SHA bjóða Reykjavíkurborg til viðræðna

By 25/09/2007 Uncategorized

HofdiÁ dögunum sendu Hernaðarandstæðinga eftirfarandi fréttatilkynningu til fjölmiðla, varðandi tillögur samtakanna varðandi mögulegan framtíðarrekstur Friðarstofnunar Reykjavíkur:

Reykjavík 19. september 2007

Þann 13. október á síðasta ári tilkynnti Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson borgarstjóri á samkomu í Höfða að borgaryfirvöld hyggðust koma á laggirnar Friðarstofnun Reykjavíkur í samvinnu við innlenda og erlenda aðila. Markmið stofnunarinnar skyldi vera að fjalla um friðarmál á alþjóðlegum vettvangi, halda árlega ráðstefnu og bjóða deiluaðilum viðs vegar að úr heiminum til viðræðna hér á landi.

Hugmynd borgarstjóra um friðarborgina Reykjavík er góð og gefur vonir um að borgaryfirvöld muni í framtíðinni afþakka herskipakomur í hafnir Reykjavíkur eða heræfingar í borgarlandinu.

Því miður virðist hins vegar ætla að ganga hægt að þoka þessu þjóðþrifamáli áfram og ekkert meira hefur heyrst af áformunum um Friðarstofnunina síðustu ellefu mánuðina. Sú spurning vaknar hvort stjórnkerfi Reykjavíkurborgar sé of þungt í vöfum til að unnt sé að leiða málið til lykta.

Samtök hernaðarandstæðinga vilja í ljósi þessa hvetja meirihluta Sjálfstæðis- og Framsóknarflokks í borgarstjórn Reykjavíkur til að íhuga það alvarlega að leysa úr læðingi krafta einkaframtaksins svo að íslensk sérþekking og hugvit fái notið sín til fulls í útrás friðflytjenda. SHA leggja því til að Friðarstofnunin verði unnin í einkaframkvæmd, en slíkt rekstrarform er mjög í tísku um þessar mundir.

Samtök hernaðarandstæðinga munu á næstu dögum bjóða fulltrúum borgarstjórnar til formlegra viðræðna, með það að markmiði að samtökin taki að sér að sjá um rekstur Friðarstofnunar Reykjavíkur. Samtökin hafa áratuga reynslu af útgáfustarfsemi og funda og ráðstefna um friðarmál. Jafnframt búa þau að öflugu tengslaneti við erlendar friðarhreyfingar sem augljóslega munu koma hér að góðum notum. Það er ósk Samtaka hernaðarandstæðinga að samningaviðræðurnar gangi hratt og vel, enda fáar vikur til stefnu áður en fyrsta árlega friðarráðstefnan verður haldin í október.