Earth's greatest enemy plaggat

Heimildarmyndin Earth’s Greatest Enemy í Friðarhúsi

By Viðburður
Samtök hernaðarandstæðinga sýna heimildamyndina Earth‘s Greatest Enemy í Friðarhúsi miðvikudaginn 20. maí kl. 19:45. Aðgangur er ókeypis og eru öll velkomin.
Heimildarmyndin er eftir bandaríska róttæklinginn Abby Martin og sameinar rannsóknarblaðamennsku, áhrifamikið myndefni og sögur frá samfélögum sem hafa þurft að líða fyrir hernaðarumsvif bandaríkjahers. Myndin hvetur áhorfendur til að íhuga þann kostnað og þær afleiðingar sem þau hafa í för með sér fyrir jörðina okkar.
Í myndinni er varpað ljósi á hvernig herinn leggur aðeins hernaðarlegt mat á aðgerðir en tekur ekki tillit til áhrifa þeirra á umhverfi og samfélög. Árásir hersins á olíubirgðastöðvar geta til dæmis valdið gífurlegri mengun og varanlegu tjóni á umhverfi og náttúru. Bandaríska varnarmálaráðuneytið er stærsti mengunarvaldur heims – það losar umtalsvert kolefni, mengar vatn og eyðileggur vistkerfi um allan heim. Allt hernaðarbrölt er undanþegið alþjóðlegum loftslagssamningum en að auki hefur bandaríkjastjórn sagt sig frá þeim samningum.
Myndin er 120 mínútur að lengd og er framleidd af Empire Files í Bandaríkjunum. Abby og kollegar hennar stunda fréttamennsku í þágu almennings.
Hér má sjá sýnishorn úr myndinni.
Pálínuboð

Vormálsverður SHA: Pálínuboð miðnefndar

By Viðburður

Hefðbundinn fjáröflunarmálsverður SHA í Friðarhúsi féll niður í apríl vegna almennra frídaga. Í staðinn blásum við til vormálsverðar föstudaginn 8. maí. Að þessu sinni verður boðið upp á hlaðborð rétta sem meðlimir í miðnefnd töfra fram – kjúklingasalat, lundir, grænmetisréttir og kökur.

Að borðhaldi loknu les Áslaug Agnarsdóttir úr verðlaunaþýðingu sinni á Ívan Túrgenev: Minnisblöð veiðimanns. Tónlistarmaðurinn Teitur Magnússon tekur lagið.

Sest verður að snæðingi kl. 19:00. Verð kr. 3.000. Öll velkomin.

1. maí 1923

1. maí kaffi SHA

By Fréttir, Viðburður

Hitið upp fyrir kröfugönguna með hinu hefðbundna og einkar veglega 1. maí kaffi Samtaka hernaðarandstæðinga í Friðarhúsi, Njálsgötu 87, frá kl. 11 til 13. Gangan leggur svo af stað frá Skólavörðuholti.

Í boði verða vöfflur eins og þið getið í ykkur látið og annað heimagert góðgæti. Undir lokin tökum við lagið og dreifum kröfuspjöldum. Aðgangseyrir einungis 1000 krónur.

Málsverði frestað til 8. maí.

By Fréttir, Tilkynningar

Kæri hernaðarandstæðingur

Skarpir friðarsinnar hafa væntanlega áttað sig á því að smkv. venju ætti næsti reglubundni málfsverður í Friðarhúsi að vera næsta föstudag. Miðnefnd SHA hefur hins vegar ákveðið að fresta málsverðinum til 8. maí n.k.

* * *

Að venju verður morgunkaffi SHA í Friðarhúsi þann 1. maí. Það hefst kl. 11 og stendur fram að göngu verkalýðsfélaganna.