Kertafleytingar
Að venju munu íslenskir friðarsinnar í ár minnast kjarnorkuárásanna á Japan árið 1945 og minna á kröfuna um heim án kjarnorkuvopna. Kertafleytingar verða víða um land að kvöldi 6. ágúst. Fleytingartíminn er örlítið mismunandi frá einum stað til annars, en fleytt verður á sex stöðum: Reykjavík, Patreksfirði, Ísafirði, Akureyri, Seyðisfirði og Reyðarfirði.
- Í Reykjavík er það Samstarfshópur friðarhreyfinga sem stendur fyrir aðgerðinni. Safnast verður saman við suðvesturenda Tjarnarinnar og hefst athöfnin kl. 22:30. Fundarstjóri er Ólöf Bjarki Antons. Þór Stefánsson flytur ljóð og Þórhildur Sunna Ævarsdóttir framkvæmdastjóri Courage International flytur ávarp. Kerti verða seld á 1.000 krónur og verður þeim fleytt í ljósaskiptunum eftir að dagskrá lýkur. Posi á staðnum.
- Á Patreksfirði verður fleytt kl. 23:00 við Franska minnisvarðann, Aðalstræti 5. Einungis verður tekið við reiðufé.
- Ísfirðingar byrja kl. 22:30 í fjörunni við Neðstakaupstað og mun Matthildur Helgadóttir Jónudóttir flytja ávarp.
- Á Akureyri hefst samkoman strax kl. 22:00 við Leirutjörn. Ávarp flytur Hannes Sigurðsson lagerstarfsmaður og friðarsinni. Kerti á staðnum.
- Seyðfirðingar byrja líka kl. 22:00. Komið er saman á Sólveigartorgi, fyrir framan skólann og sungið saman. Kerti seld á staðnum en einungis tekið við reiðufé.
- Reyðfirðingar koma saman við Andapollinn kl. 22:00. Þar verður stutt dagskrá áður en kertum verður fleytt. Börn sérstaklega velkomin.
