Miðnefnd SHA ályktar vegna nýlegra fregna frá Afganistan.
Opinn fundur í Friðarhúsi laugardaginn 17. október kl. 14.
- Tengist flóttamannastraumurinn til Evrópu endurnýjaðri vestrænni hernaðarstefnu í Miðausturlöndum og víðar?
- Hvaða afleiðingar mun þetta hafa á afdrif Schengen og „opinna landamæra“ í Evrópu?
- Hvaða afleiðingar gæti flóttinn mikli haft fyrir friðarhreyfingu Evrópu?
Þórarinn Hjartarson veltir upp þessum spurningum og fleirum í framsögu sinni. Hvetjum félaga til að fjölmenna.
Verið öll velkomin!
Hinn mánaðarlegi fjáröflunarmálsverður Friðarhúss verður haldinn n.k. föstudagskvöld, 25. september. Harpa Stefánsdóttir og Ármann Gunnarsson sjá um málsverðinn að þessu sinni.
Matseðillinn verður á þessa leið:
- Indverskur kjúlingapottréttur/dal
- Grænmetisbollur
- Hrísgrjón og raitha.
Félagar okkar í friðarbaráttunni Ólína Stefánsdóttir og Einar Ólafsson munu lesa upp úr nýútkomnum skáldverkum.
Borðhald hefst kl. 19. Verið öll velkomin. Verð kr. 2000.
Þriðjudaginn 15. september kl. 20 verður haldið nýliðakvöld Samtaka hernaðarandstæðinga í Friðarhúsinu.
Þar gefst nýjum félögum færi á að fræðast um samtökin en einnig verður Steinunn Rögnvaldsdóttir með erindi um Palestínu en hún starfaði þar sem sjálfboðaliði.
Markmið kvöldsins er þó fyrst og fremst að sjá framan í nýja félaga og búa til afslappaðan vettvang til umræðna um ykkar hjartans mál.
Verið öll velkomin.
Á laugardag ætla hernaðarandstæðingar að gera 1000 trönur í nafni friðar.
Ávarp Valgerðar H. Bjarnadóttur á kertafleytingu á Akureyri.
Ávarp Steinunnar Þóru Árnadóttur á kertafleytingunni á Reykjavíkurtjörn 6. ágúst 2015.
Varaforseti CND í Skotlandi verður gestur á kertafleytingu og flytur erindi í Odda á vegum Samstarfshóps friðarhreyfinga og Alþjóðamálastofnunar.