StefÃ¡n PÃ¡lsson, Author at Friður.is
Fjölréttað á fjáröflunarmálsverði
Fjáröflunarmánuður Friðarhúss verður haldinn föstudagskvöldið 31. mars. Að þessu sinni munu félagar í miðnefd skipta með sér matseldinni og leggja á hlaðborð. Meðal rétta:
Lambapottréttur vinstriróttæklingsins
Friðsælt og guðdómlegt blómkálsgratín
Kjúklingur í kúskús andheimsvaldasinnans
Víetnömsk fiskisúpa gegn stríði
Kjarnorkuvopnalaus brauð ásamt heimagerðum hummus
Afvopnunarsalat
Svavar Knútur mun taka lagið að borðhaldi loknu. Að venju er sest að snæðingi kl. 19. Verð kr. 2.000.
Fyrsti fundur miðnefndar
Nýkjörin miðnefnd SHA kemur saman til fundar í fyrsta sinn n.k. þriðjudagskvöld 28. mars í Friðarhúsi. Fundurinn hefst kl. 20. Fundir miðnefndar eru öllum opnir.
The post Fyrsti fundur miðnefndar appeared first on Friður.is.
Ályktanir landsfundar SHA
Ályktun um herlaust land
Landsfundur Samtaka hernaðarandstæðinga haldinn 18. mars 2017 minnir á hve jákvætt skref var stigið fyrir rúmum áratug þegar bandarísku herstöðinni á Miðnesheiði var lokað. Herstöðin var hluti af vígbúnaðarneti Bandaríkjanna og þjónaði markmiðum heimsvaldastefnunnar. Föst vera erlends herliðs á landinu var jafnframt hrein ógn við öryggi landsmanna.
SHA vara við allri viðleitni í þá átt að endurvekja herstöðina í nokkurri mynd. Ljóst er að jafnt í bandaríska sem íslenska stjórnkerfinu er vilji fyrir slíku og eru framkvæmdir við flugskýli á Keflavíkurflugvelli til marks um það. SHA árétta andstöðu sína við öll hernaðarumsvif á Íslandi, þar á meðal flugæfingar þær sem ganga undir nafninu loftrýmisgæsla. Þá minna samtökin á kröfu sína um að varnarsamningi Íslands og Bandaríkjanna verði sagt upp.
Ályktun um stríð í Miðausturlöndum
Sex ár eru um þessar mundir frá upphafi stríðsins í Sýrlandi. Það hefur kallað ólýsanlegar hörmungar yfir íbúa landsins og lagt flesta innviði þess í rúst. Stríðsaðilar verða tafarlaust að leggja niður vopn, enda löngu ljóst að ekki verður bundinn endir á ofbeldið nema með samningum.
Hörmungarnar í Sýrlandi eru jafnframt enn einn áfellisdómurinn yfir íhlutunarstefnu stórveldanna, sem ýta undir og blanda sér í deilur víðs vegar um lönd. Hernaðaríhlutun og vopnasala áhrifaríkja hefur verið olía á ófriðarbálið og dregið úr öllum líkum á friðsamlegum lausnum.
Sífellt víðar má sjá hörmulegar afleiðingar stefnu Nató-ríkja í málefnum Miðausturlanda. Stríðið í Afganistan hefur nú staðið í á sautjánda ár, ekkert lát er á óöldinni í Írak og í Lýbíu hefur ríkt upplausnarástand allt frá innrás Nató árið 2011. Einhverjar verstu hörmungarnar standa þó yfir í Jemen, vegna stríðsrekstrar Sádi Araba með fullum stuðningi forysturíkja Nató. Þar í landi blasir hungursneyð við milljónum manna, en skeytingarleysi alþjóðlegra fjölmiðla er engu að síður nær algjört.
Stríðunum verður að linna!
The post Ályktanir landsfundar SHA appeared first on Friður.is.
Ný miðnefndSHA
Ný miðnefnd SHA var kjörin á landsfundi samtakanna um liðna helgi. Hana skipa:
Aðalmenn:
Auður Lilja Erlingsdóttir (formaður)
Guttormur Þorsteinsson
Hildur Lilliendahl Viggósdóttir
Sigurður Flosason
Stefán Pálsson
Steinunn Ása Sigurðardóttir
Þorvaldur Þorvaldsson
Varamenn:
Bjarni Þóroddsson
Ísabella Ósk Másdóttir
Rétt er að taka fram að engin hefð er fyrir að gera grein fyrir aðal- og varamönnum í starfi miðnefndar.
Landsráðstefna SHA 2017
Landsráðstefna SHA erður haldinn laugardaginn 18. mars í Friðarhúsi, Njálsgötu 87
Dagskrá:
11:00
Hefðbundin aðalfundarstörf
– Rætt verður um hvort ráðast skuli í að rita sögu herstöðvabaráttunnar
13:00 – 14:00
Við hverju má búast af Trump-stjórninni? – Magnús Sveinn Helgason sagnfræðingur fjallar um stöðuna í bandarískum stjórnmálum. Almennar umræður.
14:00 – 15:00
Utanríkis- og friðarmálin á þingi. – Þingmennirnir Rósa Björk Brynjólfsdóttir og Gunnar Hrafn Jónsson reifa alþjóðamálin eins og þau horfa við kjörnum fulltrúum. Almennar umræður.
16:00
Áætluð fundarlok
The post Landsráðstefna SHA 2017 appeared first on Friður.is.
Febrúarmálsverður í Friðarhúsi
Eldamennskan á hinum mánaðarlega fjáröflunarmálsverði Samtaka hernaðarandstæðinga í Friðarhúsi, föstudaginn 24. febrúar, verður að þessu sinni í höndum bræðranna Gísla og Friðriks Atlasona. Matseðillinn verður sem hér segir:
Avanti o popolo, Lasagne rossa
Gómsæt grænmetissúpa friðarsinnans
Með þessu er borið fram ljúfbakað brauð og salat
Súkkulaðikaka lífsins ásamt nýlöguðu kaffi í eftirrétt.
Skemmtidagskrá verður kynnt síðar.
Verð kr. 2.000. Borðhald hefst kl. 19. Öll velkomin
The post Febrúarmálsverður í Friðarhúsi appeared first on Friður.is.
Hver er Chelsea Manning: fundur á þriðjudag
Eitt síðasta embættisverk Obama Bandaríkjaforseta var að stytta fangelsisdóminn yfir uppljóstraranum Chelsea Manning. Á sínum tíma fletti Manning ofan af víðtækum stríðsglæpum Bandaríkjastjórnar í einhverjum mikilvægasta gagnaleka síðustu ára. Hver er Chelsea Manning og hvaða máli skiptu upplýsingarnar sem hún kom á framfæri?
Samtök hernaðarandstæðinga boða til fundar um þetta málefni þriðjudagskvöldið 31. janúar kl. 20 í Friðarhúsi. Birgitta Jónsdóttir þingmaður mætir og rekur þessa mikilvægu sögu. Umræður á eftir.
The post Hver er Chelsea Manning: fundur á þriðjudag appeared first on Friður.is.
SHA sendir þingmönnum bréf
Samtök hernaðarandstæðinga sendu eftirfarandi bréf til allra þingmanna á Alþingi með hvatningu til að vinna að friðar- og afvopnunarmálum:
Reykjavík 25. janúar 2017
Kæri þingmaður.
Til hamingju með verkefnið sem þér hefur verið falið. Miðnefnd Samtaka hernaðarandstæðinga óskar þér velfarnaðar í störfum þínum á Alþingi.
Samtök hernaðarandstæðinga eru fjölmennustu baráttusamtök friðar- og afvopnunarsinna á Íslandi. Frá upphafi hefur megináhersla samtakanna verið barátta gegn vígvæðingu og hernaði. Sérstök áhersla hefur verið lögð á baráttuna gegn kjarnorkuvopnum, aðild Íslands að hernaðarbandalögum og hernaðarumsvifum hér á landi.
Við hvetjum þingmenn til að kynna sér friðar- og afvopnunarmál og beita sér á þeim vettvangi í störfum sínum. Má þar tiltaka nokkur málefni:
• Á síðustu árum hafa blóðugar styrjaldir geisað í Miðausturlöndum. Þær hafa kostað gríðarlegan fjölda mannslífa og valdið ómældum þjáningum og eyðileggingu samfélaga. Í þeim öllum eiga vestræn ríki stóran hlut að máli, ýmist sem upphafsaðilar, beinir og óbeinir þátttakendur eða sem vopnasalar. Við hvetjum þig til að beita þér fyrir því með öllum tiltækum ráðum að stórveldin láti af íhlutunarstefnu sinni og að böndum verði komið á alþjóðlega vopnasölu.
• Aldrei hafa eins margir jarðarbúar verið á flótta og nú, ekki síst vegna styrjaldanna í Miðausturlöndum. Ábyrgð Nató-ríkja á þessu ástandi er óumdeilanleg og því með engu móti réttlætanlegt að sömu lönd axli ekki ábyrgð á afleiðingum gjörða sinna. Við hvetjum þig til að beita þér fyrir því að Ísland styðji við flóttamannahjálp með sem öflugustum hætti, þar á meðal með því að taka við miklu fleira fólki en nú er áætlað.
• Ísland er aðili að hernaðarbandalaginu Nató. Hvað sem hástemmdum yfirlýsingum um lýðræðishlutverk bandalagsins líður er Nató fyrst og fremst hernaðarlegt tæki sem ætlað er að styðja við hagsmuni lykilríkja þess, einkum Bandaríkjanna. Hræsnin í lýðræðisfagurgalanum sést best af aðild Tyrkja að Nató, sem þessi dægrin lúta hálfgerðri einræðisstjórn og berja miskunnarlaust niður Kúrdaþjóðina með blessun Nató. Við hvetjum þig til að beita þér fyrir úrsögn Íslands úr bandalaginu.
• Kjarnorkuvopn eru í dag síst minni ógn er á tímum kalda stríðsins. Kjarnorkuveldum fjölgar og vopnin verða sífellt auðveldari í framleiðslu. Möguleikar á útrýmingu þessara skaðræðisvopna fara þverrandi og telja fræðimenn að nú séu síðustu forvöð að grípa í taumana. Íslendingar geta lagt lóð á vogarskálarnar með tvennum hætti: með því að tala fyrir kjarnorkuafvopnun á alþjóðavettvangi og með því að friðlýsa Ísland og íslenska lögsögu fyrir allri geymslu og meðferð þessara vopna
• Nokkrum sinnum á ári er Ísland gert að vettvangi æfingaflugs orrustuflugmanna Nató-ríkja í flugæfingum undir dulnefninu „loftrýmisgæsla.“ Þessi gæsla er ekkert annað en niðurgreiddar heræfingar sem eru engum til gagns en mörgum til töluverðs ama. Við hvetjum þig til að beita þér fyrir því að flugæfingum þessum verði hætt hið snarasta.
• Milli Íslands og Bandaríkjanna er í gildi svokallaður varnarsamningur sem felur í sér víðtækar heimildir Bandaríkjastjórnar til að koma sér upp hernaðaraðstöðu á Íslandi. Nýlegar bókanir við samninginn hafa enn frekar greitt fyrir þessu. Það er mat Samtaka hernaðarandstæðinga að rétt sé að segja samningnum upp nú þegar og hætta að binda trúss okkar í alþjóðamálum við bandaríska duttlunga. Nýleg forsetaskipti í Washington ættu heldur að styrkja það álit.
• Flestar styrjaldir og átök í heiminum eiga sér efnahagslegar rætur. Raunverulegur friður verður aldrei tryggður nema með félagslegu réttlæti í heiminum. Við viljum hvetja þig í störfum þínum til að vinna gegn kúgun, arðráni og ofbeldi í hvaða mynd sem er, hvarvetna í heiminum.
F.h. miðnefndar SHA
Auður Lilja Erlingsdóttir formaður
The post SHA sendir þingmönnum bréf appeared first on Friður.is.
Janúarmálsverður í Friðarhúsi
Fyrsti fjáröflunarmálsverður ársins verður haldinn í Friðarhúsi föstudagskvöldið 27. janúar n.k. Freyr Rögnvaldsson sér um matseldina og er matseðillinn ekki af verri endanum:
Hnetusteik róttæklingsins
Lambalæri friðarsinnans
Nóg af salati
Kaffi og konfekt á eftir.
Að borðhaldi loknu mun tónlistarmaðurinn Sváfnir Sig taka lagið.
Verð kr. 2.000. Sest verður að snæðingi kl. 19:00. Öll velkomin.
The post Janúarmálsverður í Friðarhúsi appeared first on Friður.is.
Friðargöngur í skugga ofbeldis og stríðsrekstrar – gengið í 37 ár
Fréttatilkynning frá Samstarfshópi friðarhreyfinga:
Daglega berast fregnir af skelfilegum afleiðingum styrjalda víðs vegar um veröldina. Sýrland, Jemen, Írak og Líbýa eru öll nærtæk dæmi. Milljónir manna eru á flótta og hjálparstofnanir standa frammi fyrir gríðarlegu verkefni. Á sama tíma hefur sjaldan jafn háum upphæðum verið sólundað í vígbúnað.
Í skugga þessa vilja íslenskir friðarsinnar hvetja fólk til að taka sér hlé frá jólaundirbúningi til að leggja sín lóð á vogarskálar friðar og afvopnunar. 37. árið í röð verður friðarganga niður Laugaveginn haldin á Þorláksmessu. Slíkar göngu verða að venju einnig haldnar á Ísafirði og Akureyri.
Í Reykjavík stendur Samstarfshópur friðarhreyfinga fyrir göngunni. Safnast verður saman á Hlemmi frá klukkan 17:45 og leggur gangan af stað klukkan 18:00. Fólk er hvatt til að mæta tímanlega. Friðarhreyfingarnar selja göngufólki kerti á Hlemmi. Í lok göngu verður fundur við Austurvöll þar sem Björk Vilhelmsdóttir, flytur ávarp. Söngfólk úr Hamrahlíðarkórnum og Kór Menntaskólans við Hamrahlíð syngur í göngunni og við lok fundar undir stjórn kórstjórans Þorgerðar Ingólfsdóttur. Fundarstjóri er Haukur Guðmundsson.
Á Ísafirði leggur friðargangan af stað frá Ísafjarðarkirkju klukkan 18:00. Gengið er niður á Silfutorg. Lúðrasveit Tónlistarskólans spilar. Brynja Huld Óskarsdóttir flytur ávarp og Helena Björg Þrastardóttir flytur ljóð.
Á Akureyri hefst friðargangan klukkan 20. Safnast verður saman við Samkomuhúsið við Hafnarstræti og gengið út á Ráðhústorg. Ræðumaður er Pétur Pétursson læknir en Sigríður Íva Þórarinsdóttir syngur. Gangan á Akureyri er á vegum Friðarframtaks á Akureyri.
Samstarfshópur friðarhreyfinga:
Félag leikskólakennara.
Friðar- og mannréttindahópur BSRB
Menningar og friðarsamtökin MFÍK
Samhljómur menningarheima
Samtök hernaðarandstæðinga
SGI á Íslandi mannúðar og friðarsamtök búddista
The post Friðargöngur í skugga ofbeldis og stríðsrekstrar – gengið í 37 ár appeared first on Friður.is.