Fjáröflunarmánuður Friðarhúss verður haldinn föstudagskvöldið 31. mars. Að þessu sinni munu félagar í miðnefd skipta með sér matseldinni og leggja á hlaðborð. Meðal rétta:
- Lambapottréttur vinstriróttæklingsins
- Friðsælt og guðdómlegt blómkálsgratín
- Kjúklingur í kúskús andheimsvaldasinnans
- Víetnömsk fiskisúpa gegn stríði
- Kjarnorkuvopnalaus brauð ásamt heimagerðum hummus
- Afvopnunarsalat
Svavar Knútur mun taka lagið að borðhaldi loknu. Að venju er sest að snæðingi kl. 19. Verð kr. 2.000.