Föstudaginn 31. mars verður fjáröflunarmálsverður SHA haldinn í Friðarhúsi og um leið verður landsfundur samtakanna settur formlega.
Matseðill:
- Dóra Svavarsdóttir og Heiða Dögg Liljudóttir bjóða upp á hlaðborð fyrir grænkera og kjötætur undir pakistönskum áhrifum. Ærpottréttur, grænmetispottréttur, grjón og eðalbrauð.
- Kaffi og hjónabandssæla að hætti Þorvaldssonar.
Að borðhaldi loknu mun þjóðlagatvíeykið Bára og Chris taka lagið & Kristín Svava Tómasdóttir gerir grein fyrir verðlaunabókinni Farsótt. Sest verður að snæðingi kl. 19 en húsið opnar hálftíma fyrr. Verð kr. 2.500.
Öll velkomin.