Marsmálsverður í Friðarhúsi – Setning landsfundar

Fjáröflunarmálsverður SHA í Friðarhúsi fer að venju fram síðasta föstudagskvöl mánaðarins en er að þessu sinni jafnframt setningarsamkoma landsfundar SHA sem fram fer daginn eftir.
Friðrik og Gísli Atlasynir eru kokkarnir að þessu sinni og galdra fram íranskar kræsingar:
  • Khoresh-e Azadi, persneskur frelsispottur, kjötréttur
  • Khoresh Azadi, bragð mótstöðunnar, veganréttur
  • Hrísgrjón, salat og annað meðlæti
  • Kaffi og konfekt
Að borðhaldi tekur við menningardagskrá. Tónlistartvíeykið The Veiled Mother tekur lagið. Ljóðskáldið Arndís Þórarinsdóttir les úr nýútkominni ljóðabók.
Borðhald hefst.kl. 19. Verð kr. 3000.
Öll velkomin.