Þjóðaröryggisstefna til friðar

Miðvikudaginn 18. mars kl. 20:00 í Friðarhúsi býður SHA til fundar um drög að þjóðaröryggis-, varnar- og öryggismálastefnu Samtaka hernaðarandstæðinga.

Fyrr á árinu samþykkti Alþingi samhljóða öryggis- og varnarstefnu sem SHA hafa gagnrýnt harðlega. Bæði byggir hún á heimsmynd sem er að hruni komin þar sem Nató og “Varnarsamningurinn” við BNA eru meginstoðir íslenskrar utanríkisstefnu. Í stað þess að bregðast við þessari breyttu heimsmynd til þess að nýta styrkleika Íslands sem friðsams og herlauss ríkis opnar hún á aukna hervæðingu landsins til að þóknast æ dyntóttari herveldum beggja vegna Atlantshafs.

Til að bregðast við þessu hyggst SHA setja fram valkost við þessa stefnu með sinni eigin þjóðaröryggis- varnar og öryggismálastefnu sem byggi á raunsæju mati á því hvaða raunverulegu ógnir steðja að íslenskri þjóð og hvernig megi byggja á styrkleikum íslensks samfélags. Miðnefnd SHA hefur rissað upp drög að stefnu sem hægt er að ræða og stefnt er að því að leggja hana fyrir landsfund í lok mánaðar til samþykktar.

Eins er hægt að senda athugsemdir í tölvupósti á sha@fridur.is