Ályktun um árásir á Íran

Miðnefnd Samtaka hernaðarandstæðinga fordæmir loftárásir Bandaríkjanna og Ísraels á Íran. Þessar árásir af fyrra bragði eru í algjöru trássi við alþjóðalög og munu einungis leiða til hörmunga fyrir íbúa Írans, ala á óstöðugleika á svæðinu og ógna heimshagkerfinu.

Heimur þar sem voldug herveldi varpa sprengjum á önnur lönd og myrða leiðtoga þeirra að eigin geðþótta er háskalegur fyrir okkur öll. Sérhver slík aðgerð grefur undan alþjóðalögum og réttlætingar í þá veru að árásirnar séu fyrirbyggjandi eða miði að því að steypa kúgunarstjórn eru fráleitar þegar horft er til grimmdarverka og hernaðaríhlutana Ísraels og Bandaríkjanna síðustu ár. Saga síðustu áratuga ætti að kenna okkur að íhlutunarstefna Bandaríkjanna og annarra stórvelda í Miðausturlöndum hefur einungis leitt til blóðsúthellinga og hörmunga, jafnvel svo áratugum skiptir.