Októbermálsverður, föstudagskvöld

By 27/10/2014 Uncategorized

Föstudagskvöldið 31. október n.k. verður fjáröflunarmálsverður Friðarhúss haldinn. Gestakokkur kvöldsins er friðardúfan, Mosfellingurinn og spurningakeppnisforkólfurinn Ævar Örn Jósepsson. Matseðillinn er sem hér segir:

* Hakkabuff með lauk, brúnni sósu, kartöflum, grænum baunum, rauðkáli og rabbarbarasultu

* Grænmetisbuff

Kaffi & rúlluterta með vanilluhindberjarjóma(osts)kremi í eftirrétt

Að borðhaldi loknu munu rithöfundarnir Guðrún Eva Mínervudóttir og Ófeigur Sigurðsson lesa úr nýútkomnum skáldverkum sínum.

Sest verður að snæðingi kl. 19, en húsið opnað hálftíma fyrr. Verð kr. 2.000. Allir velkomnir.