Skip to main content

Pöbbkviss róttæklingsins hjá SHA

By Uncategorized

Á liðnum árum hafa SHA reglulega staðið fyrir sérstökum kynningar- og skemmtikvöldum fyrir yngri félagsmenn sína, sem og þá sem nýlega hafa gengið í samtökin eða hafa áhuga á að kynna sér þau. Fimmtudagskvöldið 18. nóvember kl. 20 verður nýliða- og ungliðakvöld SHA 2010 haldið í Friðarhúsi, Njálsgötu 87.

* Fjallað verður almennt um SHA
* Kolbeinn Óttarsson Proppé stendur fyrir “pöbb-kvissi” róttæklingsins með hnyttnum kynningum
* Óvænt tónlistaratriði úr ranni miðnefndar

Léttar veitingar.

Allir velkomnir og um að gera að taka með sér gesti.

Friðlýsing Íslands fyrir kjarnorkuvopnum og bann við umferð kjarnorkuknúinna farartækja

By Uncategorized

7. október var tekið fyrir á Alþingi frumvarp til laga um friðlýsingu Íslands fyrir kjarnorkuvopnum og bann við umferð kjarnorkuknúinna farartækja. Umræðulaust var því vísað til utanríkismálanefndar þar sem það er nú til umfjöllunar. Samtök hernaðarandstæðinga hafa sent nefndinni umsögn um málið en frestur til að skila umsögnum rann út 5. nóvember.

Þetta frumvarp er í samræmi við ákvæði í stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar: „Ísland verður friðlýst fyrir kjarnorkuvopnum og íslensk stjórnvöld munu beita sér fyrir kjarnorkuafvopnun á alþjóðavettvangi,“ en flutningsmenn frumvarpsins eru úr öllum flokkum nema Sjálfstæðisflokknum. Þeir eru: Árni Þór Sigurðsson, Álfheiður Ingadóttir, Baldvin Jónsson, Björn Valur Gíslason, Eygló Harðardóttir, Guðmundur Steingrímsson, Helgi Hjörvar, Höskuldur Þórhallsson, Jónína Rós Guðmundsdóttir, Margrét Tryggvadóttir, Mörður Árnason, Ólafur Þór Gunnarsson, Ólína Þorvarðardóttir, Sigríður Ingibjörg Ingadóttir og Þráinn Bertelsson.

Frumvarp í þessa veru er nú lagt fram í tíunda sinn. Stundum hefur það ekki verið tekið til umræðu og stundum látið daga upp í utanríkismálanefnd. Síðast var það lagt fram í mars 2009, en þá gafst ekki tími til að afgreiða það, enda stutt til þingloka og nýrra kosninga. Það er vonandi að ríkisstjórnin verði ekki hrakin frá áður en þetta mál er í höfn. Aldrei fyrr höfum við verið svo nærri því.

Sjá nánar frétt á Friðarvefnum 17. mars 2009.

Fumvarp til laga um friðlýsingu Íslands fyrir kjarnorkuvopnum og bann við umferð kjarnorkuknúinna farartækja. Frumvarpið og ferill málsins.

MFÍK – opinn félagsfundur 8. nóv.

By Uncategorized

mfikMFÍK heldur opinn félagsfund mánudaginn 8. nóvember kl. 19 í Friðarhúsi v/Snorrabraut.

Margrét Guðnadóttir, læknir, veirufræðingur og baráttukona mætir á fundinn og segir frá starfi sínu og rannsóknum.

Léttur kvöldverður á hóflegu verði í upphafi fundar.

Húsið opnar 18.30.

Takið með ykkur gesti. Allir velkomnir!