Þórarinn Hjartarson setur spurningamerki við frásagnir heimspressunnar af því þegar malasíska farþegaþotan fórst yfir Úkraínu.
Ragnheiður Skúladóttir leikstjóri flutti ávarp á kertafleytingu á Akureyri þann 6. ágúst sl.
Kæra samferðafólk
Við erum hér saman komin til að minnast þess að atómsprengju var varpað á Hiroshima 6. ágúst 1945 kl. 08:15. 80.000 manns dóu þá þegar. Sprengjan hét “Little boy” eða lítill drengur.
Þremur dögum síðar var plútóníum sprengju varpað á Nagasaki. Hún hét “Fat man” eða feitur maður. Tölur eru eitthvað á reiki en talið er að á milli 39000 og 80000 manns létust vegna þeirrar sprengingar. Read More
Guðmundur Andri Thorsson rithöfundur flutti meðfylgjandi ávarp á kertafleytingunni á Tjörninni þann 6. ágúst.
Þegar manneskja deyr hverfur með henni heill heimur. Það hverfur ákveðið göngulag sem er ekki alveg eins hjá neinum öðrum, einhver sérstök handarhreyfing, viss svipbrigði, sérstakur hugsunarháttur, ákveðið orðalag, einhver sérviska, kækir, þetta ákveðna bros; sérstök þjáning hverfur og sérstök hamingja; þegar manneskja deyr hljóðnar um leið sérstakur hlátur í veröldinni eða grátur, sérstök atvik, eitthvert samhengi og eftir sitja aðeins minningar samferðafólks, því að þegar manneskja deyr raknar um leið upp flókið net samskipta við annað fólk, vonir og væntingar og kenndir til þeirra hverfa,tilgangur bundinn þeim. Það er ekki til of mikils mælst á þessari gnægtajörð að allar þær sérstöku manneskjur sem í heiminn koma fái notið tiltekinna lágmarksréttinda til jafns við aðra: hafi í sig og á og njóti verka sinna, geti athafnað sig í boðlegum kringumstæðum, fái að elska eins og eðlið býður hverjum og trúa á þann guð sem maður skynjar – eða trúa engu, eigi kost á því að geta orðið besta hugsanlega útgáfan af sér, – það er ekki til of mikils mælst að manneskja sem kemur í þennan heim fái að lifa, því að rétturinn til lífsins er öðrum rétti æðri, rétturinn til að fá að lifa eins og manni hefur verið mældur tími til og deyja svo þegar það er orðið tímabært. Read More
Kertafleyting á Tjörninni í Reykjavík og á Akureyri miðvikudagskvöldið 6.ágúst 2014.
Frá árinu 1985 hafa íslenskir friðarsinnar fleytt kertum í minningu fórnarlamba kjarnorku-árásanna á Hírósíma og Nagasakí 6. og 9.ágúst 1945 og til að leggja áherslu á kröfuna um heim án kjarnorkuvopna. Um 200 þúsund manns létust í árásunum á borgirnar Hírósíma og Nagasakí. Síðan hafa enn fleiri dáið meðal annars vegna geislavirkni af völdum sprengjanna og margir eiga enn um sárt að binda. Friðarsinnar telja mikilvægt að komandi kynslóðir dragi lærdóma af kjarnorkuárásunum svo slík vopn verði aldrei framar notuð.
Þetta er því 30. kertafleytingin hér á landi. Um er að ræða hefð sem upprunin er í Japan, en athafnir af þessu tagi fara fram víða um heim.
Í Reykjavík hefst fleytingin klukkan 22:30 miðvikudaginn 6. ágúst. Safnast verður saman við suðvesturbakka Tjarnarinnar (við Skothúsveg).
Fundarstjóri er Saga Garðarsdóttir leikari , Guðmundur Andri Thorson rithöfundur flytur ávarp og Grímur Helgason klarinettuleikari spilar við Tjörnina. Aðgerðin er á vegum Samstarfshóps friðarhreyfinga, sem er samstarfsverkefni sjö friðarsamtaka og -hópa.
Á Akureyri verður einnig kertafleyting, sem þó hefst hálftíma fyrr eða kl. 22:00. Fleytt verður við Minjasafnsstjörnina. Samstarfshópur um frið stendur að fleytingunnni nyrðra.
Það er ófriðvænlegt í heiminum um þessar mundir. SHA draga saman helstu þræði í þessari stjórnmálaályktun.
Getur það samrýmst markmiðum feminista að berjast fyrir rétti kvenna til að taka þátt í stríðum? Þarf feminisminn að rifja upp rætur sínar sem friðarstefna?
Félagið Ísland-Palestína efnir til mótmælafundar á Lækjartorgi mánudaginn 14. júlí kl. 17. Þar gefst almenningi á Íslandi kostur á að tjá andúð sína á árásum Ísraelshers á Gaza liðna daga sem kostað hafa ófá mannslíf.
Samtök hernaðarandstæðinga styðja málstað fundarins og leggja sitt af mörkum með því að lána hljóðkerfi og aðstoða við uppsetningu þess. SHA hvetja alla félagsmenn sína sem heimangengt eiga til að mæta á fundinn.
Stefán Pálsson, sagnfræðingur og formaður Samtaka hernaðarandstæðinga, mun í kvöld fimmtudagskvöldið 10. júlí hafa umsjón með göngu á vegum Þingvallaþjóðgarðar.
Í göngunni verður sérstaklega hugað að sögu pólitískra mótmæla í og við Þingvelli, þar sem stofnuna Samtaka hernámsandstæðinga árið 1960 og mótmæli á Þingvöllum 1974 ber á góma. Gönguferðirnar hefjast alltaf við gestastofuna á Hakinu kl.20.00 á fimmtudagskvöldum og eru allir velkomnir.
Fimmtudagskvöld á Þingvöllum – thingvellir.is
Eins og dyggir lesendur Friðarvefsins hafa vafalítið tekið eftir, hefur verið mikið ólag á vefnum undanfarnar vikur. Skýringarnar eru margþættar en tengjast einkum hýsingaraðila í Bretlandi sem ekki stóð sig í stykkinu. Það hefur tekið tölvumenn SHA drjúgan tíma að leysa úr þessum vandamálum.
Nú hefur hýsingin verið færð heim til Íslands og bindum við vonir við að vandamálin séu að baki. Jafnframt ætti vefurinn nú að vera hraðvirkari en verið hefur.
Þegar þessi hvimleiðu tæknilegu vandamál eru að baki, er næsta skref að styrkja síðuna með meira og fjölbreytilega efni til að Friðarvefurinn verði áfram það mikilvæga tæki sem hann þarf að vera til að gagnast málstaðnum.