Skip to main content

Ungliðar álykta gegn fundi vopnaframleiðenda

By Uncategorized

Ályktun aðalfundar Ungra jafnaðarmanna í Hafnarfirði 3. nóvember:

Ungir jafnaðarmenn í Hafnarfirði harma fund stríðsmangaranna í breska vopnaframleiðslufyrirtækinu BAE Systems á Hilton-Nordica-hótelinu. Þetta fyrirtæki hefur hiklaust selt vopn til allra handa einræðis- og kúgunarstjórna. Má þar nefna sölu á svonefndum Hawk-herþotum til Zimbabwe sem notaðar voru í hinu hörmulega borgarastríði í Kongó, sem og sölu á sams konar þotum til Indónesíustjórnar sem beitt var í þjóðarmorðinu á Austur-Tímor. Það er einstaklega óviðeigandi að þessir menn skuli funda hér í ljósi þess að nýlega var sett upp minnismerki í Reykjavík um hinn mikla og einlæga friðarsinna John Lennon. UJH hvetja til þess að framvegis verði komið í veg fyrir allar ráðstefnur vopnaframleiðenda hér á landi með sama hætti og komið var í veg fyrir ráðstefnu klámframleiðenda fyrr á árinu. Þá krefjast UJH sem endranær tafarlausrar úrsagnar úr kjarnorkuvopnabandalaginu NATO.

Sjá www.mir.is

Ályktun stjórnar Ungra vinstri-grænna 1. nóvember:

Ung vinstri-græn lýsa fulltrúa BAE Systems, eins stærsta stríðstólaframleiðanda heims, óvelkomnna hingað til landsins og biðja þá vinsamlegast að hverfa af landi brott og leggja niður iðju sína.

Afkoma BAE og starfsmanna þess ræðst af eftirspurn eftir manndrápum í heiminum enda framleiðir fyrirtækið tól sem eru sérhönnuð til þess að drepa fólk. Með því að framleiða slík tól stuðla BAE og aðrir hergagnaframleiðendur að manndrápum í heiminum, ekki hvað síst á óbreyttum borgurum. Ung vinstri-græn telja því starfsemi slíkra fyrirtækja óréttlætanlega með öllu.

Ung vinstri-græn hvetja lögregluyfirvöld til að fylgjast vel með og rannsaka hvort einhver lögbrot eigi sér stað á ráðstefnunni sem nú stendur yfir. Þá eru allir, sérstaklega eigendur og starfsfólk Hótel Hilton Nordica, hvattir gera sitt til þess að koma í veg fyrir að forsvarsmenn BAE geti stundað þá iðju sína að þróa og selja vopn sem ætluð eru til manndrápa víða um heim.

Ung vinstri-græn minna á að nýlega var afhjúpuð friðarsúla í Viðey og að í því samhengi var rætt um að Reykjavík yrði friðarhöfuðborg heimsins. Á meðan stríðstólaframleiðendur funda óáreittir í Reykjavík er ljóst að allt slíkt tal er hræsni. Ung vinstri-græn telja að réttast væri að slökkva á friðarsúlunni, að minnsta kosti á meðan stríðstólaframleiðsla er skipulögð í borginni.

Sjá: www.vinstri.is

Ályktun frá SHA vegna vopnasalafundar

By Uncategorized

Samtök hernaðarandstæðinga gagnrýna harðlega fund stjórnenda vopnaframleiðslufyrirtækisins BAE Systems í Reykjavík. Vopnaiðnaðurinn er án nokkurs vafa óviðfelldnasta atvinnugrein samtímans. Fyrirtæki á borð við BAE byggja afkomu sína á stríðsreksti og blóðsúthellingum. Hendur þeirra manna sem nú funda á Hilton-hótelinu við Suðurlandsbraut eru litaðar blóði og heimsóknir slíkra manna til Íslands eiga ekki að líðast.

Samtök hernaðarandstæðinga hvetja alla landsmenn til að senda framleiðendum og sölumönnum drápstóla skýr skilaboð: þeir eru ekki og munu ekki verða aufúsugestir hérlendis.

Morgunblaðið gagnrýnir þátttöku NATO í stríðinu í Afganistan

By Uncategorized

Í ritstjórnargrein Morgunblaðisins 27. október er þátttaka Atlantshafsbandalagsins og Íslands í stríðinu í Afganistan gagnrýnd. „Það er orðið tímabært að íslenzka ríkisstjórnin taki stefnu Íslands í þessu máli til endurskoðunar,“ segir í greininni. Við tökum heilshugar undir þessi orð og leyfum okkur að birta greinina hér og væntum þess að ritstjórar blaðins hafi ekkert á móti því.

Í Morgunblaðinu í gær var skýrt frá því að mótmæli hefðu verið fyrir utan fundarstað varnarmálaráðherra aðildarríkja Atlantshafsbandalagsins, sem voru á fundi í Hollandi í fyrradag. Mótmælin beindust að þátttöku Atlantshafsbandalagsins í hernaðaraðgerðum í Afganistan.
Atlantshafsbandalagið stendur frammi fyrir vaxandi vandamálum af þessum sökum. Stríðsreksturinn í Afganistan gengur misjafnlega. Fyrirsjáanlegt er að honum er ekki að ljúka. Talið er víst að hann geti staðið árum saman. Sumir þeirra, sem fylgjast með þessum átökum, telja óhugsandi að Atlantshafsbandalagið geti unnið þetta stríð. Það sé alveg sama hversu marga hermenn talibana hersveitir bandalagsins drepi, það komi jafn margir í þeirra stað á vígvöllinn ef ekki fleiri.

Hvað er bandalagið, sem til var stofnað til þess að tryggja frið í Evrópu, að gera í Afganistan? Augljóslega að hjálpa Bandaríkjamönnum, sem hafa knúið það fram innan Atlantshafsbandalagsins að hersveitir á þess vegum færu til Afganistans. Í Kanada og Hollandi er vaxandi þrýstingur á stjórnvöld að kalla hermenn þessara ríkja heim frá Afganistan. Hið sama má segja um Þýzkaland.

Við Íslendingar erum aðilar að þessum aðgerðum Atlantshafsbandalagsins í Afganistan. Við höfum lagt blessun okkar yfir þessar aðgerðir. Við höfum haft uppi tilburði til þess að hjálpa til, tilburði, sem hafa engum orðið til framdráttar og okkur sjálfum til lítils sóma.

Núverandi ríkisstjórn sýnist fylgja sömu stefnu og forverar hennar gagnvart þátttöku Atlantshafsbandalagsins í stríðinu í Afganistan. Samfylkingin virðist hafa tekið þá stefnu upp á sína arma. Utanríkisráðherra Samfylkingarinnar fylgir henni fram.

Það er hins vegar löngu orðið ljóst að það er ekkert vit í þátttöku Atlantshafsbandalagsins í aðgerðunum í Afganistan. Deilur innan bandalagsins um þetta mál fara vaxandi.

Það er orðið tímabært að íslenzka ríkisstjórnin taki stefnu Íslands í þessu máli til endurskoðunar.

Þeir sem telja að Ísland eigi hlutverki að gegna á alþjóðavettvangi hljóta að vera sammála því, að Ísland lýsi þá ákveðinni stefnu og afstöðu til mála á borð við stríðið í Afganistan og aðildar Atlantshafsbandalagsins.

Við höfum að vísu ekkert pólitískt afl til þess að fylgja þeirri skoðun eftir. En það höfum við heldur ekki annars staðar.

Það er merkilegt hvað þetta mál er lítið rætt á Alþingi Íslendinga. Eru Vinstri grænir kannski dauðir úr öllum æðum á Alþingi?!

Hafa þeir enga skoðun á þessum málum. Hafa þeir ekki einu sinni kraft í sér til þess að taka þau upp á Alþingi?

Friðarsúla eða níðstöng?

By Uncategorized

eftir Sverri Jakobsson

Eftirfarandi grein birtist í Fréttablaðinu 20. október 2007

Í þessum mánuði eru liðin sex ár frá innrás Bandaríkjanna í Afganistan og upphafi stríðsátaka sem nú hafa staðið lengur en heimsstyrjöldin síðari. Í raun hefur ekki ríkt friður í Afganistan frá innrás Sovétmanna árið 1979. Afleiðingar stríðsins eru þær að lífsskilyrði fólks eru hvergi verri um víða veröld heldur en í Afganistan. Stór hluti þjóðarinnar býr við hungurmörk og væri ástandið eflaust verra ef ekki væri fyrir ópíumframleiðsluna sem hefur margfaldast frá því að Afganistan var hernumið fyrir sex árum – þvert á yfirlýst markmið hernámsliðsins.

Markmið stríðsins voru að uppræta hryðjuverkahópa sem kölluðu sig al-Qaida og handsama leiðtoga þeirra, Osama bin Laden. Það hefur ekki tekist. Þvert á móti hafa hryðjuverk, eins og þau eru skilgreind af Bandaríkjastjórn, margfaldast frá því að þetta stríð hófst. Osama bin Laden leikur enn lausum hala og hryðjuverkahópar sem aðhyllast svipaða hugmyndafræði hafa sprottið upp víða. Þeir voru aldrei sérstaklega háðir „þjálfunarbúðum” í Afganistan, enda fá þeir mun meiri þjálfun í því að berjast við NATO-herinn þar og bandaríska hernámsliðið í Írak.

Annað markmið stríðsins var að uppræta bókstafstrúarhreyfingu talíbana. Það hefur ekki tekist heldur koma reglulega fréttir af bardögum hernámsliðsins við talíbana. Mannfall í röðum óbreyttra borgara er meira en nokkru sinni fyrr og sprengjuárásir NATO eiga þar drjúgan þátt. Hreyfing talíbana hefur þar að auki unnið ný lönd því að í vesturhluta Pakistan hafa nú risið upp hópar sem kalla sig talíbana, en lítið bar á slíkum hópum fyrir 2001.

Íslensk stjórnvöld haldin blindu

Spunameistarar stríðsins hafa haldið því fram að meðal jákvæðra afleiðinga þess sé að núna ríki lýðræði í Afganistan. En þær kosningar voru ekki eðlis­ólíkar kosningum sem haldnar voru af leppstjórn Sovétríkjanna á 9. áratugnum án þess að hljóta viðurkenningu alþjóðasamfélagsins. En ef við lítum samt sem áður á stjórnina í Kabúl sem lýðræðisstjórn þá verðum við jafnframt að horfast í augu við að trúverðugleika hennar er einkum ógnað af hernámsliðinu. Ríkisstjórn Afganistans hefur enga stjórn á framferði þess og mótmæli hennar gegn drápum NATO á óbreyttum borgurum eru hunsuð. Þingið í Afganistan hefur engin áhrif á störf hernaðarbandalagins ólíkt þjóðþingum í frjálsum löndum.

Sex ára árangurslaus hernaður í fjarlægu landi með hörmulegum afleiðingum fyrir fólkið sem þar býr hlýtur að vera tilefni til gagnrýninnar umræðu um það hvert stefnir. Reglulega heyrast hrakspár um að erlent herlið gæti orðið í Afganistan áratugum saman og er vart hugsandi til þess hvílík ógæfa það gæti orðið fyrir langhrjáða þjóð.

Því miður virðist afstaða íslenskra stjórnvalda til gangs mála í Afganistan einkennast af nokkri blindu á ástandið. Stuðningur við stríðsreksturinn hefur verið skilgreindur sem eitt af forgangsverkefnum nýrrar ríkisstjórnar í utanríkismálum, en ráðamenn tala jafnframt eins og að stríðinu sé lokið og hafa fengið því framgengt að hernaður NATO í Afganistan er kallaður „uppbygging” í íslenskum fjölmiðlum. Sjálfsblekking er ekki sérstaklega góð forsenda stjórnarstefnu og íslensk stjórnvöld verða fyrr eða síðar að vakna og byrja að taka mið af veruleikanum. Ekki verður séð hvaða ávinningur felst í því að draga það á langinn.

Stríðssinnar hylla friðarsúlu

Það er ekkert annað en sjálfsblekking að kalla stríðsrekstur uppbyggingu. Þess konar orwellsk orðræða smitar líka út frá sér. Þannig mættu íslenskir stuðningsmenn stríðsins í Afganistan prúðbúnir út í Viðey á dögunum til að vígja staur nokkurn sem kallast friðarsúla og er víst gjöf til Íslendinga frá fjöllistakonunni Yoko Ono.

Einu sinni vildu Íslendingar helst aldrei taka þátt í stríðum. En núna eru þeir komnir á bragðið og undanfarinn áratug hefur ekki verið blásið í herlúðra án þess að ráðamenn Íslands séu komnir í fremstu víglínu til að bjóða fram aðstoð sína. Þeir eru búnir að breyta tungumálinu þannig að stríð heitir núna uppbygging og til að kóróna smekkleysuna þá var haldin merkingarlaus broddborgarasamkoma úti í Viðey við lok NATO-þings í Reykjavík þar sem ráðamenn þjóðarinnar mættu ferskir frá því að fagna hernaðinum í Afganistan og hylla nú frið í heiminum.

Við Íslendingar getum lagt okkar af mörkum til friðar í heiminum. Það getum við gert með því að hætta stuðningi okkar við stríð í Afganistan og þátttöku í hernaðarbandalaginu NATO. Annars er hætt við því að friðarsúlan sem við höfum reist til hylla okkur sjálf reynist ekki annað en níðstöng.

Við Íslendingar getum lagt okkar af mörkum til friðar í heiminum. Það getum við gert með því að hætta stuðningi okkar við stríð í Afganistan og þátttöku í hernaðarbandalaginu NATO. Annars er hætt við því að friðarsúlan sem við höfum reist til hylla okkur sjálf reynist ekki annað en níðstöng.