Samtök herstöðvaandstæðinga boða til mótmælastöðu við bandaríska sendiráðið kl. 17.30 á föstudaginn

By 26/07/2006 Uncategorized

beirut3 Samtök herstöðvaandstæðinga boða til mótmælastöðu við bandaríska sendiráðið kl. 17.30 föstudaginn 28. júlí.

Jafnframt hafa samtökin sent frá sér eftirfarandi ályktun:

Ályktun Samtaka herstöðvaandstæðinga: Ríkisstjórn Íslands beiti sér fyrir að árásirnar á Líbanon verði stöðvaðar

Samtök herstöðvaandstæðinga skora á ríkisstjórn Íslands að fordæma mannréttindabrot Ísraels í Líbanon og beita sér fyrir því að þau verði stöðvuð tafarlaust.

Á hverjum degi berast nýjar fregnir af voðaverkum Ísraelshers í Líbanon og þeim hörmungum sem loftárásir hafa leitt yfir íbúa þessa stríðshrjáða lands. Svæsnustu myndirnar rata raunar ekki inn í fréttatíma stærstu fjölmiðla: sundurtætt og brunnin barnslík, hálfhrundar íbúðarblokkir, angistarfullt grátandi fólk. Hundruð manna hafa verið drepin, þúsundir limlestar. Og meðan athyglin beinist að Líbanon hefur Ísraelsstjórn aftur hafið árásir á Palestínumenn á Gaza.

Þessi hryllingur einn og sér ætti að duga til að ríkisstjórnir um allan heim, aðrir áhrifamenn og allur almenningur, þetta sem kallað er alþjóðasamfélag, beitti sér fyrir tafarlausu vopnahléi og krefðist þess skilyrðislaust að Ísraelar hætti hernaðaraðgerðum sínum. En þar að auki eru aðgerðir Ísraelsstjórnar skýlaust brot á alþjóðasamningum, svo sem 33. grein fjórða Genfarsamningsins sem hljóðar svo:

„Óheimilt er að refsa vernduðum manni vegna verknaðar sem hann hefur ekki framið sjálfur. Bannaðar eru hóprefsingar og hverskonar hótanir og hermdarverk. Rán og gripdeildir eru með öllu bannað. Bannaðar eru hefndaraðgerðir gegn vernduðu fólki og eignum þess.“

Bandaríkjastjórn hefur komið í veg fyrir að fjölþjóðleg ráðstefna í Róm krefðist þess að vopnahlé yrði komið á. Bretland og Þýskaland hafa staðið í vegi fyrir því að Evrópusambandið beitti sér í málinu. Þegar stórveldin bregðast verða smáríkin að sýna ábyrgð. Íslenska ríkisstjórnin verður að hætta að tala um rétt Ísraels til að verja sig, við erum að tala um fjöldamorð, eyðileggingu, mannréttindabrot og stríðsglæpi. Ríkisstjórn Íslands verður að láta til sín taka. Eða til hvers er hún að sækjast eftir sæti í Öryggisráðinu?