Category

Í brennidepli

Ályktun um vernd frá stríðshörmungum

By Ályktun, Í brennidepli

Miðnefnd Samtaka hernaðarandstæðinga mótmælir harðlega þeirri ákvörðun dómsmálaráðherra Íslands að synja nýjum einstaklingum frá Úkraínu um tímabundið dvalarleyfi á Íslandi á grundvelli þess að viðkomandi vilji ekki gegna hermennsku þar í landi.

Mannréttindi eru víðtækari en einstök lög eða sáttmálar um mannréttindi telja upp. Það eru grundvallar mannréttindi hverrar manneskju að vera ekki þvinguð til þess að hætta lífi sínu eða drepa fólk eftir fyrirmælum annarra.

Ekkert í íslenskum lögum heimilar eða mælir fyrir um að synja skuli fólki um vernd frá stríðsátökum ef önnur stjórnvöld hafa ákveðið að skylda það fólk til þátttöku í stríði. Ekkert í samningum eða skuldbindingum Íslands við nein önnur ríki eða fjölþjóðlegar stofnanir mælir heldur fyrir um slíkt.

Íslenska ríkið hefur engan her og íslenskum ríkisborgurum er ekki skylt að gegna hermennsku. Það að synja öðru fólki um möguleika til að njóta þess sama, er skammarlegt.

Samtök hernaðarandstæðinga krefjast þess að íslensk stjórnvöld dragi þessa ákvörðun til baka.

Hírósíma eftir kjarnorkusprengjuna

Ræða á Kertafleytingu Hírósímadaginn

By Í brennidepli

Kæra samkoma

Í dag minnumst við þess að 81 ár er liðið frá því að kjarnorkusprengju var varpað á Hiroshima og þremur dögum síðar á Nagasaki í Japan, 6. og 9. ágúst 1945. Fyrir lok árs 1945 höfðu um 214 þúsund manneskjur dáið á hryllilegan og þjáningarfullan hátt, þar af um 38 þúsund börn.

Börn eins og hin fimm ára gamla Hirono Wataoka, sem brann til dauða á heimili sínu í Hiroshima ásamt 2 ára systur sinni Kimino og móður þeirra og föður. Kayoko Wataoka, 12 ára stóra systir þeirra var við byggingarvinnu við verslunargötu í borginni þegar sprengjan féll, líkamsleifar hennar fundust aldrei. Aðeins elsta barnið í fjölskyldunni, hin 16 ára Chizuko Wataoka, lifði árásina af. Daginn fyrir árásina hafði fjölskyldan látið taka fjölskyldumyndir. Chizuko hefur ekki getað tekið fjölskyldumyndir án þess að komast í uppnám, jafnvel upplifa ofsahræðslu, alla sína ævi síðan.

Börn, eins og jafnaldri hinnar 12 ára gömlu Kayoko, Masayuki Ueda var við rýmingarstörf ásamt bekkjarfélögum sínum í yngri deild menntaskólans í Hiroshima þegar sprengjan féll. Líkami hans brenndist svo illa að húðin rifnaði og hékk utan á honum í ræmum. Nágranni hans reyndi að hjálpa Masayuki, sem hrópaði á mömmu sína. Masayuki komst ekki lifandi heim til mömmu sinnar.

Börn, eins og Tsuru Yamashita, menntaskólanemi í Nagasaki. Hún lenti undir þungu húsabraki við sprenginguna en var dregin undan rústunum af bekkjarsystkinum sínum. Þau reyndu af fremsta megni að koma Tsuru í öruggt skjól en komust ekki lengra með hana en að árbakka sem þá var umkringdur eldum. Hún sá eldana nálgast sig óðfluga og var viss um að þeir yrðu henni loks að bana en var bjargað á síðustu stundu og var færð á spítala. Þann 11. ágúst 1945 var Tsuru búin að jafna sig það vel að pabbi hennar ákvað að fara heim með hana af spítalanum. Hún þakkaði öllum læknunum og hjúkrunarfræðingunum fyrir hjálpina kvaddi með björtu brosi. Shige Kawaguchi, systir hennar minntist þess hvað Tsugu var hamingjusöm að komast heim til sín. Hún gladdist yfir öllu, stóru sem smáu við heimilið og fólkið sitt og naut þess að hjálpa til við heimilisstörfin. Tveimur vikum seinna varð Tsuru mjög veik, hún fór að missa hár, það blæddi úr tanngómunum og hún hélt engu niðri. Tsuru þakkaði pabba sínum fyrir að hafa sent sig í góðan skóla og bað hann fyrir kveðju til skólastjórans og að skila því til hans að hún hefði reynt sitt besta við námið. Þann 30. ágúst fór Tsuru að æla blóði og missti það sem eftir var af hárinu. Þrátt fyrir að þjást hræðilega tók hún á móti öllum sem heimsóttu hana með bros á vör og þakkaði þeim fyrir hugulsemina. Tsuru dó 2 dögum síðar.

Þessar sögur leyfði ég mér að þýða af minningarvef Children´s peace memorial, en þar má finna sögur 438 af þeim 38 þúsund börnum sem dóu annað hvort samstundis eða innan örfárra daga, vikna eða mánaða vegna þessa mestu einstöku stríðsglæpa mannkynssögunnar. Mörg hundruð þúsund manneskjur dóu árum síðar, örkumluðust, fengu krabbamein eða fæddu andvana eða alvarlega veik börn vegna geislunareitrunar.

Kæra samkoma,

Ef til þess kæmi að kjarnavopni yrði beitt í þéttbýli í dag væri ómögulegt að koma fórnarlömbum þess til bjargar. Ógerningur væri fyrir slökkviliðsfólk, heilbrigðisstarfsfólk og björgunarsveitarmenn að athafna sig. Þetta vitum við vegna þess að sprengingarnar í Hiroshima og Nagasaki eyðilögðu 42 af 45 spítölum á svæðinu og kostuðu 90% allra lækna og hjúkrunarfræðinga lífið. Langflest fórnarlömb sprengjanna dóu án nokkurar læknisaðstoðar eða verkjastillingar.

Þessar hræðilegu staðreyndir minna óneitanlega á þau kerfisbundnu morð sem Ísraelsríki stundar á heilbrigðisstarfsfólki á Gaza í dag, og þá kerfisbundnu útrýmingu á spítölunum á Gaza sem átt hefur sér stað undanfarin ár. Þar hafa yfir tuttugu þúsund börn verið myrt og 45 þúsund til viðbótar alvarlega særð án þess að nokkur virðist fá rönd við reist. Þau sem eftir lifa hafa engan aðgang að læknisaðstoð eða líkn af nokkru tagi. Ekkert réttlætir þessa stríðsglæpi.

Rétt eins og ekkert réttlætir noktun kjarnavopna. Ekkert réttlætir tilvist kjarnavopna. Þau eru í eðli sínu stríðsglæpur, þjóðarmorð í einum gjöreyðandi kjarnaoddi. En þrátt fyrir þessi augljósu og aðkallandi sannindi hefur aldrei verið talin jafn mikil hætta á að hryllingurinn í Hiroshima og Nagasaki endurtaki sig heldur en einmitt í dag.

Innrás Rússa í Úkraínu markaði þáttaskil og hafa hótanir um notkun kjarnavopna farið stigvaxandi allar götur síðan. Brjálæðingurinn í Hvíta húsi Bandaríkjanna hótaði notkun þeirra gegn Íran fyrir örfáum vikum síðan og kjarnorkuveldin eru farin að stækka kjarnavopnabúr sín á ný, eftir margrar ártuga samdrátt.

Tilkoma gervigreindar og sívaxandi notkun hennar í hernaðaraðgerðum um heim allan eykur enn á kjarnorkuvána. Nýleg rannsókn á vegum Kings College í London sýnir fram á þá gríðarlegu áhættu sem felst í því að tengja gervigreind við kjarnorkuvopn. Rannsóknin fólst í því að þrjú stærstu gervigreindarlíkönin voru sett í kjarnorkukrísuhermi, þeim var stillt upp í átök hvert við annað og gátu valið að stigmagna átökin eða draga úr spennu. Ekkert líkananna kaus að draga úr spennu og öll voru þau tilbúin að beita kjarnavopnum og gerðu það í 64-87% tilfella.

Við vitum ekki til þess að gervigreind hafi verið tengd við kjarnorkukerfi enn sem komið er en þó er líklegt að hún verði notuð við greiningarvinnu og ákvarðanatöku um notkun kjarnavopna áður en langt um líður. Saga kjarnavopna geymir nú þegar mörg dæmi um tæknigalla, mistök og rangar meldingar um yfirvofandi kjarnorkuárásir sem allar hefðu getað endað með kjarnorkustríði. Tilkoma gervigreindar gerir slík mistök enn líklegri og styttir þann ótrúlega stutta ákvörðunartíma sem karlarnir með kjarnorkusprengjurnar hafa til þess að taka í gikkinn.

Kæra samkoma,

Sérfræðingar í kjarnavopnum telja nánast öruggt að börnin okkar muni upplifa gereyðingarmátt kjarnavopna á ævinni. Við getum ekki staðið aðgerðarlaus hjá. Við verðum að krefjast þess að íslensk stjórnvöld gerist aðilar að Samningi Sameinuðu þjóðanna um bann við kjarnavopnum. Við verðum að krefjast þess að íslensk stjórnvöld beiti sér fyrir alþjóðasamningi um bann við framleiðslu og notkun gervigreindavopna. Og við verðum að berjast fyrir því í dag sem aðra daga að alþjóðleg mannúðarlög séu virt, alltaf, í öllum tilfellum, sama hvar og sama gagnvart hverjum.

Í kvöld minnumst við barnanna Tsuru, Masayuku, og systranna Hirono, Kimiyu og Kayoko sem fengu ekki að vaxa úr grasi og þeirra hundraða þúsunda sem liðu vítiskvalir vegna þess að sprengjum að nafni „Little boy“ og „Fat man“ var varpað á Hiroshima og Nagasaki árið 1945.

Við minnumst þeirra og krefjumst að kjarnavopnum verði aldrei framar beitt. Við krefjumst afvopnunar og eyðingar allra kjarnavopna, því ekkert okkar er öruggt á meðan þau eru til

Þórhildur Sunna Ævarsdóttir

F-15 þota Bandaríkjahers á flugi yfir Keflavíkurflugvelli

Ályktun um herstöðva­samninginn

By Ályktun, Í brennidepli

Landsfundur Samtaka hernaðarandstæðinga fordæmir nýlega varnar- og öryggismálastefnu sem samþykkt var einróma á Alþingi fyrr á árinu. Stefna þessi, sem virðist að miklu leyti eiga að víkja til hliðar gildandi þjóðaröryggisstefnu, leggur höfuðáherslu á aðildina að Nató og hernaðarsamstarf við Bandaríkin á grunni herstöðvasamningsins frá 1951 sem grunnstoða íslenskrar utanríkisstefnu.

Það voru stórkostleg mistök að herstöðvasamningnum hafi ekki verið sagt upp þegar herstöð Bandaríkjamanna á Miðnesheiði var lokað á árinu 2006. Með samningnum og seinni viðaukum við hann, er Ísland flækt í net Bandaríkjanna sem hafa í raun fullt sjálfdæmi um umsvif sín og viðbúnað á Íslandi. Ásælni Bandaríkjanna í Grænland er alvarleg aðvörun um hvaða ógn stafar af hinum meinta bandamanni.

Jafnframt leiðir yfirstandandi árásarstríð Bandaríkjanna og Ísraels í Miðausturlöndum glögglega í ljós hvílík hætta er búin hverju því ríki sem treystir Bandaríkjunum og Bandaríkjaher fyrir öryggi sínu.

Herstöð er skotmark!

Loftárásir á heimili í Tehran

Ályktun um stríð í Mið-Austurlöndum

By Ályktun, Í brennidepli
Loftárásir á heimili í Tehran

Á síðustu mánuðum hefur heimurinn horft upp á óvenju grímulaus brot stórvelda á alþjóðalögum. Bandaríkin og Ísrael hafa í sífellu farið með árásum og hótunum gagnvart öðrum ríkjum, án þess að hirða um að ljá þeim aðgerðum nokkurt lögmæti. Mannrán, loftárásir og hótanir um innrásarstríð hafa dunið á heiminum það sem af er ári. Ábyrgðarleysið er fullkomið, þar sem hvorki er hirt um hættuna á að íhlutanirnar snúist upp í allsherjarstríð eða afleiðingarnar fyrir efnahagskerfi heimsins.

Allt tal um Bandaríkin sem forysturíki lýðræðis sem standi vörð um frið og stöðugleika er nú fráleitt. Um langt skeið hafa Bandaríkin og önnur Nató-ríki grafið undan alþjóðalögum og mikilvægustu alþjóðastofnunum á borð við Sameinuðu þjóðirnar og stutt þjóðarmorð og yfirgang Ísraelsríkis. Nú erum við að súpa seyðið af því. Stríðið í Íran er aðeins eitt dæmi af mörgum um þetta, þar sem teflt er á tæpara vað en heimsbyggðin hefur séð á þessari öld. Linkuleg viðbrögð Evrópuríkja, þar með talið íslenskra stjórnvalda, eru stórkostlega ámælisverð. Betur færi á því að fylgja fordæmi Spánverja, sem einir þjóða í álfunni hafa mótmælt stríðinu af krafti og neitað að leggja því nokkurt lið.

Friðardúfa

Þjóðaröryggis­stefna til friðar

By Í brennidepli, Viðburður

Miðvikudaginn 18. mars kl. 20:00 í Friðarhúsi býður SHA til fundar um drög að þjóðaröryggis-, varnar- og öryggismálastefnu Samtaka hernaðarandstæðinga.

Fyrr á árinu samþykkti Alþingi samhljóða öryggis- og varnarstefnu sem SHA hafa gagnrýnt harðlega. Bæði byggir hún á heimsmynd sem er að hruni komin þar sem Nató og “Varnarsamningurinn” við BNA eru meginstoðir íslenskrar utanríkisstefnu. Í stað þess að bregðast við þessari breyttu heimsmynd til þess að nýta styrkleika Íslands sem friðsams og herlauss ríkis opnar hún á aukna hervæðingu landsins til að þóknast æ dyntóttari herveldum beggja vegna Atlantshafs.

Til að bregðast við þessu hyggst SHA setja fram valkost við þessa stefnu með sinni eigin þjóðaröryggis- varnar og öryggismálastefnu sem byggi á raunsæju mati á því hvaða raunverulegu ógnir steðja að íslenskri þjóð og hvernig megi byggja á styrkleikum íslensks samfélags. Miðnefnd SHA hefur rissað upp drög að stefnu sem hægt er að ræða og stefnt er að því að leggja hana fyrir landsfund í lok mánaðar til samþykktar.

Eins er hægt að senda athugsemdir í tölvupósti á sha@fridur.is

Ályktun um árásir á Íran

By Ályktun, Í brennidepli

Miðnefnd Samtaka hernaðarandstæðinga fordæmir loftárásir Bandaríkjanna og Ísraels á Íran. Þessar árásir af fyrra bragði eru í algjöru trássi við alþjóðalög og munu einungis leiða til hörmunga fyrir íbúa Írans, ala á óstöðugleika á svæðinu og ógna heimshagkerfinu.

Heimur þar sem voldug herveldi varpa sprengjum á önnur lönd og myrða leiðtoga þeirra að eigin geðþótta er háskalegur fyrir okkur öll. Sérhver slík aðgerð grefur undan alþjóðalögum og réttlætingar í þá veru að árásirnar séu fyrirbyggjandi eða miði að því að steypa kúgunarstjórn eru fráleitar þegar horft er til grimmdarverka og hernaðaríhlutana Ísraels og Bandaríkjanna síðustu ár. Saga síðustu áratuga ætti að kenna okkur að íhlutunarstefna Bandaríkjanna og annarra stórvelda í Miðausturlöndum hefur einungis leitt til blóðsúthellinga og hörmunga, jafnvel svo áratugum skiptir.

Samstöðufundur með grænlensku þjóðinni

Ávarp flutt á samstöðufundi með grænlensku þjóðinni

By Í brennidepli

Margmenni var á fundi Samtaka hernaðarandstæðinga við sendiskrifstofu Grænlands laugardaginn 24. janúar. Hernaðarandstæðingurinn Steinunn Þóra Árnadóttir, fyrrum formaður Vestnorræna ráðsins flutti meðfylgjandi ræðu:

Ágæta samkoma

Við erum hér saman komin til samstöðufundar með nágrönnum okkar og vinum á Grænlandi.

Grænland – þetta ótrúlega fallega og gríðarlega stóra og strjálbýla land, sem er okkar næsti nágranni! Slípuðu beru klappirnar, ísinn og ísjakarnir sem mynda síbreytileg listaverk á sjónum, birkivöxnu hlíðarnar í fjörðunum í suðri og svo öll víðáttan.

Ég þekki engan sem hefur komið til Grænlands og ekki heillast algjörlega. Það voru mikil forréttindi að vera formaður Íslandsdeildar Vestnorræna ráðsins í nokkur á og vera í eitt ár formaður þess – ráðsins sem formgerir þingmannasamstarf þriggja ríkja: Íslands, Grænlands og Færeyja.

Áhersla Grænlendinga þar hefur verið skýr:
• Ekkert um Grænland án Grænlendinga.
• Norðurslóðir eru ekki taktískt landsvæði í stórveldabrölti heldur heimili fólks.
• Krafan um að vera fullgildur aðili að Norðurlandaráði, krafa sem Íslendingar hafa stutt með ráðum og dáð.

Það hefur verið vægast sagt ömurlegt að fylgjast með dólgshætti, fyrirlitningu og frekju Donalds Trump forseta valdamesta og öflugasta hernaðarveldis veraldar síðustu daga, vikur og mánuði.

Og einhver kunna að spyrja – það er að segja einhver önnur en við sem hér erum saman komin í dag – hvort það skipti einhverju máli að halda fund til stuðnings Grænlendingum og Grænlandi? Og svarið er skýrt – Það skiptir máli!

Hvað Trump sjálfan varðar held ég að það skipti reyndar engu máli, ekki frekar en aðra ráðamenn í heiminum sem gefa skít í Alþjóðalög eða almenning.

En það skiptir máli fyrir grænlensku þjóðina að finna að fólk stendur með þeim og hagsmunum þeirra. Og það skiptir mál að aðrir þjóðarleiðtogar sjái að almenningur víðsvegar um heiminn standi með Grænlendingum.

Það hefur verið fróðlegt og oft og tíðum gaman að fylgjast með baráttu Grænlendinga á liðnum árum og áratugum fyrir réttindum sínum og kröfum um að þeir fari með sín eigin mál. Það hafa vissulega verið ólíkar skoðanir um það hversu hratt beri að krefjast sjálfstæðis frá Dönum og fyrir kosningarnar fyrir tæpu ári var áhersla margra á að velferðar- og heilbrigðismál, menntamál og styrking innviða væru brýnust, og liður í því að þétta og styrkja samfélagið til að undirbúa sjálfstæðið.

Á sama tíma voru Grænlendingar, með grænlenskar konur í fararbroddi, að krefjast réttlætis í hinu hræðilega lykkjumáli. Þar sem getnaðarvarnarlykkjum var komið fyrir án samþykkis og vitundar í þúsundum grænlenskra stúlkna og kvenna í þeim tilgangi að draga úr frjósemi þeirra. Þjóðarmorð var orðið sem sum notuðu. Að lokum baðst danski forsætisráðherrann afsökunnar vegna málsins og konur fá greiddar skaðabætur. Skaðabætur sem grænlenskar konur hafa bent á að sé viðurkenning á því sem þeim var gert en bæti að sjálfsögðu ekki skaðann sem heilsuleysi og barnleysi gegn þeirra vilja hefur haft í för með sér.

Það virtist ástæða til bjartsýni fyrir framtíðina.

Það er óhætt að segja að yfirlýsingar Trump um að Bandaríkin verði að eignast Grænland hafi vakið upp ugg í fólki. Eðlilega! Við hér í  okkar heimshluta höfum horft upp á risaveldin vaða yfir fátæk og fjarlæg ríki á skítugum skónum og fótum troða sjálfsákvörðunarrétt þeirra. Við höfum séð ríkisstjórnum steypt, auðlindum rænt og lögmætum stjórnvöldum skipað fyrir verkum. En það var langt í burtu! Þess vegna bregður okkur við þegar þeir sem voru skilgreindir sem bandamenn eða vinaþjóðir beita sömu brögðum hér heima í túngarðinum hjá okkur. Gegn okkar næstu nágrönnum.

Við þessar aðstæður verður ógn hernaðarveldisins skyndilega þrúgandi. Í grænlenskum fjölmiðlum hefur mátt lesa um það hvernig fólki hefur liðið illa, það sofið illa á nóttinni og kviðið því að heyra hvað komi næst frá Trump.

Grænlendingar eru líkt og við Íslendingar með Varnarsamning við Bandaríkin. Sá samningur veitir raunar Bandaríkjunum rétt til að gera nánast það sem þeir vilja ef þeir telja ástæðu til. Þessi samningur var ekki gerður í neinu samráði við Grænlendinga sjálfa. Hann var gerður milli bandarískra og danskra stjórnmálamanna. Stórum hlutum hans var haldið leyndum, meira að segja fyrir danska þinginu – hvað þá heimamönnum.

Þetta er ljót saga. Til þess að rýma fyrir herstöðvunum var fólk flutt nauðungarflutningum af heimilum sinum og burt úr byggðalögum. Þegar Bandaríkjaher ákvað að geyma kjarnorkuvopn á Grænlandi var það gert með leynisamningi. Svo árum skipti flugu bandarískar herflugvélar í sífellu með kjarnorkuvopn innanborðs yfir Grænlandi og lentu bara til að taka eldsneyti. Eins slík vél fórst með þeim afleiðingum að geislavirk efni bárust út í umhverfið. Verkamennirnir sem fengnir voru til að moka upp geislavirkan snjóinn fengu ekkert að vita um það og fjöldi þeirra dó úr krabbameini.

Undanfarna áratugi hefur bandaríkjaher lokað öllum grænlensku herstöðvum nema einni og skilið eftir sig kjarnorkuúrgang, olíumengun og drasl sem ekkert bendir til að ætlunin sé að hreinsa. Í þeim herstöðvum sem Bandaríkin kunna nú að vilja opna á Grænlandi verða sömu kröfur gerðar og Bandaríkjamenn fengu dönsk stjórnvöld til að samþykkja á dögunum varðandi bandarískar herstöðvar í Danmörku: innan þeirra gilda bandarísk lög. Danskir dómstólar mega ekki dæma í afbrotum sem þar kunna að vera framin.

Bandaríkin hafa alltaf verið knúin áfram af heimsvaldastefnu og hafa ekki hikað við að víkja til hliðar alþjóðalögum til að gagnast eigin hagsmunum – við erum hinsvegar vanari því að íhlutanir og árásarstríð eigi sér stað í öðrum og fjarlægari heimshlutum.
Gaza, Venesúela – man einhver Írak, Afganistan, Líbýu?

Við hernaðarandstæðingar höfum alla tíð bent á það að Varnarsamningurinn og raunar aðildin að Atlantshafsbandalaginu hafi alltaf snúist um varnir og hagsmuni Bandaríkjanna, ekki okkar. Og það sama gildir um Grænland – og Grænlendingar eru svo sannarlega að finna fyrir því núna.

Kæru félagar.

Um langt ára skeið var Norðurskautssvæðið skilgreint sem lágspennusvæði – og það var meðvituð pólitísk ákvörðun að hafa það svo. Nú virðist sú stefna fyrir bí, allavega eins og sakir standa. Hermenn Nató, norskir, sænskir, þýskir, franskir og hollenskir svo mætti áfram telja, ganga um götur Nuuk. Og hundruðum milljarða er lofað í aukna hernaðaruppbyggingu með tilheyrandi sóun og skaðlegum áhrifum á samfélag og umhverfi.

Við verðum að krefjast þess að aftur verði horfið til þeirrar stefnu að halda Norðurslóðum sem lágspennusvæði og koma í veg fyrir vígbúnaðarkapphlaup þar. Vígbúnaðarkapphlaup sem er fjármagnað og stýrt af evrópskum Natóríkjum er ekki síður háskalegt en brölt annarra risavelda. Grænlenska þjóðin á rétt á að lifa í friði og öryggi og ráða sinni framtíð sjálf án þess að vera undir hælnum á herjum erlendra ríkja sem hafa aðra hagsmuni en velferð og farsæld heimamanna efst í huga. Stöndum með Grænlendingum.

Steinunn Þóra Árnadóttir

Fáni Grænlands

Stöndum með Grænlandi

By Í brennidepli, Viðburður
Stuðningsfundur með sjálfsákvörðunarrétti Grænlands og mótmæli gegn heimsvaldastefnu Bandaríkjanna á torginu gegnt Grænlensku sendiskrifstofunni við Túngötu 5, laugardaginn 24. janúar kl. 12:00.
Steinunn Þóra Árnadóttir fyrrverandi formaður Íslandsdeildar Vestnorræna ráðsins flytur tölu. Anton Helgi Jónsson les ljóð. Frekari dagskrá kynnt síðar.
Bandaríkin hafa aldrei virt sjálfsákvörðunarrétt smáþjóða en nú hefur gríman fallið og stjórnvöld þar krefjast yfirráða yfir öllu vesturhveli jarðar í krafti hernaðarvalds. Trump hefur hótað íhlutunum og vanvirt fullveldi nágrannaríkja sinna og meintra bandamanna, ráðist inn í Venesúela þvert á öll alþjóðalög og hótar nú hervaldi og efnahagsþvingunum til þess að sölsa undir sig Grænland í afturhvarfi til nýlendustefnu 19. aldar.
Sýnum Grænlendingum stuðning og höfnum kúgunartilburðum Bandaríkjanna og undirlægjuhætti gagnvart þeim.

Umræðufundur um Grænland og Venesúela

By Í brennidepli, Viðburður

Árás Bandaríkjanna á Venesúela og ránið á forseta landsins hefur vakið upp spurningar um framhaldið enda hafa Bandaríkin langa og blóðuga sögu íhlutana í Rómönsku-Ameríku.

Þó að aðferðirnar séu gamalkunnugar er opinbert skeytingarleysið um alþjóðalög ákveðin nýlunda og það hefur aftur kynnt undir ótta um að Grænland kunni að vera næsta skotmarkið.

Hittumst og ræðum málin óformlega frá sjónarhorni hernaðarandstæðinga í Friðarhúsi miðvikudaginn 14. janúar kl. 20:00. Gunnvör Rósa Eyvindardóttir stjórnmálafræðingur sem hefur rannsakað Venesúela opnar umræðuna.

Ályktun um árás Bandaríkjanna á Venesúela

By Ályktun, Í brennidepli

Miðnefnd Samtaka hernaðarandstæðinga fordæmir freklega árás Bandaríkjanna á Venesúela og ránið á forsetanum Nicolás Maduro laugardaginn 3. janúar.

Um áratuga skeið hafa Bandaríkin hlutast til um málefni ríkja Rómönsku Ameríku, skipulagt þar valdarán, stutt hryðjuverkahópa eða haft áhrif á kosningar. Sú saga er löng og einkennist af skýlausum brotum á alþjóðalögum og fullveldisrétti landa. Um árabil hefur Venesúela mátt sæta grimmilegu hafnbanni og efnahagsþvingunum sem valdið hafa mikilli neyð meðal almennings. Við það hafa bæst ítrekaðar ólöglegar árásir á báta og rán á olíuskipum. Mannskæðar árásir á Venesúela og ránið á forsetanum nú eru hins vegar óvenjulegar að því leyti að Bandaríkjastjórn gerir enga tilraun til að ljá þeim lögmæti. Þess í stað eru þær staðfesting á nýsamþykktri þjóðaröryggisstefnu Bandaríkjanna þar sem þau áskilja sér rétt til að fara sínu fram á skilgreindu áhrifasvæði sínu og beita hervaldi hvar sem þeim hentar.

Samtök hernaðarandstæðinga fordæma þessa árás og það fullkomna virðingarleysi Bandaríkjanna við alþjóðalög sem hún sýnir. Það er krafa samtakanna að íslensk stjórnvöld og utanríkisráðherra fordæmi þessa framgöngu með afdráttarlausum og skýrum hætti í stað þess að réttlæta löglausa innrás og mannrán sem „velheppnaða aðgerð“. Meðvirkni Íslands og annarra Nató-ríkja með framferði Bandaríkjanna líkist einna helst ofbeldissambandi. Afleiðingin af slíkjum undirlægjuhætti verður einungis áframhaldandi ofbeldi og enn háskalegri veröld.