Category

Viðburður

Októberfest

Októberfest-málsverður í Friðarhúsi

By Viðburður
Fjáröflunarmálsverðir Samtaka hernaðarandstæðinga í Friðarhúsi eru að jafnaði síðasta föstudag í mánuði, nú þann 30. október.
Bjarki Hjörleifsson sér um eldamennskuna sem verður alvöru þýsk októberfest-veisla með pylsum og bulsum fyrir kjötætur jafnt sem grænkera. Engar kröfur eru þó gerðar um lederhosen-klæðaburð gesta…
Húsið er opnað 18:30 en sest að snæðingi kl. 19. Að borðhaldi loknu verður kaffi og konfekt en því næst tekur við menningardagskrá þar sem Kristín Ómarsdóttir les úr nýrri bók sinni og Þorsteinn Vilhjálmsson gerir grein fyrir nýrri þýðingu. Nánari dagskrá kynnt síðar.
Verð kr. 3.000. Öll velkomin
Friðartónleikar með Joan Baez

Tónleikaupptaka með Joan Baez: 40 ár frá Höfðafundi

By Viðburður
Í tengslum við leiðtogafundinn í Höfða höfðu Samtök herstöðvaandstæðinga hraðar hendur og buðu Joan Baez til Íslands þar sem hún kom fram á friðarsamkomu í Gamla bíói. Um kvöldið hélt hún svo einkatónleika á sama stað. Ríkissjónvarpið tók þá skyndiákvörðun að sýna frá tónleikunum og var þeirra því hvergi getið í dagskrárauglýsingum. Tónleikarnir hafa aldrei verið sýndir aftur, eftir því sem næst verður komist: fyrr en nú.
Upptakan verður leikin í Friðarhúsi  þriðjudaginn 13. október kl. 20:00. Jafnframt munu þau Ingibjörg Haraldsdóttir og Árni Hjartarson segja frá aðdraganda þeirra og í hverju íslenskir friðarsinnar voru að snúast meðan á leiðtogafundinum stóð.
Í Friðarhúsi stendur jafnframt uppi veggspjaldasýning tengd baráttunni gegn kjarnorkuvopnum á níunda áratugnum.
Öll velkomin.
Kjötsúpa

Uppskerutíð – Fyrsti málsverður vetrarins

By Viðburður
Föstudaginn 25. september verður fyrsti fjáröflunarmálsverður Friðarhúss á þessu haustmisseri. Þar sem fé er komið af fjalli og garðávextir upp úr jörðinni munu meðlimir úr miðnefnd efna til súpuveislu.
  • Kröftug kjötsúpa
  • Gómsæt grænmetissúpa
  • Gnótt af brauði
  • Kaffi og konfekt.
Sest verður að snæðingi kl. 19. Að borðhaldi loknu mun Sverrir Jakobsson segja frá nýútgefinni bók sinni og Tinna Þorvalds Önnudóttir flytur brot úr Óperuverkinu Ástin er ein taugahrúga eftir Elísabetu Jökulsdóttur.
Verð kr. 3.000. Öll velkomin.
A film by Abby Martin, Earth's Greatest Enemy. Documenting the environmental cost of history's biggest empire

Kvikmyndasýning – Earth’s Greatest Enemy

By Viðburður
Samtök hernaðarandstæðinga sýna aftur heimildamyndina Earth‘s Greatest Enemy í Friðarhúsi, miðvikudaginn 23. september kl. 19:30 en hún sló í gegn síðasta vor og margir hafa kallað eftir því að hún yrði sýnd aftur. Aðgangur er ókeypis og eru öll velkomin. Húsið er opið til 22:00.
Heimildarmyndin er eftir bandaríska róttæklinginn Abby Martin og sameinar rannsóknarblaðamennsku, áhrifamikið myndefni og sögur frá samfélögum sem hafa þurft að líða fyrir hernaðarumsvif bandaríkjahers. Myndin hvetur áhorfendur til að íhuga þann kostnað og þær afleiðingar sem þau hafa í för með sér fyrir jörðina okkar.
Í myndinni er varpað ljósi á hvernig herinn leggur aðeins hernaðarlegt mat á aðgerðir en tekur ekki tillit til áhrifa þeirra á umhverfi og samfélög. Árásir hersins á olíubirgðastöðvar geta til dæmis valdið gífurlegri mengun og varanlegu tjóni á umhverfi og náttúru. Bandaríska varnarmálaráðuneytið er stærsti mengunarvaldur heims – það losar umtalsvert kolefni, mengar vatn og eyðileggur vistkerfi um allan heim. Allt hernaðarbrölt er undanþegið alþjóðlegum loftslagssamningum en að auki hefur bandaríkjastjórn sagt sig frá þeim samningum.
Myndin er 120 mínútur að lengd og er framleidd af Empire Files í Bandaríkjunum. Abby og kollegar hennar stunda fréttamennsku í þágu almennings.
Kertafleyting

Kertafleytingar 6. ágúst um land allt

By Tilkynningar, Viðburður

Kertafleytingar

Að venju munu íslenskir friðarsinnar í ár minnast kjarnorkuárásanna á Japan árið 1945 og minna á kröfuna um heim án kjarnorkuvopna. Kertafleytingar verða víða um land að kvöldi 6. ágúst. Fleytingartíminn er örlítið mismunandi frá einum stað til annars, en fleytt verður á sex stöðum: Reykjavík, Patreksfirði, Ísafirði, Akureyri, Seyðisfirði og Reyðarfirði.

  • Í Reykjavík er það Samstarfshópur friðarhreyfinga sem stendur fyrir aðgerðinni. Safnast verður saman við suðvesturenda Tjarnarinnar og hefst athöfnin kl. 22:30. Fundarstjóri er Ólöf Bjarki Antons. Þór Stefánsson flytur ljóð og Þórhildur Sunna Ævarsdóttir framkvæmdastjóri Courage International flytur ávarp. Kerti verða seld á 1.000 krónur og verður þeim fleytt í ljósaskiptunum eftir að dagskrá lýkur. Posi á staðnum.
  • Á Patreksfirði verður fleytt kl. 23:00 við Franska minnisvarðann, Aðalstræti 5. Einungis verður tekið við reiðufé.
  • Ísfirðingar byrja kl. 22:30 í fjörunni við Neðstakaupstað og mun Matthildur Helgadóttir Jónudóttir flytja ávarp.
  • Á Akureyri hefst samkoman strax kl. 22:00 við Leirutjörn. Ávarp flytur Hannes Sigurðsson lagerstarfsmaður og friðarsinni. Kerti á staðnum.
  • Seyðfirðingar byrja líka kl. 22:00. Komið er saman á Sólveigartorgi, fyrir framan skólann og sungið saman. Kerti seld á staðnum en einungis tekið við reiðufé.
  • Reyðfirðingar koma saman við Andapollinn kl. 22:00. Þar verður stutt dagskrá áður en kertum verður fleytt. Börn sérstaklega velkomin.
Íslenskir fánar

Þjóðaröryggis­stefna SHA afgreidd

By Viðburður

Kvöldið fyrir þjóðhátíðardag, þriðjudaginn 16. júní kl. 20, munu Samtök hernaðarandstæðinga afgreiða nýja þjóðaröryggisstefnu sína í Friðarhúsi, Njálsgötu 87. Stefnan hefur verið til umræðu innan samtakanna á liðnum mánuðum og var ítarlega rædd á landsfundi í vor. Nú er komið að því að leggja lokahönd á plaggið.

Öll velkomin.

Earth's greatest enemy plaggat

Heimildar­myndin Earth’s Greatest Enemy í Friðarhúsi

By Viðburður
Samtök hernaðarandstæðinga sýna heimildamyndina Earth‘s Greatest Enemy í Friðarhúsi miðvikudaginn 20. maí kl. 19:45. Aðgangur er ókeypis og eru öll velkomin.
Heimildarmyndin er eftir bandaríska róttæklinginn Abby Martin og sameinar rannsóknarblaðamennsku, áhrifamikið myndefni og sögur frá samfélögum sem hafa þurft að líða fyrir hernaðarumsvif bandaríkjahers. Myndin hvetur áhorfendur til að íhuga þann kostnað og þær afleiðingar sem þau hafa í för með sér fyrir jörðina okkar.
Í myndinni er varpað ljósi á hvernig herinn leggur aðeins hernaðarlegt mat á aðgerðir en tekur ekki tillit til áhrifa þeirra á umhverfi og samfélög. Árásir hersins á olíubirgðastöðvar geta til dæmis valdið gífurlegri mengun og varanlegu tjóni á umhverfi og náttúru. Bandaríska varnarmálaráðuneytið er stærsti mengunarvaldur heims – það losar umtalsvert kolefni, mengar vatn og eyðileggur vistkerfi um allan heim. Allt hernaðarbrölt er undanþegið alþjóðlegum loftslagssamningum en að auki hefur bandaríkjastjórn sagt sig frá þeim samningum.
Myndin er 120 mínútur að lengd og er framleidd af Empire Files í Bandaríkjunum. Abby og kollegar hennar stunda fréttamennsku í þágu almennings.
Hér má sjá sýnishorn úr myndinni.
Pálínuboð

Vormálsverður SHA: Pálínuboð miðnefndar

By Viðburður

Hefðbundinn fjáröflunarmálsverður SHA í Friðarhúsi féll niður í apríl vegna almennra frídaga. Í staðinn blásum við til vormálsverðar föstudaginn 8. maí. Að þessu sinni verður boðið upp á hlaðborð rétta sem meðlimir í miðnefnd töfra fram – kjúklingasalat, lundir, grænmetisréttir og kökur.

Að borðhaldi loknu les Áslaug Agnarsdóttir úr verðlaunaþýðingu sinni á Ívan Túrgenev: Minnisblöð veiðimanns. Tónlistarmaðurinn Teitur Magnússon tekur lagið.

Sest verður að snæðingi kl. 19:00. Verð kr. 3.000. Öll velkomin.

1. maí 1923

1. maí kaffi SHA

By Fréttir, Viðburður

Hitið upp fyrir kröfugönguna með hinu hefðbundna og einkar veglega 1. maí kaffi Samtaka hernaðarandstæðinga í Friðarhúsi, Njálsgötu 87, frá kl. 11 til 13. Gangan leggur svo af stað frá Skólavörðuholti.

Í boði verða vöfflur eins og þið getið í ykkur látið og annað heimagert góðgæti. Undir lokin tökum við lagið og dreifum kröfuspjöldum. Aðgangseyrir einungis 1000 krónur.

Íranskur kjötpottréttur

Marsmálsverður í Friðarhúsi – Setning landsfundar

By Fréttir, Viðburður
Fjáröflunarmálsverður SHA í Friðarhúsi fer að venju fram síðasta föstudagskvöl mánaðarins en er að þessu sinni jafnframt setningarsamkoma landsfundar SHA sem fram fer daginn eftir.
Friðrik og Gísli Atlasynir eru kokkarnir að þessu sinni og galdra fram íranskar kræsingar:
  • Khoresh-e Azadi, persneskur frelsispottur, kjötréttur
  • Khoresh Azadi, bragð mótstöðunnar, veganréttur
  • Hrísgrjón, salat og annað meðlæti
  • Kaffi og konfekt
Að borðhaldi tekur við menningardagskrá. Tónlistartvíeykið The Veiled Mother tekur lagið. Ljóðskáldið Arndís Þórarinsdóttir les úr nýútkominni ljóðabók.
Borðhald hefst.kl. 19. Verð kr. 3000.
Öll velkomin.