Ungir jafnaðarmenn í Hafnarfirði: Ísland út NATO!

By 23/01/2007 Uncategorized

nato nei Ungir jafnaðarmenn í Hafnarfirði (UJH) héldu aðalfund sinn 15. desember og framhaldsaðalfund 19. janúar. Meðal ályktana sem fundurinn samþykkti var eftirfarandi:

Ályktun varðandi herinn og NATO

UJH fagna því að bandaríski herinn sé nú farinn frá Miðnesheiði og að Ísland sé nú loksins herlaust land. UJH ítreka jafnframt þá skoðun sína að Ísland eigi að segja sig úr hernaðarbandalaginu NATO.

http://www.mir.is