Friðarhús er í láni þetta kvöld til félagsins Vantrúar.
Bandaríski rithöfundurinn Webster Tarpley var gestur í sjónvarpsþættinum Silfri Egils sunnudaginn 26. september, þar sem hann ræddi framtíðarhorfur efnahagsmála í heiminum og Bandaríkjunum þá sérstaklega. Tarpley álítur að efnahagskreppan sé rétt að byrja og stjórnvöldum beri að haga ákvörðunum sínum í samræmi við það.
Tarpley þessi hefur ritað fjölda bóka um efnahags- og stjórnmál, þar á meðal um bandaríska hernaðar- og utanríkispólitík. Hann verður gestur í Friðarhúsi, Njálsgötu 87, fimmtudagskvöldið 1. október kl. 20. Þar mun hann fjalla um hernaðarstefnu Obama-stjórnarinnar og meðal annars bregða ljósi á feril sumra þeirra manna sem mest áhrif hafa innan bandaríska stjórnkerfisins þegar kemur að ákvörðunum í utanríkismálum.
Fundurinn er í boði Samtaka hernaðarandstæðinga og opinn öllu áhugafólki um alþjóðamál.
Heimsganga í þágu friðar og tilveru án ofbeldis er alþjóðlegt verkefni sem beinist að því að vekja okkur til vitundar um þörfina á því að efla frið og minnka ofbeldi í heiminum. Hin táknræna ganga hefst í Wellington, Nýja Sjálandi 2. október næstkomandi og lýkur 2. janúar 2010 í Punta de Vacas í Andesfjöllum við landamæri Argentínu og Chile. Auk þessarar göngu eru margskonar uppákomur og atburðir víðsvegar um heim sem hófust þegar á síðasta ári. Sjá www.heimsganga.is og www.theworldmarch.org.
Heimsgangan mun í samvinnu við fjölda samtaka standa fyrir friðargjörningi á Miklatúni 2. október n.k kl 20 til að halda hátíðlegan „Dag án ofbeldis“ sem Sameinuðu þjóðirnar hafa helgað þessu málefni. Þennan sama dag, sem jafnframt er fæðingardagur Gandhis, leggur Heimsgangan af stað frá borginni Wellington á Nýja Sjálandi.
Gjörningurinn felst í því að fjöldi fólks mun stilla sér upp með blys í hendi til að mynda stórt mannlegt friðarmerki (sjá meðfylgjandi mynd frá Búdapest þar sem slíkt merki var myndað þann 6. ágúst s.l. til að minnast fórnarlamba kjarnorkuárásanna á Hírósíma og Nagasaki).
Hugmyndin um mannlegt friðarmerki byggist á því að fá samtök og einstaklinga til þess að tryggja ákveðinn fjölda þátttakenda. Seldir eru fyrirfram miðar eða ávísun á blys á kr. 300 og fá þátttakendur blysin afhent á staðnum gegn framvísun á miðanum. Þegar eru nokkur samtök með í áforminu, þar á meðal Samtök hernðaraandstæðinga, sem hvetja félaga sína og aðra till að mæta.
Sjá nánar:
Mannlegt friðarmerki – vefsíða
Mannlegt friðarmerki – facebook
Europe for Peace – vefsíða
International Day of Non-Violence – á vef SÞ
Fundur í Söguhópi SHA.
Félagsfundur RV í Friðarhúsi.