Monthly Archives

August 2014

Ræða við Minjasafnstjörnina á Akureyri

By Uncategorized

Ragnheiður Skúladóttir leikstjóri flutti ávarp á kertafleytingu á Akureyri þann 6. ágúst sl.

Kæra samferðafólk

Við erum hér saman komin til að minnast þess að atómsprengju var varpað á Hiroshima 6. ágúst 1945 kl. 08:15. 80.000 manns dóu þá þegar. Sprengjan hét “Little boy” eða lítill drengur.

Þremur dögum síðar var plútóníum sprengju varpað á Nagasaki. Hún hét “Fat man” eða feitur maður. Tölur eru eitthvað á reiki en talið er að á milli 39000 og 80000 manns létust vegna þeirrar sprengingar. Read More

Ávarp á kertafleytingu

By Uncategorized

Guðmundur Andri Thorsson rithöfundur flutti meðfylgjandi ávarp á kertafleytingunni á Tjörninni þann 6. ágúst.

Þegar manneskja deyr hverfur með henni heill heimur. Það hverfur ákveðið göngulag sem er ekki alveg eins hjá neinum öðrum, einhver sérstök handarhreyfing, viss svipbrigði, sérstakur hugsunarháttur, ákveðið orðalag, einhver sérviska, kækir, þetta ákveðna bros; sérstök þjáning hverfur og sérstök hamingja; þegar manneskja deyr hljóðnar um leið sérstakur hlátur í veröldinni eða grátur, sérstök atvik, eitthvert samhengi og eftir sitja aðeins minningar samferðafólks, því að þegar manneskja deyr raknar um leið upp flókið net samskipta við annað fólk, vonir og væntingar og kenndir til þeirra hverfa,tilgangur bundinn þeim. Það er ekki til of mikils mælst á þessari gnægtajörð að allar þær sérstöku manneskjur sem í heiminn koma fái notið tiltekinna lágmarksréttinda til jafns við aðra: hafi í sig og á og njóti verka sinna, geti athafnað sig í boðlegum kringumstæðum, fái að elska eins og eðlið býður hverjum og trúa á þann guð sem maður skynjar – eða trúa engu, eigi kost á því að geta orðið besta hugsanlega útgáfan af sér, – það er ekki til of mikils mælst að manneskja sem kemur í þennan heim fái að lifa, því að rétturinn til lífsins er öðrum rétti æðri, rétturinn til að fá að lifa eins og manni hefur verið mældur tími til og deyja svo þegar það er orðið tímabært. Read More

Aldrei aftur Hírósíma! Aldrei aftur Nagasakí!

By Uncategorized

Kertafleyting á Tjörninni í Reykjavík og á Akureyri miðvikudagskvöldið  6.ágúst 2014.

Frá árinu 1985 hafa íslenskir friðarsinnar fleytt kertum í minningu fórnarlamba kjarnorku-árásanna á Hírósíma og Nagasakí 6. og 9.ágúst 1945 og til að leggja áherslu á kröfuna um heim án kjarnorkuvopna. Um 200 þúsund manns létust  í árásunum á borgirnar Hírósíma og Nagasakí. Síðan hafa enn fleiri dáið meðal annars vegna geislavirkni af völdum sprengjanna og margir eiga enn um sárt að binda. Friðarsinnar telja mikilvægt að komandi kynslóðir dragi lærdóma af kjarnorkuárásunum svo slík vopn verði aldrei framar notuð.

Þetta er því 30. kertafleytingin hér á landi. Um er að ræða hefð sem upprunin er í Japan, en athafnir af þessu tagi fara fram víða um heim.

Í Reykjavík hefst fleytingin klukkan 22:30  miðvikudaginn 6. ágúst. Safnast verður saman við suðvesturbakka Tjarnarinnar (við Skothúsveg).

Fundarstjóri er Saga Garðarsdóttir leikari , Guðmundur Andri Thorson rithöfundur flytur ávarp og  Grímur Helgason klarinettuleikari spilar við Tjörnina.  Aðgerðin er á vegum Samstarfshóps friðarhreyfinga, sem er samstarfsverkefni sjö friðarsamtaka og -hópa.

Á Akureyri verður einnig kertafleyting, sem þó hefst hálftíma fyrr eða kl. 22:00. Fleytt verður við Minjasafnsstjörnina. Samstarfshópur um frið stendur að fleytingunnni nyrðra.