Ólýsanleg grimmd

By 06/04/2010 Uncategorized

wikileaksUpptakan af drápum bandaríska hersins á íröskum borgurum sem birt var um helgina á uppljóstraravefnum Wikileaks hefur vakið verðskuldaða athygli. Myndbandið má skoða á vefsíðunni, en rétt er að vara við innihaldi þess. Atburðir sem þessir hafa margoft átt sér stað í Írak frá því að landið var hernumið með stuðningi Íslands, en vandlega er reynt að gæta þess að almenningur á Vesturlöndum fái ekki að sjá ódæðin.

Fjallað er um myndbandið, stríðið í Írak og lista hinna vígfúsu þjóða í snjöllum bakþanka-pistli í Fréttablaðinu í dag, sem óhætt er að mæla með.