Hér má sjá sýnishorn úr myndinni.
Hefðbundinn fjáröflunarmálsverður SHA í Friðarhúsi féll niður í apríl vegna almennra frídaga. Í staðinn blásum við til vormálsverðar föstudaginn 8. maí. Að þessu sinni verður boðið upp á hlaðborð rétta sem meðlimir í miðnefnd töfra fram – kjúklingasalat, lundir, grænmetisréttir og kökur.
Að borðhaldi loknu les Áslaug Agnarsdóttir úr verðlaunaþýðingu sinni á Ívan Túrgenev: Minnisblöð veiðimanns. Tónlistarmaðurinn Teitur Magnússon tekur lagið.
Sest verður að snæðingi kl. 19:00. Verð kr. 3.000. Öll velkomin.
Hitið upp fyrir kröfugönguna með hinu hefðbundna og einkar veglega 1. maí kaffi Samtaka hernaðarandstæðinga í Friðarhúsi, Njálsgötu 87, frá kl. 11 til 13. Gangan leggur svo af stað frá Skólavörðuholti.
Í boði verða vöfflur eins og þið getið í ykkur látið og annað heimagert góðgæti. Undir lokin tökum við lagið og dreifum kröfuspjöldum. Aðgangseyrir einungis 1000 krónur.
Kæri hernaðarandstæðingur
Skarpir friðarsinnar hafa væntanlega áttað sig á því að smkv. venju ætti næsti reglubundni málfsverður í Friðarhúsi að vera næsta föstudag. Miðnefnd SHA hefur hins vegar ákveðið að fresta málsverðinum til 8. maí n.k.
* * *
Að venju verður morgunkaffi SHA í Friðarhúsi þann 1. maí. Það hefst kl. 11 og stendur fram að göngu verkalýðsfélaganna.
Landsfundur Samtaka hernaðarandstæðinga fordæmir nýlega varnar- og öryggismálastefnu sem samþykkt var einróma á Alþingi fyrr á árinu. Stefna þessi, sem virðist að miklu leyti eiga að víkja til hliðar gildandi þjóðaröryggisstefnu, leggur höfuðáherslu á aðildina að Nató og hernaðarsamstarf við Bandaríkin á grunni herstöðvasamningsins frá 1951 sem grunnstoða íslenskrar utanríkisstefnu.
Það voru stórkostleg mistök að herstöðvasamningnum hafi ekki verið sagt upp þegar herstöð Bandaríkjamanna á Miðnesheiði var lokað á árinu 2006. Með samningnum og seinni viðaukum við hann, er Ísland flækt í net Bandaríkjanna sem hafa í raun fullt sjálfdæmi um umsvif sín og viðbúnað á Íslandi. Ásælni Bandaríkjanna í Grænland er alvarleg aðvörun um hvaða ógn stafar af hinum meinta bandamanni.
Jafnframt leiðir yfirstandandi árásarstríð Bandaríkjanna og Ísraels í Miðausturlöndum glögglega í ljós hvílík hætta er búin hverju því ríki sem treystir Bandaríkjunum og Bandaríkjaher fyrir öryggi sínu.
Herstöð er skotmark!
Á síðustu mánuðum hefur heimurinn horft upp á óvenju grímulaus brot stórvelda á alþjóðalögum. Bandaríkin og Ísrael hafa í sífellu farið með árásum og hótunum gagnvart öðrum ríkjum, án þess að hirða um að ljá þeim aðgerðum nokkurt lögmæti. Mannrán, loftárásir og hótanir um innrásarstríð hafa dunið á heiminum það sem af er ári. Ábyrgðarleysið er fullkomið, þar sem hvorki er hirt um hættuna á að íhlutanirnar snúist upp í allsherjarstríð eða afleiðingarnar fyrir efnahagskerfi heimsins.
Allt tal um Bandaríkin sem forysturíki lýðræðis sem standi vörð um frið og stöðugleika er nú fráleitt. Um langt skeið hafa Bandaríkin og önnur Nató-ríki grafið undan alþjóðalögum og mikilvægustu alþjóðastofnunum á borð við Sameinuðu þjóðirnar og stutt þjóðarmorð og yfirgang Ísraelsríkis. Nú erum við að súpa seyðið af því. Stríðið í Íran er aðeins eitt dæmi af mörgum um þetta, þar sem teflt er á tæpara vað en heimsbyggðin hefur séð á þessari öld. Linkuleg viðbrögð Evrópuríkja, þar með talið íslenskra stjórnvalda, eru stórkostlega ámælisverð. Betur færi á því að fylgja fordæmi Spánverja, sem einir þjóða í álfunni hafa mótmælt stríðinu af krafti og neitað að leggja því nokkurt lið.
Landsfundur SHA var haldinn laugardaginn 28. mars. Eftir hefðbundin aðalfundarstörf og hádegishlé hélt Þórir Jónsson Hraundal lektor í Mið-Austurlandafræðum fróðlegt erindi um Íran og samhengi stríðsins sem geisar nú í Mið-Austurlöndum.
Að loknu erindi voru samþykktar tvær ályktanir og rætt um þjóðaröryggistefnu friðarsinna sem miðnefnd var falið að vinna áfram og samþykkja í heild sinni fyrir sumarbyrjun ásamt ályktun um samstarf við herlausar þjóðir.
Guttormur Þorsteinsson var endurkjörinn formaður og auk hans skipa nú miðnefnd:
Anna Ragna Fossberg Jóhönnudóttir
Askur Hrafn Hannesson
Elín Oddný Sigurðardóttir
Friðrik Atlason
Ingibjörg Haraldsdóttir
Lowana Veal
Ragnhildur Björt Björnsdóttir
Sigurður Flosason
Soffía Sigurðardóttir
Stefán Pálsson
Þorvaldur Þorvaldsson
Miðvikudaginn 18. mars kl. 20:00 í Friðarhúsi býður SHA til fundar um drög að þjóðaröryggis-, varnar- og öryggismálastefnu Samtaka hernaðarandstæðinga.
Fyrr á árinu samþykkti Alþingi samhljóða öryggis- og varnarstefnu sem SHA hafa gagnrýnt harðlega. Bæði byggir hún á heimsmynd sem er að hruni komin þar sem Nató og “Varnarsamningurinn” við BNA eru meginstoðir íslenskrar utanríkisstefnu. Í stað þess að bregðast við þessari breyttu heimsmynd til þess að nýta styrkleika Íslands sem friðsams og herlauss ríkis opnar hún á aukna hervæðingu landsins til að þóknast æ dyntóttari herveldum beggja vegna Atlantshafs.
Til að bregðast við þessu hyggst SHA setja fram valkost við þessa stefnu með sinni eigin þjóðaröryggis- varnar og öryggismálastefnu sem byggi á raunsæju mati á því hvaða raunverulegu ógnir steðja að íslenskri þjóð og hvernig megi byggja á styrkleikum íslensks samfélags. Miðnefnd SHA hefur rissað upp drög að stefnu sem hægt er að ræða og stefnt er að því að leggja hana fyrir landsfund í lok mánaðar til samþykktar.
Eins er hægt að senda athugsemdir í tölvupósti á sha@fridur.is