Tökum þátt í mótmælagöngu í Washington gegn stríðinu í Írak – gegnum netið!

By 25/01/2007 November 20th, 2011 Uncategorized

0701 avaaz graphic Næstkomandi laugardag, 27. janúar, hafa friðarsinnar í Bandaríkjunum skipulagt mótmælagöngu í Washington gegn stríðsrekstri Bandaríkjanna í Írak. Að þessari göngu standa ýmis stærstu friðarsamtök Bandaríkjanna, svo sem United for Peace and Justice og A.N.S.W.E.R.

Í tengslum við þessar aðgerðir hafa samtök sem standa að vefsíðunni Avaaz.org skipulagt alþjóðlega undirskriftasöfnun þannig að þeir sem ekki komast í gönguna geta skrifað undir yfirlýsingu og nöfn þeirra verða sett á borða sem bornir verða í göngunni. Þannig gefst okkur tækifæri til að taka á táknrænan hátt þátt í göngunni.

Yfirlýsingin er svohljóðandi í íslenskri þýðingu:

Áætlun Bush forseta um að herða enn frekar á stríðsrekstrinum í Írak nýtur ekki stuðnings írösku þjóðarinnar, alþjóðasamfélagsins, bandarísku þingnefndarinnar (Iraq Study Group, öðru nafni Baker-Hamilton nefndarinnar) né meginhluta bandarísku þjóðarinnar. Við skorum á bandaríska þingið að koma í veg fyrir enn frekari stríðsrekstur í Írak og krefjumst þess að leitað verði diplómatískra lausna og raunverulegra leiða til að binda endi á stríðið í Írak.

Skrifið undir hér og skrifið undir strax! Gangan verður á laugardaginn!

Guantanamo flotinn Förum saman til Guantánamo – og lokum fangabúðunum!

Við viljum einnig vekja athygli á herferð Amnesty International gegn fangabúðunum í Guantánamo, sem felst í táknrænu ferðalagi til Guantánamo. Farið inn á þessa síðu og veljið ykkur farkost.