Ályktun um stríð í Mið-Austurlöndum

Loftárásir á heimili í Tehran

Á síðustu mánuðum hefur heimurinn horft upp á óvenju grímulaus brot stórvelda á alþjóðalögum. Bandaríkin og Ísrael hafa í sífellu farið með árásum og hótunum gagnvart öðrum ríkjum, án þess að hirða um að ljá þeim aðgerðum nokkurt lögmæti. Mannrán, loftárásir og hótanir um innrásarstríð hafa dunið á heiminum það sem af er ári. Ábyrgðarleysið er fullkomið, þar sem hvorki er hirt um hættuna á að íhlutanirnar snúist upp í allsherjarstríð eða afleiðingarnar fyrir efnahagskerfi heimsins.

Allt tal um Bandaríkin sem forysturíki lýðræðis sem standi vörð um frið og stöðugleika er nú fráleitt. Um langt skeið hafa Bandaríkin og önnur Nató-ríki grafið undan alþjóðalögum og mikilvægustu alþjóðastofnunum á borð við Sameinuðu þjóðirnar og stutt þjóðarmorð og yfirgang Ísraelsríkis. Nú erum við að súpa seyðið af því. Stríðið í Íran er aðeins eitt dæmi af mörgum um þetta, þar sem teflt er á tæpara vað en heimsbyggðin hefur séð á þessari öld. Linkuleg viðbrögð Evrópuríkja, þar með talið íslenskra stjórnvalda, eru stórkostlega ámælisverð. Betur færi á því að fylgja fordæmi Spánverja, sem einir þjóða í álfunni hafa mótmælt stríðinu af krafti og neitað að leggja því nokkurt lið.