Skip to main content

Herkveðjuhátíð á Ránni, Keflavík, laugardaginn 22. apríl kl. 13-17

By Uncategorized

keflavikurganga Vinstri græn á Suðurnesjum standa fyrir herkveðjuhátíð á Ránni í Keflavík nk. laugardag kl. 13-17.

Þetta verður hátíð með léttu yfirbragði en alvarlegum undirtóni. Fjölmörg atriði af ýmsu tagi. Bæði litið um öxl og horft fram á veginn. Þúsund blóm blómstra!

  • Sambúð hers og þjóðar í hálfa öld – hvers er að minnast?
  • Fögnuður eða söknuður þegar herinn fer?
  • Segjum upp herstöðvasamningnum og NATO-samningunum?
  • Reynum við að finna annan her í staðinn?
  • Hvernig varnir þurfum við – og gegn hverjum?
  • Árið 1918 hétum við ævarandi hlutleysi. Á að endurreisa hlutleysið?
  • Starfslokasamningar? Hvernig gegnur fólki að fá nýtt starf?
  • Hvernig verður viðskilnaðurinn – hreint land og fagurt land?
  • Getum við rekið flugvöllinn – og janvel nýtt hann betur?
  • Hvað tekur við? Ný tækifæri?

Ávörp m.a.

  • Katrín Jakobsdóttir, varaformaður VG, ávarpar samkomuna.
  • Jóhann Geirdal, bæjarfulltrúi í Reykjanesbæ: Herinn fer, fögnum nýjum tækifærum
  • Kristján Pálsson, sagnfræðinemi: Áhrifin voru líka jákvæð
  • Árni Björnsson, þjóðháttafræðingur: Orðið varnarlið
  • Sveinn Rúnar Hauksson. Sögur úr hersetunni
  • Einar Ólafsson, ritstjóri Friðarvefsins: Um alþjóðlega baráttu gegn herstöðvum.

List og menning m.a.

  • Rúnar Júlíusson, sá eini og sanni, segir frá kynnum sínum af hernum í máli og tónum.
  • Sóleyjarkvæði eftir Jóhannes úr Kötlum og tónlist Péturs Pálssonar var frumflutt 1965. Þrír upphaflegu flytjendanna syngja brot úr verkinu.
  • Hljómsveitir skipaðar ungu fólki af Suðurnesjum og úr Reykjavík: Tokyo Megaplex, Æla, Hellvar, Kapteinn Hafsteinn og Kira Kira.

Kynnir er hinn bráðsnjalli Stefán Pálsson, sagnfræðingur með meiru.

Til sölu:
Veitingar á vegum hússins. Happdrættismiðar, hljómplötur, efni þeirra sem koma fram.

Vinstrihreyfingin grænt framboð á Suðurnesjum

Nánari upplýsingar:

Þorvaldur Örn Árnason, valdurorn@ismennt.is s. 424 6841
Marta Guðrún Jóhannesdóttir, martag@fss.is s. 867 5986

Fjórða evrópska samfélagþingið í Aþenu 4.-7. maí

By Uncategorized

4ða ESF Aþenu enska Evrópskir herstöðvaandstæðingar á samfélagsþinginu í Aþenu

Fjórða Evrópska samfélagsþingið (European Social Forum – ESF) verður haldið í Aþenu dagana 4.-7. maí. Meðal fjölmargra funda á þinginu verður fundur undir yfirskriftinni: Herstöðvar Bandaríkjanna og hervæðing Evrópusambandsins í þjónustu „heimsstríðsins gegn hryðjuverkum“. Eflum baráttu okkar gegn þeim.

Nánari upplýsingar um 4. ESF: http://athens.fse-esf.org

Frá SHA – nóg við að vera um páskana

By Uncategorized

Friðarpípan í Friðarhúsi 15. apríl
Páskarnir eru tími ferðalaga. Friðarsinnar sem hyggjast halda sig í borginni yfir páskahelgina þurfa þó engu að kvíða því á laugardaginn kemur, 15. apríl, verður staðið fyrir hinni sívinsælu spurningakeppni Friðarpípunni í Friðarhúsi. Hefst hún kl. 16 og eru allir velkomnir.

* * *

Dagfari og Friðarvefurinn
Um þessar mundir er unnið að gerð Dagfara, fréttabréfs SHA, sem berast mun félagsmönnum fyrir lok mánaðarins. Sem vænta má verður blaðið að þessu sinni helgað nýjustu fregnum af hermálinu, en krafa SHA hlýtur að vera sú að herverndarsamningnum svokallaða verði sagt upp og hrstöðinni lokað fyrir fullt og allt. Ýmsar greinar hafa birst um málið á Friðarvefnum síðustu daga og eru félagsmenn hvattir til að fylgjast með umræðunni sem þar fer fram, auk þess sem tekið er við aðsendu efni.

* * *

Snarrót: kvikmyndasýningar
Undanfarin misseri hefur starfsemi Snarrótar, Laugavegi 21 kjallara, staðið í miklum blóma. Næstu þriðjudags og fimmtudagskvöld verða kvikmyndasýningar fyrir gesti og gangandi þar sem hægt verður að sjá ýmsar fróðlegar heimildarmyndir og klassískar kvikmyndir. Dagskrá næstu tveggja vikna er á þessa leið:

Þriðjudaginn 11. apríl kl. 20:00 – DEAD IN THE WATER
Heimildarmynd BBC um árásina á USS Liberty í sex daga stríðinu.

Fimmtudaginn 13. apríl kl. 20:00 – ONIBABA (Brunnurinn)
Mögnuð japönsk draugasaga frá 1964 í leikstjórn Kaneto Shindo.

Þriðjudaginn 18. apríl kl. 20:00 – MARTIAL LAW 911
Útvarpsmaðurinn og kvikmyndagerðamaðurinn Alex Jones fjallar m.a. um uppbyggingu lögregluríkisins í Bandaríkjunum.

Fimmtudaginn 20. apríl kl. 20:00 – FAHRENHEIT 451 (Hitastig 451)
Klassísk vísindaskáldsaga í leikstjórn: Francois Truffaut.

Viðræðurnar um framtíð herstöðvarinnar

By Uncategorized

Ekkert samráð við stjórnarandstöðuna

Ã?sland úr Nató Ekki virðist það nú hafa vakið mikinn ugg hjá þjóðinni þegar þau boð bárust frá Washington 15. mars síðastliðinn að til stæði að flytja herliðið burt frá herstöðinni á Miðnesheiði. Menn hafa áhyggjur af atvinnu þeirra íslensku starfsmanna við herstöðina, sem hefur nú verið sagt upp störfum, og einnig hvernig haga skuli björgunarmálum þegar þyrlur Bandaríkjahers verða ekki lengur tiltækar og hvort Bandaríkjaher hreinsi til eftir sig. Að öðru leyti virðist það nokkuð almennt álit að eðlilegt sé að þetta svokallaða varnarlið sé á förum og mörgum, jafnvel málsmetandi mönnum innan Sjálfstæðisfokksins, finnst eðlilegt að nú verði skrefið stigið til fulls og herstöðvasamningnum sagt upp.

Að því leyti sem menn telja einhverjar hervarnir nauðsynlegar, þá eru skiptar skoðanir uppi um hvernig þeim skuli hagað og meðal annars hefur verið bent á að best sé að líta til Evrópu. Það má auðvitað segja að það sé með ólíkindum að nokkrum skuli detta í hug að leita eftir slíku samstarfi við árásarhneigðasta ríki heims, ríki sem að undanförnu hefur orðið uppvíst að ólögmætum innrásum, stórfelldum mannréttindabrotum og brotum á alþjóðasáttmálum, svo með ólöglegum fangelsum í Guantanomo og leynilegum fangaflutningum, sbr. skýrslu Amnesty International sem var birt 5. apríl. Þetta er svona svipað og að biðja mafíuna að vernda sig gegn glæpum.

Afstaða Samtaka herstöðvaandstæðinga er hinsvegar ljós: Ísland er best sett án hers, án herstöðva og án aðildar að hernaðarbandalögum. Það þjónar Íslendingum best og það er besta framlag okkar til heimsfriðar.

Viðræðurnar við Bandaríkjamenn 30.-31. mars

Íslenska ríkisstjórnin sér hins vegar enga aðra leið en halda áfram að suða í Bandaríkjamönnum. Bandaríkjamenn voru ekkert að hangsa eftir símhringinguna frá Washington 15. mars, íslensku starfsmennirnir eru þegar búnir að fá uppsagnarbréfin og byrjað er að taka niður ýmsan búnað í herstöðinni.

Samt sendu þeir sendinefnd hingað 30. mars og sat hún á fundum með íslenskum embættismönnum 30. og 31. mars. Furðu litlar fréttir hafa þó borist af þessum viðræðum. Í Morgunblaðinu 1. apríl er greint frá viðræðunum, en næsta lítið upp úr þeirri frétt að hafa.

Mark Pekala, varaaðstoðarutanríkisráðherra Bandaríkjanna, sagði að bandarísk stjórnvöld væru að vinna að áætlun um varnir Íslands í samræmi við varnarsamninginn frá 1951 og meta varnarþörf og kvaðst telja að þessi vinna myndi leiða til öflugri varna hér á landi sem og í Bandaríkjunum. Jafnframt staðfesti hann að F-15 orrustuþoturnar verði farnar héðan í síðasta lagi í lok september. Carol van Voorst, sendiherra Bandaríkjanna, sagði að fram hefði komið vilji beggja stjórnvalda til að styrkja varnarsamstarfið. Utanríkisráðherra Íslands sagðist vonast eftir að út úr áætlun Bandaríkjamanna komi eitthvað sem mark sé á takandi og að komið yrði til móts við kröfur og óskir Íslendinga en annars hafi fundurinn verið á almennu nótunum. Þá sagði hann að m.a. hefði verið fjallað um björgunarmál og einnig „farið yfir önnur málefni sem lúta að samstarfi um aðrar ógnir; hryðjuverkastarfsemi, glæpastarfsemi og þess háttar, sem eru kannski meira lögreglumál.“ Gert er ráð fyrir að annar fundur verið innan fárra vikna og síðan fleiri í kjölfarið.

Í frétt Vísi 1. apríl er haft eftir þeim Pekala og van Voorst að það sé einlægur vilji Bandaríkjanna að sinna áfram varnarhlutverki sínu hér á landi og annað er svo sem ekki í þeirri frétt.

Í Fréttablaðinu 1. apríl er haft eftir Geir Haarde utanríkisráðherra: „Við viljum hafa hér áætlun um trúverðugar varnir sem gerir það að verkum að engum detti í hug að koma hér upp að landinu með óvæntum hætti eða ógna okkur. Það er það sem við höfum talað um. Við þurfum að hafa hér lágmarksvarnir eins og allar aðrar þjóðir.“ En það eru líka birtir eftirfarandi punktar úr viðræðunum:

    Punktar úr viðræðunum – Mörg atriði enn órædd

    Það sem rætt var um
    • Kröfur og óskir Íslendinga – ekki gefið upp
    • Aðstoð Bandaríkjamanna í björgunarmálum og samstarf gegn hryðjuverkum
    • Að Bandaríkin ætli að standa við skuldbindingar sínar
    • Að bandarísk stjórnvöld útbúi varnaráætlun fyrir Ísland
    • Breyttar áherslur Bandaríkjamanna í varnarmálum á alþjóðavettvangi

    Það sem ekki var rætt um
    • Kaup eða leiga á þyrlum
    • Hvenær þyrlurnar fara af landi brott
    • Mannvirki Varnarliðsins og hvernig afnot herinn vilji hafa af þeim í framtíðinni
    • Hvernig herinn hagar brottflutningi næstu mánuði
    • Starfslok íslensku starfsmannanna á Keflavíkurflugvelli

Hér vekur athygli að ekki var rætt um það sem mörgum þykir kannski mest aðkallandi: Starfslok íslensku starfsmannanna á Keflavíkuflugvelli.

Ekkert samráð við stjórnarandstöðuna

5. apríl vakti þingmaður Samfylkingarinnar, Össur Skarphéðinsson, máls á því á Alþingi að ekkert samráð hafi verið haft við utanríksmálanefnd. Hann sagði m.a.: „Síðastliðinn föstudag hófust samningaviðræður á milli Bandaríkjamanna og Íslendinga. Það hafa komið mjög misvísandi skilaboð úr þeim viðræðum. Hæstv. utanríkisráðherra kvaðst mjög bjartsýnn eftir þær viðræður en hæstv. forsætisráðherra sagði að ekkert nýtt hefði komið fram. Það var sömuleiðis alveg ljóst að það var meiningarmunur á milli hæstv. utanríkisráðherra og forsætisráðherra um hvert stefna ætti. Hæstv. utanríkisráðherra talaði með þeim hætti að það var ljóst af máli hans að hann taldi að það væri einboðið að halda áfram tvíhliða varnarsamningnum við Bandaríkin og það var erfitt að skilja hann með öðrum hætti en svo að það væri forgangsatriði en það ætti ekki að skoða aðra möguleika í stöðunni.“ (Ath. tilvitnanir í þessar umræður eru með fyrirvara um að textinn er enn óyfirlesin á vef Alþingis).

Ögmundur Jónasson, þingmaður VG, tók í sama streng og sagði það vekja athygli að utanríkisráðherra sæi ekki aðra kosti í stöðunni en tvíhliða viðræður við Bandaríkin „og er ég þar ekki að horfa til faðmlagsins við önnur NATO-ríki í því efni. Það bjóðast aðrir kostir einnig til að tryggja öryggi Íslands til frambúðar og ég tel að á þeim tímamótum sem Íslendingar eru nú þá eigum við að efna til þverpólitískrar umræðu um þá kosti sem nú bjóðast Íslendingum í þessari stöðu.“ Varðandi viðskilnað Bandaríkjastjórnar og Bandaríkjamanna á Miðnesheiði minnti hann á þingsályktunartillögu VG um þverpólitíska nefnd til að taka á því verkefni, tillögu sem reyndar er nú flutt í annað sinn þar eð hún fékkst ekki útrædd í fyrra.

Magnús Þór Hafsteinsson, þingmaður Frjálslynda flokksins, kvaðst hefði viljað sjá þverpólitíska vinnu um málið. „Það eru áhöld um hvort ríghalda eigi áfram í varnarsamninginn við Bandaríkjamenn. Það eru líka áhöld um hvort við eigum að leita leiða varðandi nánara samstarf við aðrar Evrópuþjóðir. “

Það vekur athygli, að í þessum viðræðum við Bandaríkjamenn kemur fram, að þeir eru að vinna að áætlun um varnir Íslands og meta varnarþörf, en á sama tíma liggur fyrir Alþingi þingsályktunartillaga frá fjórum þingmönnum Samfylkingarinnar um opinbera nefnd um öryggi og varnir Íslands. Tillaga þessi var lögð fram 10. október en tekin til fyrri umræðu 4. og 7. nóvember. (Sjá einnig umsögn SHA). Þessi tillaga var einnig flutt fyrir tveimur árum en fékk ekki afgreiðslu.

Það virðist ljóst að ríkisstjórnin ætlar að fela sig á vald Bandaríkjunum sama hversu niðurlægð hún er af bandarískum stjórnvöldum. Allt bendir til að meirihluti þjóðarinnar vilji að herstöðinni verði lokað fyrir fullt og allt og herinn hreinsi til eftir sig. Það er þó líklegast að henni verði ekki að þeirri ósk sinni baráttulaust.

Það er aðeins eitt til ráða: að herða andófið gegn hernum og aðildinni að Nató enn frekar.

Ritstjóri