorkuvopna á næstu árum. Stefna ber að allsherjarútrýmingu kjarnorkuvopna innan fárra ára. Meðan nokkur herveldi þráast við að viðhalda kjarnorkuvopnabúrum sínum, er ekki við öðru að búast en að fleiri ríki reyni að komast í klúbb þeirra.

Íslendingar geta lagt sitt að mörkum til kjarnorkuafvopnunar heimsins með því að samþykkja tafarlaust friðlýsingu landsins fyrir umferð og geymslu kjarnorkuvopna, líkt og kveðið er á um í stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar. SHA krefjast þess að Alþingi afgreiði málið eins skjótt og kostur er.

Þjóðaratkvæðagreiðslu um NATO-aðild

By Uncategorized

Landsráðstefna SHA, haldin 27.-28. nóvember 2009 sendi frá sér eftirfarandi ályktun um aðildina að NATO:

Sextíu ár eru liðin frá inngöngu Íslands í NATO. Með aðildinni að hernaðarbandalaginu hafa Íslendingar skipað sér í sveit með helstu vopnaframleiðslulöndum heims – ríkjum sem staðið hafa í stríðsrekstri víða um lönd með hörmulegum afleiðingum fyrir fólk.

NATO hefur á síðustu misserum varpað grímunni og kemur nú fram sem hreinræktað árásarbandalag. Hernaðurinn í Afganistan er gleggsta dæmið um þetta, en með aðildinni að Atlantshafsbandalaginu er Ísland virkur þátttakandi í áralöngu stríði í einu fátækasta landi heims.

Samtök hernaðarandstæðinga minna á að íslenska þjóðin hefur aldrei verið spurð með beinum hætti um afstöðu sína til aðildarinnar að NATO. Gera SHA það að tilllögu sinni að efnt verði til þjóðaratkvæðagreiðslu um NATO-aðildina. Skorað er á Alþingi að halda slíka kosningu samhliða t.d. sveitarstjórnarkosningum, kosningu til stjórnlagaþings eða mögulegra kosninga um ESB-aðild.

Ný miðnefnd SHA

By Uncategorized

Landsráðstefna SHA var haldin 27.-28. nóvember í Friðarhúsi. Á fundinum var kjörin ný miðnefnd samtakanna. Hana skipa:

Auður Lilja Erlingsdóttir
Elías Jón Guðjónsson
Halldór Smárason
Haukur Þorgeirsson
Hildur Lilliendahl
Kolbeinn Hólmar Stefánsson
Sigurður Flosason
Stefán Pálsson (formaður)
Steinunn Rögnvaldsdóttir
Þorvaldur Þorvaldsson
Þórir Hrafn Gunnarsson
Þórunn Ólafsdóttir

Betur verður fjallað um tíðindi fundarins á þessum vettvangi á næstu dögum.