Landsfundur SHA 2026

By Tilkynningar, Viðburður

Landsfundur SHA verður haldinn í Friðarhúsi, Njálsgötu 87, laugardaginn 28. Mars.

Dagskrá hefst kl. 11 með stjórnarkjöri og almennum aðalfundarstörfum.

Léttur hádegisverður í boði.

Klukkan 13 mun Þórir Jónsson Hraundal, lektor í Mið-Austurlandafræðum og arabísku við Háskóla Íslands fjalla um Íran og bakgrunn stríðsins sem þar geisar nú um stundir.

Að málstofunni lokinni halda fundarstörf áfram en áætlað er að fundi ljúki eigi síðar en kl. 16

Ályktun um árásir á Íran

By Ályktun, Í brennidepli

Miðnefnd Samtaka hernaðarandstæðinga fordæmir loftárásir Bandaríkjanna og Ísraels á Íran. Þessar árásir af fyrra bragði eru í algjöru trássi við alþjóðalög og munu einungis leiða til hörmunga fyrir íbúa Írans, ala á óstöðugleika á svæðinu og ógna heimshagkerfinu.

Heimur þar sem voldug herveldi varpa sprengjum á önnur lönd og myrða leiðtoga þeirra að eigin geðþótta er háskalegur fyrir okkur öll. Sérhver slík aðgerð grefur undan alþjóðalögum og réttlætingar í þá veru að árásirnar séu fyrirbyggjandi eða miði að því að steypa kúgunarstjórn eru fráleitar þegar horft er til grimmdarverka og hernaðaríhlutana Ísraels og Bandaríkjanna síðustu ár. Saga síðustu áratuga ætti að kenna okkur að íhlutunarstefna Bandaríkjanna og annarra stórvelda í Miðausturlöndum hefur einungis leitt til blóðsúthellinga og hörmunga, jafnvel svo áratugum skiptir.

Lasagne

Febrúarmálsverður í Friðarhúsi

By Viðburður

Nú er komið að febrúarmálsverði SHA, föstudaginn 27. febrúar kl. 19:00 í Friðarhúsi, Njálsgötu 87. Þorvaldur Þorvaldsson úr miðnefnd SHA töfrar fram sitt fræga lasagne.

Matseðill:

  • Lasagne með kjöti
  • Lasagne fyrir grænkera
  • Meðlæti
  • Kaffi og konfekt

Að borðhaldi loknu mun Einar Ólafsson lesa þýðingu Dags Sigurðarsonar á ljóðinu Amríka eftir Alan Ginsberg, sem á ótrúlega vel við samtíma okkar. Því næst mun Bjarki Karlsson segja frá Láka-rímum, einni áhugaverðustu bók síðasta jólabókaflóðs. Loks mun trúbadorinn Skúli mennski taka nokkur lög.

Sest verður að snæðingi kl. 19. Verð kr. 3000. Öll velkomin

Samalabaka

Janúarmálsverður í Friðarhúsi

By Viðburður
Það er komið að fyrsta málsverði ársins og ofurkokkurinn Dóra Svavars snýr aftur, en maturinn hennar hefur ætíð vakið mikla lukku meðal hernaðarandstæðinga.

Matseðill:

  • Smalabaka – kindahakksbaka með kartöflumús.
  • Vegan-útgáfa með.linsubaunum.
  • Bústin grænmetissalöt
  • Brauð
  • Kaffi og konfekt
Að borðhaldi loknu mun tónlistartvíeykið Daníel E. Arnarson og Halli Sveinbjörns flytja friðsamt og andheimsvaldasinnað prógram, Steinunn Þóra Árnadóttir flytur stutta tölu um málefni Grænlands og Kristín Svava Tómasdóttir segir frá Fröken Dúllu, bestu sagnfræðibók síðasta jólabókaflóðs.
Sest verður að snæðingi kl. 19. Verð kr. 3000. Öll velkomin.