Nýliðakvöld

By 10/09/2015 Uncategorized

Þriðjudaginn 15. september kl. 20 verður haldið nýliðakvöld Samtaka hernaðarandstæðinga í Friðarhúsinu.

Þar gefst nýjum félögum færi á að fræðast um samtökin en einnig verður Steinunn Rögnvaldsdóttir með erindi um Palestínu en hún starfaði þar sem sjálfboðaliði.

Markmið kvöldsins er þó fyrst og fremst að sjá framan í nýja félaga og búa til afslappaðan vettvang til umræðna um ykkar hjartans mál.

Verið öll velkomin.